Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 9. mars 2026 12:54 Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, Búast má við hörðum umræðum á Alþingi í dag um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort haldið skuli áfram með aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Bændasamtökin hafa ekkert á móti því að kanna hug þjóðarinnar til málsins. Landbúnaðarstefna sambandsins henti hins vegar afar illa hér á landi.
Fyrri umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda skuli áfram viðræðum Íslands um aðild að Evrópusambandinu fer fram á Alþingi í dag klukkan þrjú. Þar er lagt til að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram 29. ágúst. Samkvæmt henni eru gefnir tveir valkostir: Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu eða nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Búast má við fjörugum umræðum á Alþingi í dag. Formaður Miðflokksins útilokaði fyrir helgi í samtali við fréttastofu að málið muni hljóta skjóta afgreiðslu á þingi. Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði dagsetninguna henta frasakenndri stefnu ríkisstjórnarinnar en ekki þjóðinni. Hvað hefur breyst síðan síðast? Margrét Ágústa Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Bændasamtakanna segist ekki hafa neitt á móti því að kanna hug þjóðarinnar til áframhaldandi viðræðna en innganga í sambandið sé allt annað mál. „Að sjálfsögðu höfum við ekkert á móti því að það fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um málið og þá hvort það verði farið í viðræður eða áframhaldandi viðræður. Við gerum hins vegar athugasemd við upplýsingaóreiðu um málið. Við vitum að landbúnaðurinn er einn sá málaflokkur sem yrði fyrir umfangsmestu og varanlegum breytingum við aðild Íslands að sambandinu og helstu áhyggjurnar snúa að því. Þá hentar frjálst flæði landbúnaðarvara illa íslenskum aðstæðum,“ segir Margrét Ágústa. Margrét Ágústa telur að ekki verði hægt að fá varanlegar undanþágur frá landbúnaðarastefnunni. „Þá hafa líka verið áhöld uppi um hvort hægt sé að fá undanþágur, en við fyrstu sýn getum við ekki séð að þær hafi verið veittar nema eingöngu tímabundið. Það eru engar varanlegar almennar undanþágur frá þessari sameiginlegu landbúnaðarstefnu. og hafa í raun aldrei verið veittar,“ segir hún. Ágústa segir að landbúnaðarmálin hafi gegnt stóru hlutverki síðast þegar aðildarviðræður við sambandið voru stöðvaðar. „Það var ástæða fyrir því á sínum tíma að viðræðurnar stoppuðu en það var m.a. vegna landbúnaðarkaflans. Hvað hefur breyst síðan þá? Það væri áhugavert að vita það,“ segir Margrét Ágústa að lokum.
Evrópusambandið Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Landbúnaður Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira