Kvenfélagskonur eru orðnar þreyttar á heilbrigðiskerfinu Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 7. mars 2026 13:03 Stjórn Kvenfélagasambands Íslands (KÍ), frá vinstri: Magdalena K. Jónsdóttir, gjaldkeri. Dagmar Elín Sigurðardóttir, forseti. Hildur Traustadóttir, nýkjörin ritari. Ragna Guðmundsdóttir, nýkjörin í varastjórn. Eva Björk Harðardóttir, varaforseti og Rósa Marinósdóttir, meðstjórnandi. Á myndina vantar Helgu Guðmundsdóttur, varastjórnarkonu. Aðsend Kvenfélagskonur um allt land eru orðnar afskaplega þreyttar á stöðu heilbrigðiskerfisins og hvað þá að geta ekki fengið heimilislækni eins og víða á landsbyggðinni. Einnig finnst þeim ótækt að í sumum tilfellum tala læknar ekki íslensku, heldur ensku.
73. formannaráðsfundur Kvenfélagasambands Íslands var nýlega haldinn í Borgarnesi þar sem fjölmörg mál voru til umræðu. Formannaráðið samþykkti einhljóða ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld að hrinda í framkvæmd ákvæðum í stjórnarsáttmála um aukna fjárfestingu í heilbrigðis- og öldrunarþjónustu. En hvað eiga kvenfélagskonurnar við með því, Dagmar Elín Sigurðardóttir er forseti Kvenfélagssambands Íslands. „Þetta var ályktun, sem kom frá konum í Sambandi austfirskra kvenna og þær hafa einmitt miklar áhyggjur af því að hafa til dæmis ekki fastan heimilislækni því það þarf alltaf að vera að rifja upp og segja frá þessu saman þegar verið er að koma til læknis,” segir Dagmar og bætir við. „Það er eins hérna á höfuðborgarsvæðinu, fólk er farið að kvarta undan því að hafa ekki fastan heimilislækni og veigrar sér þá jafnvel að sækja sér læknisþjónustu”. Dagmar Elín Sigurðardóttir, sem er forseti Kvenfélagssambands Íslands.Aðsend Dagmar Elín segir líka mjög slæmt að á sumum stöðum tali læknar ekki íslensku, það sé bara enska. „Það eru ekkert allir, sem geta gert sig skiljanlega um sín veikindi á ensku og það er eitthvað, sem þarf að skoða og það hlýtur að vera eitthvað, sem er til umfjöllunar hjá heilbrigðisyfirvöldum hvort það þurfi bara í einhverjum tilfellum að hafa túlk í samtali,” segir Dagmar. En staðan í heilbrigðismálum almennt, hvernig er hún að mati forseta Kvenfélagasambands Íslands? „Staðan í heilbrigðismálum er ekki góð. Legurými og hjúkrunarrými fyrir aldraða, það vara vantar. Það er eitthvað, sem hefur orðið út undan í kerfinu, það þarf að passa upp á þetta,” segir Dagmar Elín. Konurnar, sem eru í formannaráði KÍ.Aðsend Heimasíða sambandsins
Borgarbyggð Heilbrigðismál Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira