„Hefðum unnið þá í framlengingunni í staðinn“ Kári Mímisson skrifar 12. mars 2026 22:17 Jakob Örn var viss um að sigurinn myndi skila sér, sama hvað. Pawel Cieslikiewicz Jakob Örn Sigurðarson þjálfari KR var að vonum sáttur með dramatískan sigur liðsins á Keflavík í kvöld. Sigurinn þýðir að liðin skiptast á sætum þegar skammt er eftir af deildinni. „
Ég er ánægður að ná sigrinum og að ná að loka þessu. Við vorum með góða stjórn á stórum hluta af leiknum og vorum eiginlega með þá allan tímann fyrir utan í fjórða leikhlutanum þar sem þeir voru að setja niður mjög erfið skot,“ segir Jakob strax að leik loknum. ,Lið KR hefur verið í mörgum jöfnum viðureignum á þessari leiktíð sem og reyndar á síðasta tímabili. Spurður að því hvort hann sjái mikinn mun núna á liðinu í þessum aðstæðum segir Jakob að þetta sé æfing og liðið sé orðið þaulreynt að spila svona leiki. „Þetta kemur með æfingunni og endurtekningunni. Við vorum í mörgum jöfnum leikjum í fyrra og höfum verið í töluvert af svona leikjum í vetur. Þetta kemur með því að vera í svona leikjum aftur og aftur. Okkur líður betur í þessum aðstæðum þegar leikirnir eru jafnir og vitum svolítið betur að hverju við erum að leita, hverja við viljum hafa á boltanum og svo framvegis. Okkur líður ágætlega í svona aðstæðum.“ Lygileg lokasókn Lokasóknin í kvöld var afar dramatísk þar sem KR vann leikinn eftir að Mirza Bulic, sem hafði sennilega verið besti leikmaður Keflavíkur í kvöld, slær boltann yfir hringnum í lokaskoti leiksins. Dómarar leiksins gáfu sér góða stund til þess að fara yfir þetta áður en þeir dæmdu körfuna góða. Fór eitthvað um þig á meðan þeir réðu ráðum sínum? „Það fór svo sem ekki neitt um mig. Ef að þeir hefðu ekki dæmt þessa körfu þá hefðum við bara farið í framlenginguna. Mér finnst við vera með betra lið en Keflavík og við hefðum unnið þá í framlengingunni í staðinn.“ Tóti í Túrbógírnum Þórir Þorbjarnarson var stórkostlegur fyrir KR í kvöld. Ekki aðeins setti hann niður 27 stig þá gaf hann einnig 11 stoðsendingar ásamt því að koma inn með risa körfur þegar mest á reyndi. Hvað hefur þjálfarinn um hann að segja? „Frammistaða hans var bara frábær. Hann steig upp þegar við byrjuðum hægt og hélt okkur svolítið inni í þessu í fyrsta leikhluta. Þetta var mjög góður leikur hjá honum þar sem hann gerði bæði vel í að skora og finna liðsfélaga sína.“
Bónus-deild karla KR Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Fleiri fréttir Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Sjá meira