Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Lovísa Arnardóttir skrifar 4. mars 2026 07:51 Sigurður Hannesson er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Vísir/Egill Ný greining Samtaka iðnaðarins sýnir að verðmætasköpun iðnaðar nam 1.100 milljörðum króna á síðasta ári. Þar kemur einnig fram að í fyrsta sinn í fyrra hafi útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar í fyrsta sinn verið meiri en útflutningstekjur sjávarútvegarins.
Heildarverðmætasköpun greinarinnar jafngildir um fjórðungi af heildarverðmætasköpun íslensks hagkerfis samkvæmt greiningunni. Útflutningstekjur greinarinnar námu 791 milljarði króna á því ári eða um 40 prósentum af heildarútflutningstekjum hagkerfisins. Í greininni störfuðu í fyrra 52 þúsund manns sem er nær eitt af hverjum fjórum störfum í hagkerfinu. Í greiningunni kemur jafnframt fram að velta greinarinnar nam nær 2.300 milljörðum króna í fyrra sem er um þriðjungur af veltu viðskiptahagkerfisins. Skattspor iðnaðar var 564 milljarðar króna árið 2024, stærst útflutningsgreina. Í greiningunni segir að þessar tölur endurspegli þó ekki heildaráhrif iðnaðarins. Virðiskeðja greinarinnar sé fjölþætt og teygi sig langt út fyrir beinan rekstur iðnfyrirtækja. Fyrirtækin kaupi vörur og þjónustu af fjölda aðila í öðrum greinum og afrakstur verðmætasköpunarinnar dreifist vítt og breitt um samfélagið. Þessi óbeinu áhrif (margföldunaráhrif) feli í sér að raunverulegt vægi iðnaðar í verðmætasköpun sé meira en beinar mælingar gefa til kynna. Mynd úr greiningu SI.SI Þá er bent á í greiningunni að verðmætasköpun í iðnaði byggi á samspili mannauðs og fjármagns. Greinin sé tæknivædd og krefjist verulegra fjárfestinga í sérþekkingu, tækjabúnaði, nýsköpun og rannsóknar- og þróunarstarfi. Slíkar fjárfestingar styðji við framleiðnivöxt og gera fyrirtækjum í greininni kleift að greiða launin sem, samkvæmt greiningunni, eru að jafnaði hærri en í mörgum öðrum greinum hagkerfisins. Í greiningunni kemur fram að útflutningstekjur iðnaðar hafi numið 790 milljörðum króna árið 2025, eða 40 prósentum af heildarútflutningstekjum þjóðarbúsins. Mikið vægi greinarinnar í útflutningi geri það að verkum að þróun greinarinnar skiptir þjóðarbúið miklu en útflutningstekjur greinarinnar hafi aukist um 88 prósent frá árinu 2015 en þá námu þær 420 milljörðum króna. Fór úr fjórða sæti í það þriðja Tvær af fjórum meginstoðum útflutnings Íslands falla undir iðnað, það er orkusækinn iðnaður og tækni- og hugverkaiðnaður. Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar námu 369 milljörðum króna á síðasta ári, sem samsvarar 18 prósentum af heildarútflutningstekjum hagkerfisins, þannig að sú stoð fór úr fjórða sætinu í það þriðja. Í greiningunni segir að útflutningstekjur greinarinnar hafi á síðasta ári í fyrsta sinn verið hærri en útflutningstekjur sjávarútvegsins. Útflutningstekjur greinarinnar hafa vaxið stöðugt undanfarin ár, en árið 2010 námu þær 64 milljörðum króna. „Tækni- og hugverkaiðnaður er atvinnugrein sem byggir á hugviti og fjárfestingum í nýsköpun, oft studd af umfangsmiklu rannsóknar- og þróunarstarfi. Undir greinina falla meðal annars fyrirtæki í upplýsingatækni- og fjarskiptaiðnaði (UT), tölvuleikjagerð og gagnaversiðnaði, auk lyfjaframleiðslu, líf- og heilbrigðistækni og öðrum hátækniiðnaði. Vöxtur hugverkaiðnaðar á síðustu árum hefur aukið fjölbreytni í útflutningi og þannig rennt stoðum undir aukinn stöðugleika í hagkerfinu,“ segir í greiningunni. Samdráttur vegna lokunar Bakka og Elkem Þar segir einnig að útflutningstekjur iðnaðar, fyrir utan tækni- og hugverkaiðnað, hafi numið 422 milljörðum króna á síðasta ári. Tekjurnar hafi lækkað á milli ára, en árið 2024 námu þær 442 milljörðum króna. Útflutningstekjur þessar eru aðallega af útflutningi stóriðju. Samdráttinn á milli ára megi einkum rekja til lokunar PCC á Bakka, minni framleiðslu hjá Elkem og bilunar hjá Norðuráli á Grundartanga. Á móti vógu þó verðhækkanir á áli. Í greiningunni segir einnig að hlutdeild iðnaðar í atvinnusköpun sé sterk vísbending um vægi greinarinnar í hagkerfinu og að mannauðurinn sé lykilþáttur í verðmætasköpun hennar. Verulegur hluti verðmætasköpunar greinarinnar rennur til starfsfólks í formi launa og launatengdra gjalda. Aðrir hlutar verðmætasköpunarinnar skiptast milli fjármagns í rekstri fyrirtækjanna og hins opinbera í formi skatta og gjalda. Tölur fyrir árið 2025 sýna að um 52.000 manns störfuðu þá í iðnaði hér á landi. Það jafngildir um 23 prósentum af heildarfjölda starfandi á vinnumarkaði. Með öðrum orðum má ætla að um eitt af hverjum fjórum störfum í hagkerfinu sé í iðnaði. Störf í iðnaði spanna allt frá sérhæfðum störfum í litlum sprotafyrirtækjum til stórra vinnustaða í framleiðslu- og útflutningsiðnaði, auk umsvifamikilla fyrirtækja í byggingariðnaði og mannvirkjagerð. Á síðustu tíu árum hefur störfum í iðnaði fjölgað um 13.000. Það jafngildir því að iðnaðurinn hafi staðið undir um 29 prósent af heildarfjölgun starfa í hagkerfinu á tímabilinu samkvæmt greiningunni. Þar segir einnig að laun í iðnaði séu almennt há og yfir meðallaunum. Það endurspegli mikla framleiðni greinarinnar. Þá segir að þessi mikla verðmætasköpun greinarinnar skili sér ekki aðeins til fyrirtækja og starfsfólks heldur einnig til samfélagsins í formi skattgreiðslna, oft nefnt skattspor. Skattspor vísar til heildarframlags greinarinnar til hins opinbera og þar með til fjármögnunar heilbrigðis- og menntakerfis, sem og uppbyggingar innviða, svo sem samgangna og opinberra mannvirkja. Skattsporið stækkaði Skattspor íslensks iðnaðar, vítt skilgreint, var 564 milljarðar króna árið 2024 samkvæmt útreikningum Reykjavík Economics. Það stækkaði frá árinu 2023 þegar það var 549 milljarðar króna á verðlagi ársins 2024. Sé horft á þröngt skilgreint skattspor (skattar sem leggjast beint á rekstur auk launagreiðslna) má sjá að iðnaðurinn er umtalsvert stærri en aðrar útflutningsgreinar, með 247 milljarða króna framlag. Til samanburðar nam vítt skattspor ferðaþjónustunnar 190 milljörðum króna og þröngt skattspor 108 milljörðum árið 2024. Þröngt skattspor fiskveiða og -vinnslu nam sama ár tæplega 80 milljörðum króna. Skattspor iðnaðarins hefur stækkað verulega á undanförnum árum en til samanburðar þá nam vítt skattspor greinarinnar 439 milljörðum króna árið 2020 (á verðlagi 2024). Þessi þróun endurspeglar vöxt greinarinnar og aukna verðmætasköpun, sem skilar sér í auknum tekjum hins opinbera og styrkir þannig opinbera þjónustu og fjárfestingar.
Tækni Sjávarútvegur Efnahagsmál Stóriðja Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Neytendur Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti erlent Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Viðskipti innlent „Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“ Atvinnulíf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Viðskipti erlent Hildur fer frá Hörpu til KPMG Viðskipti innlent Hagkerfið allt í hættu Viðskipti innlent Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Viðskipti innlent Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Neytendur Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Bein útsending: Lokakeppni Gulleggsins 2026 Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Mikið í húfi ef ekki dregur úr verðbólgu og vaxtalækkun ekki í sjónmáli Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Verðbólga stendur í stað þvert á spár Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Sjá meira
Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Viðskipti innlent
Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Viðskipti innlent