Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Kjartan Kjartansson skrifar 25. febrúar 2026 13:47 Faðir Ulrichs Siegmund, oddvita AfD í Saxlandi-Anhalt er sagður á launaskrá þingmanns flokksins á þjóðþinginu í Berlín. AfD eygir mögulega sinn fyrsta meirihluta í sambandslandslosningum síðar á þessu ári. Vísir/Getty Fulltrúar og frambjóðendur fjarhægriflokksins Valkosts fyrir Þýskaland liggja nú undir ámæli fyrir að hygla vinum og vandamönnum í aðdraganda sambandslands- og sveitarstjórnarkosninga á árinu. Flokkurinn segir ásakanirnar ýmis stoðlausar eða ýktar.
Þýskir þingmenn mega ekki ráða skyldmenni sín, maka eða fyrrverandi maka í störf sem eru launuð með skattfé. Reglurnar banna þó ekki að þingmenn ráði skyldimenni samherja sinna á þingi. Fjallað hefur verið um ráðningar á ættmennum leiðtoga Valkosts fyrir Þýskaland (AfD) í Saxlandi-Anhalt og annars sambandslangsþingmanns flokksins. AfD mælist með forystu í skoðanakönnunum í sambandslandinu fyrir kosningar síðar á þessu ári og gæti komist til valda í fyrsta skipti frá stofnun árið 2013. Síðan hafa fréttir verið sagðar af ætlaðri frændhygli þingmanna flokksins í þremur öðrum sambandslöndum og á Evrópuþinginu, að sögn evrópska blaðsins Politico. Flokkurinn, sem hefur verið í sögulegri sókn og er næststærsti þingflokkurinn á ríkisdeginum, hefur stillt sér upp sem ferskum valkosti við eiginhagsmunabandalag gömlu stjórnmálaflokkanna. Friedrich Merz, kanslari, skaut fast á Valkost fyrir Þýskaland í nýlegu viðtali. Ekki ætti aðeins að svara flokknum fullum hálsi um málefnin heldur einnig um meinta ærlega föðurlandsvini sem leiði hann. „Flokkurinn einkennist af djúpstæðri einkavinavæðingu og frændhygli,“ sagði Merz. Engin lög brotin Ásakanirnar koma á óheppilegum tíma fyrir AfD þar sem þýðingarmiklar kosningar fara fram víða um Þýskaland í ár, þar á meðal til fimm sambandslandsþinga og fjölda sveitarstjórna. AfD hefur mælst jafnfætis Kristilegum demókrataflokki Merz kanslara. Leiðtogar AfD þvertaka fyrir að frændhygli ríki innan raða flokksins. Alice Weidel, annar leiðtoga hans, segir ásakanirnar ýmist stoðlausar eða færðar í stílinn. Farið sé yfir þau mál sem bent hafi verið á. Tino Chrupalla, hinn leiðtogi AfD, segir þingmenn ekki hafa brotið neinar lög jafnvel þótt hann viðurkenndi að það gæti farið öfugt ofan í kjósendur ef þingmenn stunduðu það að hygla vinum og ættingjum. Finnst ekkert athugavert við að ráða skyldmenni Í Saxlandi-Anhalt er það faðir Ulrichs Siegmund, oddvita AfD í sambandslandskosningunum, sem er sagður á launaskrá Thomas Korell, þingmanns flokksins á landsþinginu. Korell er einnig sagður hafa báða foreldra annars sambandslandsþingmanns AfD í Saxlandi í vinnu. Siegmund neitaði því sjálfur að faðir hans ynni fyrir Korell en jafnvel þótt hann gerði það væri ekkert athugavert við það. Erfitt væri að fá fagfólk til starfa vegna „skammar“ sem sé tengd við að vinna fyrir flokkinn. „Ég segir frekar opinskátt hvers vegna þetta er ekkert vandamál og hvers vegna mér finnst það raunar vera gott og hvers vegna mér sjálfum finst ekkert vandamál við að ráða ættingja eða aðra þingmenn eða samherja í flokknum. Því traust er það sem skiptir okkur máli,“ sagði Siegmund.
Þýskaland Fjölskyldumál Kosningar í Þýskalandi Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira