Körfubolti

Keyrði marg­oft á bíl körfuboltakonunnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rickea Jackson er öflug körfuboltakona sem sést hér að spila í Unrivaled-deildinni sem fór fram á meðan WNBA er í fríi.
Rickea Jackson er öflug körfuboltakona sem sést hér að spila í Unrivaled-deildinni sem fór fram á meðan WNBA er í fríi. Getty/Megan Briggs

NFL-leikmaður í ástarsorg hefur mögulega eyðilagt feril sinn og er væntanlega á leiðinni í margra ára fangelsi í næstu framtíð.

James Pearce Jr., nýliði Atlanta Falcons, er sagður hafa ekið bíl sínum á bíl WNBA-leikmannsins Rickea Jackson ítrekað og ekið á lögreglumann á flótta undan handtöku.

Pearce var handtekinn um helgina í Flórída og ákærður fyrir fimm alvarleg brot, þar á meðal líkamsárás af ásetningi með banvænu vopni, lífshættulega eftirför og líkamsárás af ásetningi á lögreglumann. Honum var sleppt úr Turner Guilford Knight-fangelsinu á sunnudagskvöld eftir að hafa greitt 20.500 dollara tryggingu.

Sá hann elta bílinn sinn

Jackson, sem spilar með Los Angeles Sparks, sagði lögreglu að hún hefði séð Pearce elta bíl sinn á hvítum Lamborghini-jeppa á laugardagsmorgun. Þegar bíll Jackson stoppaði á rauðu ljósi fór Pearce út úr bíl sínum og reyndi að opna bílhurðina hennar farþegamegin.

Jackson gaf í og ók í átt að lögreglustöðinni í Doral í Flórída. Pearce fór aftur inn í bíl sinn og hélt áfram að elta hana. Á leiðinni að lögreglustöðinni sagði Jackson að Pearce hefði „viljandi ekið á aftanverðan bíl hennar“ með jeppanum sínum. Þegar hún kom að gatnamótunum nálægt lögreglustöðinni sagði Jackson að Pearce hefði lokað fyrir hana með bíl sínum og þegar hún reyndi að bakka og komast í burtu notaði hann bíl sinn til að aka framan á hana.

Lögreglumenn frá Doral komu á vettvang eftir að Jackson hringdi. Samkvæmt vitnisburðinum sáu þeir Pearce standa fyrir utan jeppa sinn bílstjóramegin með opna hurð. Lögreglumaður miðaði byssu á Pearce og skipaði honum að leggjast á jörðina. Pearce fór aftur inn í bíl sinn og lokaði hurðinni. Lögreglumaðurinn opnaði hurðina en Pearce lokaði henni aftur, læsti henni og ók í burtu.

Lögreglan elti bíl Pearce

Þegar Pearce ók í burtu rakst jeppinn á vinstra hné lögreglumanns. Í vitnisburðinum er því lýst sem „viljandi tilraun til að komast undan handtöku“.

Lögreglan elti bíl Pearce á bílum þar til Pearce lenti í árekstri á gatnamótum. Pearce fór þá út úr bíl sínum og flúði á fæti. Lögreglumönnum tókst að ná honum, þó að hann hafi „byrjað að veita mótspyrnu við handtöku með því að spenna handleggina og ekki leyfa lögreglumönnum að handtaka sig“. Það þurfti sjö lögreglumenn á endanum til að snúa hann niður.

Pearce á yfir höfði sér tvær ákærur fyrir líkamsárás af ásetningi með banvænu vopni og eina ákæru fyrir lífshættulega eftirför. Aðrar ákærur eru meðal annars fyrir að flýja undan lögreglu og líkamsárás af ásetningi á lögreglumann – einnig alvarleg brot – og minni háttar ákæru fyrir að veita mótspyrnu við handtöku án ofbeldis.

Voru í sambandi í um þrjú ár

Jackson sagði lögreglu að hún og Pearce hefðu verið í sambandi í um þrjú ár en slitið því nýlega. Jackson lokaði á símanúmer Pearce til að forðast samband við hann, en hann notaði annað númer til að senda henni skilaboð. Í skilaboðum frá Jackson á föstudagseftirmiðdegi bað hún Pearce um að láta sig í friði og að hún vildi ekkert með hann hafa. Skilaboðin frá Pearce héldu áfram að berast frá föstudegi fram á laugardagsmorgun. Jackson sýndi lögreglu skilaboðin.

Pearce, sem varð þriðji í kjörinu á varnarnýliða ársins í NFL á NFL Honors-verðlaunahátíðinni á fimmtudag, setti nýliðamet hjá Falcons með 10,5 leikmannafellingum árið 2025, flestum í liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×