Níu ára fangelsi fyrir að nauðga fatlaðri konu ítrekað Árni Sæberg skrifar 19. febrúar 2026 15:50 Sigurður huldi andlit sitt þegar hann mætti í Héraðsdóm Reykjavíkur á sínum tíma. Vísir/Vilhelm Landsréttur hefur dæmt Sigurjón Ólafsson, karlmann á sextugsaldri, í níu ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað andlegra fatlaðri konu ítrekað og látið aðra menn sem hann var í samskiptum við nauðga henni. Hann var yfirmaður hennar og neyddi son hennar til að fylgjast með kynferðislegum athöfnum þeirra. Hann hlaut ára dóm í héraði, áfrýjaði sjálfur og Landsréttur þyngdi dóminn um eitt ár.
Dómur Landsréttar þess efnis var kveðinn upp fyrir luktum dyrum klukkan 15. Dómurinn hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu. Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir, sem sótti málið fyrir hönd ákæruvaldsins, greinir Vísi frá niðurstöðu dómsins. Hún segir ákæruvaldið hafa farið fram á staðfestingu sakfellingar og þyngingu refsingar. Nýtti sér yfirburðarstöðu Í Héraðsdómi Reykjavíkur var Sigurjón dæmdur til átta ára fangelsisvistar fyrir að hafa ítrekað nauðgað konunni á árunum 2016 til 2020 og látið aðra menn hafa kynferðismök við hana. Hann var einnig dæmdur fyrir að brjóta á syni hennar sem þá var á táningsaldri og kærustu hans. Fram kom í dóminum að Sigurjón hefði notfært sér það að konan hafi ekki getað spornað við verknaðinum sökum andlegrar fötlunar og beitt hana ólögmætri nauðung. Þá hefði hann misnotaði freklega þá aðstöðu sína að konan var honum háð í atvinnu sinni en hann hefði verið verslunarstjóri í versluninni þar sem konan starfaði við afgreiðslu. Málið harðlega gagnrýnt Sem áður segir var Sigurjón ákærður fyrir að hafa látið aðra menn nauðga konunni. Talsverða athygli, og ekki síður reiði, vakti að enginn hinna mannanna hefði verið ákærður fyrir að brjóta á konunni. Meðal þeirra sem lýstu yfir megnri óánægju með það voru talskona Stígamóta og framkvæmdastjóri Þroskahjálpar. „Þetta gefur mjög undarleg skilaboð um hvernig megi misnota konur í hvaða tilgangi. Mér finnst alveg augljóst þarna, því við erum með lög sem segja að það þurfi samþykki, að hún hafi ekki veitt samþykki. Hún hefur verið undir hælnum á manni sem stýrði henni gjörsamlega,“ sagði Drífa Snædal til að mynda. Ríkisútvarpið hafði á sínum tíma eftir Ólafi Þór Haukssyni héraðssaksóknara að ákvörðun um að ákæra mennina ekki hefði ekki verið léttvæg. Hún hefði verið tekin að vel ígrunduðu mál og niðurstaða embættis hans hefði verið að málin þættu ekki líkleg til sakfellingar. Í svari við skriflegri fyrirspurn Vísis vegna málsins sagði Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari að málið hefði verið tekið til skoðunar hjá embætti hennar. Niðurstaðan hefði verið sú að ekki hafi verið efni til að gefa út ákæru á hendur öðrum en ákærða Sigurjóni.
Kynferðisofbeldi Dómsmál Akranes Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Innlent Fleiri fréttir Keili formlega slitið Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Sjá meira