Þór Þ. - Ármann 74-79 | Ármenningar skildu Þórsara eftir í fallsæti Andri Már Eggertsson skrifar 12. mars 2026 18:32 vísir/Hulda Margrét Ármann sótti einn mikilvægasta sigur tímabilsins til Þorlákshafnar og skildi Þór eftir í fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir af Bónus deild karla í körfubolta. Lokatölur 74-79 fyrir Ármanni eftir æsispennu. Með þessum sigri stökk Ármann upp í 10. sæti deildarinnar en skildi Þór eftir í 11. sætinu. Liðin eru jöfn að stigum en Ármann er með betri innbyrðis úrslit og Þórsarar stefna hraðbyrum niður í næstefstu deild. Ármann hefur verið í fallsæti nánast allt tímabilið en átti frábæran endasprett í kvöld, eftir að hafa verið vel undir í fjórða leikhluta. Það var áþreifanlegur skrekkur í báðum liðum til að byrja með en gestirnir úr Laugardalnum tóku frumkvæðið. Bræðurnir Bragi Guðmundsson og Ingvi Þór Guðmundsson fóru á kostum í upphafi og gerðu 17 af fyrstu 19 stigum Ármanns. Staðan eftir fyrsta fjórðung var 14-21. Það var meiri andi í Þórsurum í öðrum leikhluta. Heimamenn fundu auðveldari leiðir að körfunni og Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, tók leikhlé í stöðunni 28-34. Leikhlé Steinars gerði lítið sem ekkert fyrir hans menn og Þór endaði á að gera tíu stig í röð og komst yfir í fyrsta sinn í leiknum. Brandon Averette tók sitt fyrsta skot í fyrri hálfleik og gerði síðustu þrjú stigin og kom sínum mönnum í forystu. Staðan í hálfleik var 42-43. Gestirnir mættu með góða orku inn í síðari hálfleik og gerðu fyrstu tvær körfurnar. Það sló hins vegar Þórsarar ekki út af laginu sem gerðu fimm stig í röð, komust yfir og Steinar Kaldal tók leikhlé. Þórsarar enduðu þriðja leikhluta á 11-2 áhlaupi og voru sex stigum yfir þegar haldið var í síðasta fjórðung 65-49. Ármenningar virtust vera að fara á taugum í upphafi fjórða leikhluta þar sem gestirnir voru í tómum vandræðum og gerðu klaufaleg mistök hvað eftir annað. Steinar Kaldal neyddist til að taka leikhlé og ræða við sína menn. Það var svo lýsandi að í fyrstu sókn eftir leikhlé töpuðu þeir boltanum. Á ótrúlegan hátt náðu gestirnir að snúa taflinu við og gerðu tíu stig á meðan Þórsarar gerðu aðeins tvö. Heimamenn komu ekki til baka eftir það högg og leikurinn endaði með sigri gestanna 74-79. Atvik leiksins Tröllatroðsla Braga Guðmundssonar í stöðunni 71-74 þar sem hann fékk víti að auki gekk frá leiknum. Bragi var frábær og endaði með 31 stig. Stjörnur og skúrkar Bragi Guðmundsson fór á kostum í kvöld. Bragi endaði með 31 stig og stigin hans voru í öllum regnbogans litum. Bragi gerði 21 stig í fyrri hálfleik. Bróðir Braga, Ingvi Þór Guðmundsson, var einnig frábær í kvöld og gerði 16 stig. Emil Karel Einarsson spilaði 20 mínútur og skilaði litlu sem engu framlagi. Dómararnir Dómarar kvöldsins voru Kristinn Óskarsson, Jón Þór Eyþórsson og Bergur Daði Ágústsson. Þetta var ekki auðveldur leikur að dæma þar sem það var mikill hiti í báðum liðum enda mikið undir. Dómararnir komust þó vel frá sínu og það var ekkert út á þá að setja. „Einstaklingsframtak hjá okkur og ég held að menn hafi verið of spenntir“ Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, var svekktur eftir leikVísir/Hulda Margrét Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar var afar svekktur eftir tap kvöldsins sem varð til þess að liðið sé komið í fallsæti. „Þetta var svekkjandi því mér fannst við vera með yfirhöndina undir lok þriðja leikhluta. Það kom kafli í fjórða leikhluta þar sem bæði lið hittu ekki neitt. Svo fóru þeir aðeins að hitta og þetta var einstaklingsframtak hjá okkur og ég held að menn hafi verið of spenntir,“ sagði Lárus eftir leik. Ármann var einu stigi yfir eftir kaflaskiptan fyrri hálfleik 42-43. „Ég bjóst við því að þetta yrði svona leikur. Við fengum fín skot en menn voru ekki að hitta svo kom jafnvægi í leikinn.“ Ákvörðunin að hleypa erlendu leikmönnum Þórs Þorlákshafnar í frí á meðan spilaðir voru landsleikir hefur verið gagnrýnd. Aðspurður út í hvort það hafi verið mistök sagði Lárus að svo væri ekki og útskýrði málið betur. „Djordje fékk fimm daga frí þar sem hann á eins árs gamlan son sem hann heimsótti. Dachon Burk átti að fá sex daga frí en svo kom í ljós að hann átti að fara í jarðarför og var því kominn á mánudegi en ekki á föstudegi eins og stóð til,“ sagði Lárus að lokum. Bónus-deild karla Þór Þorlákshöfn Ármann