Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel Tómas Arnar Þorláksson skrifar 27. febrúar 2026 23:16 Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður Hlíðarfjalls. vísir/lýður valberg Lögreglan þurfti að grípa inn í við Hlíðarfjall síðustu helgi þegar örtröð myndaðist við bílastæðið. Forstöðumaður skíðasvæðisins segir áfengissölu í brekkunni hafa reynst einkar vel og tekur fram að fjöldi erlendra ferðamanna á svæðinu hafi aukist verulega á síðustu árum.
Á skíðum skemmti ég mér sagði skáldið og það á svo sannarlega við hér í Hlíðarfjalli enda búið að vera brjálað að gera og enginn skortur á snjó. Síðustu helgi var metaðsókn á skíðasvæðið. Þegar mest lét voru um 3.500 manns á skíðasvæðinu enda allir grunnskólar höfuðborgarsvæðisins með vetrarfrí á sama tíma. Forstöðumaður Hlíðarfjalls segir skíðasvæðið sjálft hafa ráðið vel við fjöldann þó aðra sögu sé að segja um bílastæðið. „Umferðin á laugardeginum á milli ellefu og tólf var svo mikil að lögreglan ákvað að stöðva hana svo sjúkrabílar myndu komast upp ef það þyrfti. Fólk lagði bílnum bara hvar sem er. Það vildi bara komast í brekkur. Við sáum bíla keyra út í skafla og festa sig og voru ekkert að spá í því. Bara komast í brekkuna og losa sig síðar. Þetta er mjög góður vetur. Síðan um miðjan janúar er búið að vera lítið um lokanir sem er mjög óvanalegt.“ Áfengissala hefur verið leyfileg í fjallinu í nokkur ár en að sögn Brynjars hefur það reynst einkar vel. „Ástæðan fyrir því að við leyfðum það var í rauninni að það var alltaf fólk hérna sem var að smygla eða koma með sitt eigið. Það var bara þannig hérna á sumrin að við vorum undir lyftunum að tína áfengisflöskur í tugatali. Lögreglan hefur unnið þetta í góðu samstarfi við okkur. Þeir eru að mæla og prufa þá sem eru að keyra niður fjallið. Ég veit ekki til þess að neinn hafi verið tekinn af lögreglunni á síðustu árum.“ Aukið millilandaflug til og frá Akureyrarflugvelli hefur gert bæinn að meiri ferðamannastað en áður. Fjöldi erlendra ferðamanna í brekkunni hefur margfaldast á síðustu tveimur árum. „Það er beint flug hérna frá Hollandi og Bretlandi. Það er ótrúlega mikill fjöldi af útlendingum sem koma hingað að skíða. Eins og ég segi þá er mikið af Asíubúum sem eru að koma og þeir eru oft að skíða í fyrsta skipti. Maður sér mikið af þeim leigja sér búnað og fara í brekkurnar.“
Skíðasvæði Áfengi Akureyri Áfengi í íþróttastarfi Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Sjá meira