Drama í skíðagöngu Dags: Stytti sér leið en fékk samt silfur Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. febrúar 2026 13:37 Mathis Desloges braut reglur en fékk bara gult spjald. Lars Baron/Getty Images Skíðagangan sem Dagur Benediktsson keppti í fyrir Íslands hönd var ekki laus við dramatík. Silfurverðlaunahafinn stytti sér leið en fékk samt verðlaun.
Hinn franski Mathis Desloges varð annar í mark á eftir Johannes Høsflot Klæbo í 20 kílómetra skiptigöngunni, en í fyrsta hring eftir skiptin úr hefðbundinni göngu yfir í frjálsa aðferð stytti hann sér augljóslega leið. Sjá einnig: Dagur hringaður seint og þurfti að hætta Desloges var þá fremstur á leið í beygju en stytti sér leið, hann fór ekki út fyrir merkingar eins og aðrir keppendur heldur á milli þeirra, eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi og skjáskoti hér fyrir neðan. Ledande fransmannen tar en genväg i herrarnas skiathlon 👀📲 Streama hela OS i Milano Cortina 2026 på HBO Max och se det bästa på Eurosport 1. pic.twitter.com/17uNpuDSGJ— Sports on HBO Max 🇸🇪 (@sportshbomaxse) February 8, 2026 Dómarar keppninnar ákváðu að gefa honum gult spjald fyrir þetta brot en sumir vilja meina að hann hefði átt að vera dæmdur úr leik. „Þetta er bara alveg ótrúlegt ef þú spyrð mig, því hann var fremstur og valdi að fara þessa leið“ sagði Fredrik Aukland, sem lýsti keppninni hjá norska ríkisútvarpinu. Hér má sjá hvernig aðrir keppendur fara út fyrir merkingar brautarinnar en Desloges fer á milli þeirra. NRK Norska skíðasambandið, sem átti hina tvo keppendurna á verðlaunapallinum, ákvað hins vegar að mótmæla dómnum ekki. „Mér finnst hann ekki græða neitt á þessu. Við munum ekki mótmæla gula spjaldinu og fara fram á meira. Hann er fyrstur inn í beygjuna og fyrstur út úr henni, þetta hefði verið öðruvísi ef hann hefði tekið fram úr öðrum. Þetta er augljóst brot á reglum, en út frá aðstæðum í keppninni metum við það þannig að hann hafi ekki grætt neitt á þessu.“ Norðmenn eru greinilega ekki í hefndarhug eftir að hafa verið dæmdir úr leik fyrir eiginlega alveg eins brot á HM í fyrra.
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Sjá meira