Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Agnar Már Másson skrifar 5. febrúar 2026 18:20 Foreldrar barna á Múlaborg kærðu ákvörðun lögreglu eftir að málin voru látin niður falla. Vísir/Anton Brink Lögregla þarf aftur að taka aftur upp rannsókn á tveimur málum sem tengjast meintum kynferðisbrotum fyrrverandi starfsmanns Múlaborgar gegn börnum. Lögregla hafði ákært í einu máli og látið önnur mál niður falla en foreldrar barnanna kærðu ákvörðunina til Ríkissaksóknara, sem hefur nú snúið ákvörðuninni við.
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari staðfestir við Vísi að saksóknaraembættið hafi gert lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að taka aftur upp rannsókn á tveimur málum sem tengjast meintum kynferðisbrotum starfsmanns Múlaborgar gegn börnum á leikskólanum. Rúv greindi fyrst frá. Rúmlega tvítugur karlmaður, starfsmaður leikskólans Múlaborgar, var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald í lok sumars 2025 grunaður um kynferðisbrot gegn barni á leikskólanum Múlaborg. Starfsmaðurinn hefur verið rekinn. Sjá meira: Múlaborgarmálið Mál sautján barna á leikskólanum höfðu verið tekin til skoðunar hjá lögreglunni, foreldrar þrettán barna kærðu meint brot starfsmannsins en rannsókn var hætt hjá tíu þeirra og þrjú send til héraðssaksóknara. Foreldrar fjögurra barna kærðu ákvörðun lögreglunnar til ríkissaksóknara og hefur saksóknaraembættið nú tvö málanna til frekari rannsóknar hjá lögreglu. Enn á eftir að afgreiða hin tvö málin. Rúv kveðst hafa afstöðu ríkissaksóknara undir höndum vegna annars málsins. Þar komi fram að móðir barnsins hafi lýst breytingu á líðan og hegðun barnsins. Maðurinn hafi neitað sök í því máli við skýrslutöku en kannast við að hafa verið einn með barninu í einhver skipti og skipt um bleyju á því. Móðir barnsins hafi gert athugasemdir við að faðir barnsins væri ekki kallaður til skýrslutöku. Fram kemur í svari lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu til ríkissaksóknara, samkvæmt umfjöllun Rúv, að lögreglustjóri hafi metið það svo að ekki væri líklegt að ákærði yrði fundinn sekur með tilliti til sönnunarstöðu í málinu. Þá teldi lögregla að frekari rannsókn væri ekki til þess fallin að bæta sönnunarstöðuna í málinu. Sigríður kvaðst ekki geta afhent afstöðubréfið þegar Vísir hafði samband. Starfsmaðurinn var ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn einu barni í tveimur aðskildum tilvikum. Hann hefur játað sök að hluta og samkvæmt gæsluvarðhaldsúrskurði þykir framburður mannsins samræmast frásögn barnsins af meintum brotum hans.
Grunaður um kynferðisbrot á Múlaborg Reykjavík Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Tengdar fréttir Játaði meira og meira eftir því sem á leið Framburður manns sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn barni sem hann mun hafa framið meðan hann starfaði á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík þótti að mati lögreglu samræmast frásögn barnsins af meintum brotum hans. Maðurinn játaði í skýrslutökum hjá lögreglu að hafa brotið tvívegis á barninu. 23. janúar 2026 09:56 Kæra niðurstöðu lögreglu að loka rannsókn á meintu ofbeldi Deildarstjóri á leikskólanum Múlaborg er komin í veikindaleyfi vegna streitu og álags meðal annars í tengslum við meint kynferðisbrot starfsmanns á deildinni. Foreldrar eins barns hafa kært niðurstöðu lögreglu að loka rannsókn á meintu ofbeldi starfsmannsins gegn barninu þeirra. Móðir stúlku sem greindi frá því fyrir rúmu ári að hana grunaði að brotið hefði verið á dóttur sinni segir allt kerfið hafa brugðist. Fjallað var um málið í Kveik á RÚV í kvöld. 18. nóvember 2025 22:00 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira
Játaði meira og meira eftir því sem á leið Framburður manns sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn barni sem hann mun hafa framið meðan hann starfaði á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík þótti að mati lögreglu samræmast frásögn barnsins af meintum brotum hans. Maðurinn játaði í skýrslutökum hjá lögreglu að hafa brotið tvívegis á barninu. 23. janúar 2026 09:56
Kæra niðurstöðu lögreglu að loka rannsókn á meintu ofbeldi Deildarstjóri á leikskólanum Múlaborg er komin í veikindaleyfi vegna streitu og álags meðal annars í tengslum við meint kynferðisbrot starfsmanns á deildinni. Foreldrar eins barns hafa kært niðurstöðu lögreglu að loka rannsókn á meintu ofbeldi starfsmannsins gegn barninu þeirra. Móðir stúlku sem greindi frá því fyrir rúmu ári að hana grunaði að brotið hefði verið á dóttur sinni segir allt kerfið hafa brugðist. Fjallað var um málið í Kveik á RÚV í kvöld. 18. nóvember 2025 22:00