Hótar að mæta aldrei aftur eftir „sorglega gagnrýni“ Valur Páll Eiríksson skrifar 18. mars 2026 10:33 Sabalenka er allt annað en sátt við mótsstjórann í Dúbaí. Albert Perez/Getty Images for Tennis Australia Aryna Sabalenka, efsta kona heimslistans í tennis, segir gagnrýni á síðbúna úrsögn sína úr Dúbaí-meistaramótinu í síðasta mánuði vera fáránlega. Hún íhugi að taka aldrei aftur þátt á mótinu.
Hin hvítrússneska Sabalenka og hin pólska Iga Swiatek, sem er númer tvö í heiminum, drógu sig úr keppni tveimur dögum áður en mótið átti að hefjast þann 13. febrúar. Salah Tahlak, mótsstjóri mótsins í Dúbaí, gagnrýndi ákvörðun þeirra og sagði að svipta ætti þær stöllur stigum á heimslistanum vegna hennar. „Ég held að ummælin dæmi sig sjálf,“ segir Sabalenka og bætir við: „Það er í raun sorglegt að sjá mótstjóra vernda ekki okkur leikmennina. Það eina sem þeir hugsa um eru tekjurnar af mótunum sínum.“ „Ég er ekki viss um að ég vilji fara þangað nokkurn tímann aftur eftir ummæli hans. Hann fór yfir strikið,“ segir hún jafnframt. Sabalenka fagnaði sigri á Indian Wells-mótinu í Kaliforníu um helgina en það var fyrsta mót hennar frá því að hún lenti í öðru sæti á Opna ástralska í janúar. Aðrar tenniskonur standa með Sabalenku og Swiatek, þar á meðal Coco Gauff, sem segist hafa skilning á því að þær hafi sleppt mótinu eftir að hafa tekið þátt á því ítrekað árin á undan. Tennisfólk hefur reglulega lýst yfir áhyggjum af þéttri dagskrá og álagi sem fylgir uppstillingu móta á heimsvísu. Það nær yfir ellefu mánuði ársins fyrir fremstu tennisspilara heims.
Tennis Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ofursunnudagur á Sýn Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Falko farinn frá ÍR Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Eyjakonur unnu opnunarleikinn Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Sjá meira