Fékk skauta í augað á Ólympíuleikunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2026 21:38 Það fossblæddi úr hinni pólsku Kamilu Sellier-Stormowska eftir hræðilegt slys í kvöld. Getty/Henk Jan Dijks Hræðilegt slys varð í skautakeppni á stuttri braut á Vetrarólympíuleikunum á föstudag. Nokkrir keppendur rákust saman og féllu og pólska skautakonan Kamila Sellier fékk skauta í augað.
Atvikið átti sér stað þegar síðasti riðill kvenna í átta manna úrslitum í 1500 metra skautahlaupi var rúmlega hálfnaður. Þrír af sex keppendum féllu í beygju og var riðillinn stöðvaður. Ítalska heimavonkona Arianna Fontana, sem er ríkjandi ólympíumeistari, var á meðal þeirra sem féllu. Hún þurfti að fá aðhlynningu en verr fór fyrir Sellier. Poland's Kamila Sellier suffered a cut after she fell in a turn, alongside American Kristen Santos-Griswold and Italy's Ariana Fontana. https://t.co/sADUDKxw5i— WTOL 11 (@WTOL11Toledo) February 20, 2026 Þegar endursýning af fallinu var sýnd á stórum skjá varð þögn í höllinni. Myndirnar sýndu nefnilega að skauti bandarísku Kristen Santos-Griswold hafði hitt Sellier nálægt auganu eftir að hlífðargleraugun hennar duttu af. Henni blæddi mikið og var settur upp skjöldur á meðan hún fékk aðhlynningu. Hún var síðan borin út. „Auga Kamilu Sellier er svo bólgið að ekki er hægt að opna það. Búið er að sauma skurðinn á kinninni og kinnbeinið er skaddað. Hún fer á sjúkrahús,“ sagði Konrad Niedzwidzki í pólsku ólympíunefndinni við TVP Sport, samkvæmt sænska Aftonbladet. Samkvæmt kanadíska CBC mun auga Sellier líklega ná sér að fullu. Það þurfti að þurrka blóð af ísnum áður en hægt var að hefja riðilinn aftur. Það var gert án Sellier og Santos-Griswold. Báðum var vísað úr keppni fyrir að hafa átt sök á fallinu. Kamila Sellier of Poland just took a skate blade to the face 🫣 pic.twitter.com/uT2uQofPPE— Jared Lee (@CommishJared) February 20, 2026
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skautaíþróttir Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri KA - Afturelding | Þurfa sigur til að halda í við toppliðið Njarðvík - Valur | Geta Njarðvíkingar rétt skipið af? KR - Ármann | Halda KR-ingar sigurgöngunni áfram? Höttur - ÍR | Hörkuleikur fyrir Austan Grindavík - Stjarnan | Stórliðin þurfa sigur Lillestrøm - Real Sociedad | Evrópu Orri mætir til Noregs Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Matthías hættur hjá Val Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Ömurleg menning hjá Man. Utd Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Er skrefareglan dauð í NBA? Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Sjá meira