Grinda­vík - Valur 75-83 | Valur vann framlengdan nagl­bít

Siggeir Ævarsson skrifar
Frá leik Grindavík og Vals fyrr á tímabilinu.
Frá leik Grindavík og Vals fyrr á tímabilinu. vísir / anton

Grindavík og Valur mættust í stórleik í A riðils Bónus deildar kvenna í körfubolta í kvöld en liðin eru í harði baráttu um heimavallarrétt í þéttum pakka í A riðli.

Grindavíkurkonur mættu nokkuð vanstilltar til leiks á báðum endum vallarins. Vörnin virkaði illa skipulögð og opnaðist oft upp á gátt og á sama tíma gekk flest á afturfótunum sóknarmegin. Þannig náði liðið að tapa átta boltum í fyrsta leikhluta og þar af tvisvar þegar Abby Beeman dripplaði boltanum í fótinn á sér og útaf. Staðan 16-25 eftir fyrsta leikhluta.

Þær mættu öllu beittari til leiks í öðrum leikhluta, minnkuðu muninn og jöfnuðu metin en Valskonur leiddu þó í hálfleik með þremur stigum, 38-41. Þar munaði mestu um ótrúlega frammistöðu Reshawna Rosie Stone sem var með 21 stig í hálfleik.

Aftur virtust heimakonur ekki vera alveg með á nótunum þegar flautað var til seinni hálfleiks. Gestirnir skoruðu fyrstu sjö stigin og munurinn kominn upp í tíu stig. Grindvíkingar náðu þó vopnum sínum á ný áður en leikhlutinn var á enda og Ellen Nyström kom Grindavík yfir með „step-back“ flautuþristi, staðan 54-51 fyrir lokaátökin.

Lokaleikhlutinn varð æsispennandi þar sem liðin skiptust á forystunni og hvorugu tókst að slíta sig frá hinu. Grindavík virtist stundum vera að ná því en þá kom svar frá Val og síðustu sekúndur leiksins urðu algjör naglbítur en áðurnefnd Reshawna jafnaði metin í 70-70 með 19 sekúndur á klukkunni og leikurinn fór í framlengingu.

Valskonur reyndust sterkari þar, ekki síst títtnefnd Reshawna sem hitti bara úr öllu sem henni datt í hug að skjóta en hún endaði með 41 stig. Lokatölur í Grindavík 75-83.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira