Veðurstofan rýnir breyttar jarðhræringar Sunna Sæmundsdóttir skrifar 10. mars 2026 13:51 Benedikt Gunnar Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur og fagstjóri aflögunarmælinga á Veðurstofu Íslands. vísir/arnar Vísbendingar eru um að eldvirkni við Sundhnúksgíga gæti verið að líða undir lok og unnið er að nýrri sviðsmyndagreiningu hjá Veðurstofunni. Fagstjóri aflögunarmælinga segir ekkert benda til þess að næsta gos sé yfirvofandi.
Samkvæmt líkanreikningum hafa yfir tuttugu og tvær milljónir rúmmetra af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí í fyrra. Benedikt Gunnar Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands, segir kvikumagnið nálgast hámark og það mesta sem safnast hefur þar saman frá upphafi jarðhræringanna, „En á sama tíma er ekki aukning í skjálftavirkni. Þannig að við erum að horfa á ákveðnar breytingar á kerfinu, eða einhverja þróun, og erum að skoða hvað það þýðir,“ segir Benedikt. Unnið er því að nýrri sviðsmyndagreiningu. Benedikt bendir á að hingað til hafi skjálftavirkni aukist í aðdraganda eldgosa. Síðast gaust við Sundhnúksgígaröðina í fyrrasumar.vísir/Anton Brink „Sú þróun hefur ekki byrjað ennþá þannig að það er mögulega vísbending um að það sé kannski ekki að styttast í gos, jafnvel þótt tankurinn sé fullur. Þannig að ein sviðsmyndin sem við þurfum að skoða er þetta sé bara hreinlega búið og við séum þá kannski að horfa á einhverja mánuði eða jafnvel eitt til tvö ár þar sem verður hægt landris og ekkert gerist.“ Óvissa fram undan Þrátt fyrir ýmislegt bendi til þess að atburðaráðsinni gæti verið lokið segir Benedikt ekki hægt að slá því föstu áður en landris hætti alfarið. „Ef við förum að sjá að landið hættir að rísa og fer jafnvel að síga, sem væri þá merki um að kvikuhólfið sé að kólna, og við sjáum það gerast í einhvern tíma að þá væri mögulega hægt að fara að segja að þessu sé lokið. En ég held við séum alltaf að fara að horfa á marga mánuði og jafnvel meira en ár af óvissu, jafnvel þótt ekkert gerist,“ segir Benedikt.
Eldgos og jarðhræringar Grindavík Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Fleiri fréttir Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Sjá meira