Stranger Things-fossinn gæti orðið vinsælastur Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 26. febrúar 2026 10:22 Síðasta senan í síðasta þætti Stranger Things var tekin upp við Háafoss. Vísir/Vilhelm Ferðamálastofa telur að Háifoss í Þjórsárdal gæti orðið einn af vinsælustu áfangastöðum erlendra ferðamanna á komandi árum. Það sé meðal annars vegna þess að fossinn birtist í nýjustu þáttaröðinni af Stranger Things.
Í síðasta þætti í síðustu, og nýjustu, þáttaröðinni af Stranger Things var skot af stórstjörnunni Millie Bobby Brown fyrir framan Háafoss í Þjórsárdal. Í kjölfarið mældist fimm þúsund prósenta aukning í leit að nafni fossins á netinu. Ferðamálastofa býst þá við að þessi aukna athygli muni leiða til stóraukins áhuga ferðamanna á næstu misserum, ekki síst yfir sumartímann. Þau hafa því hafið reglubundna talningu ferðamanna við fossinn. „Það eru margir sem spá því að Háifoss verði næsta Stuðlagil - að umferð um hann muni margfaldast,“ er haft eftir Jóhanni Viðari Ívarssyni, greinanda á rannsókna- og tölfræðisviði Ferðamálastofu. „Reynsla okkar er sú að birting íslenskra áfangastaða í vinsælu alþjóðlegu myndefni getur haft afgerandi áhrif á ferðamannastrauminn. Heimsóknum að flugvélaflakinu á Sólheimasandi og í Fjaðrárgljúfur fjölgaði til dæmis verulega eftir að myndskeið frá þessum stöðum birtust í tónlistarmyndbandi Justin Bieber.“ Til stendur að leggja nýjan veg að fossinum en núverandi vegur er slæmur og aðstaðan engin. Með því að telja fjölda ferðamanna sem heimsækja svæðið er hægt að taka upplýstar ákvarðanir um uppbyggingu á svæðinu, skipulag og þjónustu en ekki síst vernda svæðið fyrir álagi. Háifoss er 122 metrar á hæð og er talinn vera þriðji hæsti foss landins.
Öryggi á ferðamannastöðum Ferðaþjónusta Skeiða- og Gnúpverjahreppur Bíó og sjónvarp Hollywood Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira