Íhugar að leggja á sykurskatt Smári Jökull Jónsson skrifar 15. febrúar 2026 19:59 Starfshópi verður falið að skoða fýsileika þess að leggja sérstakan skatt á vörur sem teljast óhollar, samkvæmt drögum að þingsályktunartillögu. Jafnframt verður kannaður möguleikinn á að lækka álögur á holl matvæli. Heilbrigðisráðherra segir nauðsynlegt að líta til reynslu annarra landa af slíkri skattheimtu og hvort hún hafi skilað jákvæðum árangri.
Drögin eru í samráðsgátt, en þar er meðal annars lagt til að skipaður verði þverfaglegur starfshópur með fulltrúum helstu hagaðila. Markmið hans verði að kanna hvort lægri álögur á grænmeti og ávexti og hækkun skatta á sérlega orkuríkar, næringarlitlar og gjörunnar matvörur, ásamt því að sporna við markaðssetningu óhollra matvæla gagnvart börnum, geti leitt til betri lýðheilsu landsmanna. „En það er ekkert nánar útfært þannig að þessi umræða bíður þessa tilvonandi starfshóps,“ segir Alma Möller heilbrigðisráðherra í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Forræðishyggja en skynsöm leið Alþjóða heilbrigðisstofnunin hefur ítrekað lagt til að farin verði þessi leið og umræða um svonefndan sykurskatt hefur einnig margoft komið til tals hérlendis. Slíkur skattur var raunar lagður á árið 2013 en aflagður um tveimur árum síðar. Og sitt sýnist hverjum. Lýðheilsumarkmiðið er raunar óumdeilt, en sérstakur sykurskattur er hins vegar af mörgum talinn fela í sér forræðishyggju stjórnvalda frekar en skynsama leið til að draga úr neyslu sætinda og óhollra matvæla. Þeir hinir sömu telja að fræðsla og stuðningur við fólk sem vill breyta lifnaðarháttum eða lifa hollara og betra lífi, sé vænlegri leið til árangurs. Verð þarf að hækka um 20% til að sjá breytingar í neysluhegðun Alma segist ekki hafa skoðað nýjustu gögn sem fjalla um slíka skattheimtu, en hún muni fara eftir því sem vísindin segja að virki, verði ákvörðun þar um tekin í framtíðinni. Hins vegar hafi fyrri rannsóknir sýnt að neysla óhollustu minnki, hækki verðlag. „Alveg rétt og það þarf að hækka verðið um svona 20% til að sjá breytingar í neysluhegðun en það verður áhugavert fyrir þennan hóp að skoða hvað hefur gerst á liðnum árum. Ég veit að það er sykurskattur í ákveðnum löndum og bara að sjá hver árangurinn hefur verið. Það skiptir líka miklu máli hvernig útfærsla er,“ segir Alma Möller heilbrigðisráðherra.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Heilbrigðismál Neytendur Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira