Upp­gjör: ÍA-Keflavík 97-96 | Skaga­menn enduðu níu leikja taphrinu

Sverrir Mar Smárason skrifar
Egor Koulechov fékk tækifæri til að vinna leikinn en klikkaði á lokaskoti leiksins.
Egor Koulechov fékk tækifæri til að vinna leikinn en klikkaði á lokaskoti leiksins. VÍSIR/VILHELM

Skagamenn unnu langþráðan sigur í Bónus-deild karla í kvöld þegar liðið fékk Keflavík í heimsókn í AvAir höllina á Akranesi. Leikurinn sveiflaðist fram og aftur en heimamenn unnu að lokum eins stigs sigur, 97-96.

Skagamenn höfðu fyrir leikinn tapað níu deildarleikjum í röð og vildu ólmir snúa því við í leik kvöldsins. Nú var liðið loks fullskipað og allir heilir.

Keflavík byrjaði fyrsta leikhlutann betur og komust fljótlega 6 stigum yfir en um miðjan leikhlutann vöknuðu Skagamenn og tóku yfir leikinn. Eftir gott áhlaup var staðan jöfn og heimamenn í góðum gír. Darryl Morsell var atkvæðamestur í upphafi og staðan eftir fyrsta leikhluta 31-27, heimamönnum í vil.

Það var allt annað uppi á teningnum í 2. leikhluta. Gestirnir virtust hafa náð að slípa vörnina vel og lokuðu á sókn Skagamanna. Óskar Þór, þjálfari ÍA, fór að hreyfa bekkinn meira en lítið breyttist. Keflvíkingar tóku forystuna snemma í leikhlutanum, litu ekki um öxl og fóru með tíu stiga forskot inn í hálfleikinn, 45-55.

Aftur sveiflaðist leikurinn í þriðja leikhluta. Vörn Skagamanna hertist nú og gekk Keflavík verr að skora. Ivan Gavrilovic minnti á sig í leikhlutanum fyrir ÍA og sömuleiðis Styrmir Jónasson sem setti niður þrjá stóra þrista, þar á meðal flautuþrist undir lokin til þess að minnka muninn niður í þrjú stig. Staðan eftir þriðja leikhluta var 74-77, gestunum í vil.

Fjórði leikhluti varð alvöru spenna. Skagamenn tóku forystuna snemma en Keflavík var aldrei langt undan. Þegar 30 sekúndur voru eftir tóku Skagamenn leikhlé, leiddu með einu stigi, en Gavrilovic klikkaði á skotinu. Sem betur fer fyrir ÍA klikkaði Egor sömuleiðis á skotinu hinum megin og Skagamenn unnu sinn fyrsta leik síðan í lok nóvember, 97-96.

Með sigrinum halda Skagamenn lífi í vonum sínum um að halda sér uppi í Bónus-deildinni en Keflavík siglir lygnan sjó með 20 stig og stefnir í úrslitakeppnina.

Atvik leiksins

Það er stemningsþristurinn sem Styrmir Jónasson setti niður þegar flautan gall í lok þriðja leikhluta. Það setti tóninn inn í lokakaflann fyrir ÍA. Það má líka nefna þessi tvö skot sem fyrir sigri sem klikkuðu undir lokin hvoru megin.

Stjörnur og skúrkar

Darryl Morsell var magnaður í liði ÍA í kvöld með 36 stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar. Ivan Gavrilovic var sömuleiðis flottur með 24 stig og 7 fráköst.

Í liði Keflavíkur var stigaskorun dreifð en Egor Koulechov stendur upp úr með 24 stig, 11 fráköst og 9 stoðsendingar.

Skagamenn verða að fá meira frá Ilja Dokovic. Hann endaði með 9 stig og 10 stoðsendingar en hitti aðeins úr 3 skotum af 11. Erlendur leikmaður sem líklega kostar sitt verður að gera meira.

Dómararnir

Vel dæmdur leikur hjá tríói kvöldsins.

Umgjörð og stemning

Það var minna mætt en venjulega á skaganum í kvöld en þegar leið á leikinn var það ekki að sjá. Stúkan eltir alltaf andann og baráttuna í liðinu og þegar heimamenn komust aftur yfir í 4. leikhluta varð allt vitlaust í stúkunni til enda. Það var mikill fögnuður í leikslok og þessi sigur gerði ansi mikið fyrir körfuboltasamfélagið á Akranesi.

Óskar Þór Þorsteinsson þjálfari ÍA, er hér til vinstri.ÍA

Óskar Þór: Maður er búinn að bíða og bíða eftir þessu

Óskar Þór þjálfari ÍA var gríðarlega ánægður í leikslok eftir langþráðan sigur sinna manna.

„Mér líður bara frábærlega. Maður er búinn að bíða og bíða eftir þessu og loksins datt þetta fyrir okkur. Ég gæti ekki verið sáttari,“ sagði Óskar Þór.

Skagaliðið byrjaði vel í fyrsta leikhluta en missti svo allan damp í öðrum. Það sýndi mikinn karakter í síðari hálfleik.

„Þetta er bara sama saga og oft hjá okkur í vetur. Við erum með tæpa róteringu, ekki stóran bekk og mér fannst við bara vera orðnir þreyttir í lokin á öðrum leikhluta. Við gáfum frá okkur 12 stig á stuttum tíma sem breyttu ganginum. Þvílíkt sterkur karakter að koma sér aftur inn í þennan leik tíu stigum undir á móti góðu liði og klára þetta svona. Auðvitað er eitthvað leikfræðilegt sem ég hefði viljað sjá betra en það er ekkert út á karakterinn hjá strákunum að setja. Við báðum um orku, frammistöðu og að þeir sýndu hvað þeir vildu þetta og þeir gerðu það í kvöld,“ sagði þjálfari ÍA.

Það er lítið eftir af tímabilinu og liðið er enn á botni deildarinnar. Nú tekur við landsleikjahlé áður en síðustu fjórir leikir deildarinnar eru á dagskrá.

„Við ætlum bara inn í alla leiki til þess að vinna þá. Við undirbúum okkur fyrir andstæðinginn, reynum að bæta það sem fór ekki nægilega vel í leiknum á undan og mætum með stemningu. Það er meira sjálfstraust í okkur núna sem hefur vantað og vonandi þýðir það bara meira frá okkur í næstu leikjum,“ sagði Óskar Þór að lokum.

Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Keflavíkur.Anton Brink/Vísir

Daníel Guðni: Bara súrt

Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, var svekktur í leikslok en undir lokin fékk hans lið tækifæri til þess að stela sigrinum sem tókst ekki.

„Bara súrt. Við gáfum þessu séns hérna í lokin eftir dapra frammistöðu varnarlega í seinni hálfleik. Við vorum flottir í öðrum leikhluta en náðum ekki að halda takti og því fór sem fór,“ sagði Daníel Guðni.

Eftir nokkuð jafnan fyrsta leikhluta tók Keflavík öll völd í öðrum leikhluta. Sá taktur var ekki í liðinu í síðari hálfleik.

„Þeir eru með gott lið. Við vorum komnir 15 stigum yfir snemma í þriðja og missum það svo frekar hratt niður. Þeir sækja vel á okkur og við náðum ekki að hitta úr skotunum okkar hinum megin. Við náðum ekki að setja vörnina okkar upp eins og við vildum.“ sagði Daníel.

Eins og áður segir sigla Keflvíkingar lygnan sjó í deildinni og virðast stefna nokkuð þægilega inn í úrslitakeppni.

„Við ætlum að nýta landsleikjahléið vel í hvíld og að hugsa um eitthvað annað en körfubolta. Vonandi ná menn sem hafa verið að glíma við meiðsli að losa sig við það, búin að vera smá brekka með það núna,“ sagði þjálfari Keflavíkur að lokum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira