Birna fékk skelfilegar fréttir og þarf að hætta Sindri Sverrisson skrifar 14. febrúar 2026 18:43 Birna Valgerður Benónýsdóttir hefur fengið þær fréttir að hún spili líklega ekki aftur körfubolta. Keflavík.is Körfuboltakonan Birna Valgerður Benónýsdóttir hefur neyðst til þess að leggja skóna á hilluna, aðeins 25 ára gömul, og kveðst þurfa tíma til að jafna sig á þessu mikla áfalli. Hún ætlar þó ekki að útiloka að spila aftur í framtíðinni.
Birna greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni í dag en þessi sigursæla landsliðskona úr Keflavík hefur verið afar óheppin með meiðsli sem nú verða þess valdandi að hún þarf að draga sig í hlé. Birna hafði verið einn allra besti leikmaður efstu deildar hér á landi þegar hún sleit krossband í hné vorið 2024. Þessi meiðsli hafa reynst enn alvarlegri og erfiðari viðureignar en búist var við. Birna birti nokkrar myndir af löngum og farsælum ferli sínum í körfuboltanum, þegar hún greindi frá slæmu fréttunum.@birnavalgerdur „Körfubolti hefur verið risastór hluti af lífi mínu síðan ég var 5 ára. Eins og margir vita sleit ég krossband í maí 2024 og hef síðan þá farið í þrjár aðgerðir á hnénu. Eftir síðustu aðgerð fékk ég þær fréttir að skaðinn væri alvarlegri en áður var talið og að mjög ólíklegt sé að ég muni stíga aftur á parketið,“ skrifaði Birna á Facebook. „Verandi þrjósk og ákveðin ætla ég þó ekki að útiloka neitt í framtíðinni – en þetta er staðan í dag. Eðlilega er þetta mikið áfall og mun taka tíma fyrir mig að vinna úr þessu. Næstu mánuðir fara í endurhæfingu og ég held áfram að taka þetta einn dag í einu,“ bætti hún við. Birna spilaði síðast tímabilið 2023-24 og var þá með 14,2 stig og 4,2 fráköst að meðaltali í leik fyrir Keflavík. Þar spilaði hún upp alla yngri flokka og allan sinn feril hér á landi, eftir að hafa fyrst slegið í gegn þegar Keflavík vann tvöfalt árið 2017, en einnig í bandaríska háskólakörfuboltanum. Þá hefur hún einnig leikið með landsliðum Íslands.
Bónus-deild kvenna Keflavík ÍF Körfubolti Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira