KR - Kefla­vík 107-105 | Kefl­víkingar gáfu frá sér fimmta sætið

Kári Mímisson skrifar
Valur - KR Bónus deild karla Vetur 2026
Valur - KR Bónus deild karla Vetur 2026 vísir/Diego

KR tók á móti Keflavík í 20. umferð Bónusdeildar karla í körfubolta nú í kvöld. Um sannkallaðan spennutrylli var að ræða þar sem úrslitin réðust á lokasekúndu leiksins.

Það voru gestirnir sem byrjuðu leikinn betur hér í kvöld en Remy Martin skoraði fyrstu sex stig leiksins. Eftir smá brösuga byrjun hjá KR tókst þó liðinu að vinna sig vel inn í leikinn um miðjan fyrsta leikhluta en munurinn var aðeins eitt stig eftir fyrsta leikhluta. Annar leikhluti byrjaði svipað og sá fyrri, KR í brasi og Keflvíkingar gengu á lagið.

Þegar um þrjár mínútur voru til hálfleiks tókst Toms Elvis heldur betur að kveikja í KR-liðinu þegar hann setti niður þriggja stiga körfu og tókst heldur betur að höggva á hnútinn sóknarlega fyrir KR. Við þetta fór allt í gang hjá heimamönnum sem skoruðu hverja körfuna á fætur annarri eftir þessa erfiðu byrjun og héldu til hálfleiks með sjö stiga forskot. Staðan 53-46 fyrir KR í hálfleik.

KR hélt uppteknum hætti í þriðja leikhluta og tókst að halda forystunni áfram í kringum átta stig þar til undir lok leikhlutans þegar liðið náði frábærum kafla og tókst að koma sér í 15 stiga forystu fyrir fjórða leikhluta.

Allt stefndi í það að KR myndi sigla þessum sigri tiltölulega þægilega heim um miðjan loka leikhlutann en svo varð nú aldeilis ekki. Á örskotsstund tókst Keflvíkingum að minnka muninn niður í tvö stig og allt opið þegar skammt var til leiksloka. KR tókst aðeins að slíta sig frá gestunum fyrir lokamínútuna sem var æsispennandi. Keflvíkingar settu niður þrjá þrista í röð á meðan KR fór tvisvar sinnum á línuna og setti aðeins eitt af fjórum vítum sínum. Egor Koulechov jafnaði leikinn með rosalegri þriggja stiga körfu þegar 17 sekúndur voru eftir af leiknum.

KR fékk eitt tækifæri til að knýja fram sigur og það var Toms Elvis Leimanis sem fékk það tækifæri þegar hann réðst að körfunni þegar örfáar sekúndur voru eftir. Boltinn datt af hringnum og skoppaði þar áður en Mirza Bulic sló boltann af hringnum. Dómarar leiksins gáfu sér góðan tíma í að ræða málin áður en þeir dæmdu körfu góða fyrir að slá boltann yfir hringnum. Ótrúlegur endir á mögnuðum leik. Lokatölur 107-105 fyrir KR.

Atvik leiksins

Hvað getur maður sagt um þessa lokasókn? Bulic og allir Keflvíkingar hljóta að hugsa hvað hefði gerst ef hann hefði ekki slegið þennan bolta yfir hringnum.

Það verður líka að nefna þristinn sem Egor setti rétt á undan þessu atviki en hann var rosalegur. Því miður fyrir Keflavík þá dugði hann ekki að þessu sinni.

Stjörnur og skúrkar

Þórir Þorbjarnarson var gjörsamlega stórkostlegur í kvöld, eins og hann er í rauninni búinn að vera allt tímabilið, með 27 stig og 11 stoðsendingar. Linards Jaunzems var stigahæstur í liði KR með 30 stig og reif niður 8 fráköst.

Hjá Keflavík var það Mirza Bulic sem var að mínu mati heilt yfir bestur en svo er maður á sama tíma að pæla hvort hann sé líka skúrkurinn fyrir þessa knatttruflun (e. goaltending).

Dómarinn

Þeir voru í bleiku í kvöld sem mér þykir djarft. Stóðu sig afar vel og skiluðu þessu verkefni af sér með miklum sóma. Fá þetta risastóra atvik undir lokin og ég held að þetta hafi verið rétt hjá þeim.

Stemning og umgjörð

Frábær mæting í Frostaskjólið, eins og á nánast alla leiki liðsins í vetur. Áhorfendur létu vel í sér heyra og þá var vallarþulurinn stórkostlegur eins og alltaf. Ef það hefði ekki verið fyrir það að gömlu bíósætin úr Álfabakka eru komin í blaðamannastúkuna hér í Frostaskjólinu þá myndi þetta vera tíu af tíu.

Viðtöl 

Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Keflavíkur var að vonum svekktur með sárt tap sinna manna gegn KR nú í kvöld.

„Þetta er eins svekkjandi og það verður, sérstaklega eftir að vera að koma svona til baka eins og við vorum að gera. Mér fannst við sýna slaka frammistöðu, sérstaklega í fyrri hálfleik. Við komum síðan til baka eftir að hafa verið 15 stigum undir og áttum frábæran sprett í fjórða leikhluta. Þetta fór sem fór.“

Daníel segir að varnarlega hafi liðið ekki verið nægjanlega sterkt ásamt því að liðið hafi ekki náð að halda forskotinu sem það bjó til snemma leiks. Sóknarlega á liðið eitthvað inni samkvæmt Daníel en þó er hann sáttur við að setja 105 stig hér í kvöld.

„Við byrjuðum leikinn mjög vel en okkur tókst ekki að standast þetta áhlaup sem þeir gerðu á okkur. Við vorum linir varnarlega og ég er mjög ósáttur með það. Við náðum að halda þeim í 21 stig í fjórða leikhluta sem er fínt en er á sama tíma eitthvað sem við verðum að gera. VIð erum með hæfileikaríka sóknarmenn í liðinu okkar sem við þurfum að slípa aðeins betur saman þar sem mér fannst margt vera frekar þvingað hjá okkur. Við skorum 105 stig samt í kvöld og ég kvarta ekki yfir því en við þurfum að vera miklu betri varnarlega. Við breyttum aðeins varnarlega í fjórða leikhluta og ég á ábyggilega eftir að reyna að þróa það eitthvað aðeins áfram.“

Var það varnarleikurinn sem breytti þessu þarna algjörlega fyrir ykkur í fjórða leikhluta?

„Við hittum líka vel á þessum tímapunkti og fengum mikið sjálfstraust úr varnarleiknum. Um leið og við urðum aðeins árásargjarnari varnarlega, náðum við að setja aðeins meiri pressu á boltann og náðum að gera þá hluti sem við vorum að gera fyrri hluta tímabilsins. Þetta var breyting sem við gerðum og stundum virkar það og stundum ekki. Þetta virkaði í fjórða leikhlutanum en því miður fór þetta ekki eins og við hefðum viljað.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira