„Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 4. febrúar 2026 21:01 Þingmennirnir eru eðli málsins samkvæmt með ólíkar hugmyndir um hvernig best sé að bregðast við. Vísir/Samsett Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir nýlegt verðbólguskot beina afleiðingu útgjaldaaukningu ríkisstjórnarinnar. Almenningur borgi fyrir misfellur stjórnvalda en Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar segir um hraðahindrun að ræða.
Nýlegt verðbólguskot má fyrst og fremst rekja til hækkunar á opinberum gjöldum og þjónustu um áramótin, að því er fram kom við kynningu á ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands, sem ákvað að halda vöxtum óbreyttum fram í miðjan mars. Verðbólga mælist nú 5,2 prósent og hefur ekki verið meiri í rúmt ár. Talið er að verðbólga hjaðni á næstu mánuðum og verði fimm prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins, sem er þó meira en gert var ráð fyrir í nóvember. Greiningardeildir hafa spáð því að vaxtalækkun frestist fram á vorið, af þeim sökum. Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar ræddu þráláta verðbólguna í beinni útsendingu í kvöldfréttum en þeir eiga báðir sæti í fjárlaganefnd. Almenningur borgi misfellur Guðlaugur Þór verðbólguskotið ekki koma sér á óvart. „Þetta var allt saman fyrirséð og því miður er það þannig að þegar ríkisstjórnir ganga svona fram þá er það almenningur sem borgar brúsann.“ Dagur B. Eggertsson segir um einskiptisbreytingu að ræða. Það sé hjöðnun í hagkerfinu og verðbólgan á niðurleið. „Þetta er kannski tímabundin hraðahindrun í því en meginstefnan er rétt og þess vegna skiptir máli að anda í gegnum þetta og átta sig á því að þetta eigi ekki að auka verðbólguvæntingar til framtíðar.“ „Þetta eru peningar sem koma inn í ríkiskassann til að borga fyrir átak í samgöngumálum, borga fyrir að bæta vegakerfið og það mun skapa hagvöxt þegar fram í sækir. Þegar við horfum í gegnum þetta er verðbólgan á niðurleið, hagvöxturinn á uppleið og við erum að fara að fjárfesta í mikilvægum innviðum og loka gatinu í ríkisfjármálum sem skiptir bæði máli til langs og skemmri tíma.“ Ekki hraðahindrun heldur gengið þvert á loforð Guðlaugur Þór segir málið klippt og skorið. Til að ná niður verðbólgu þurfi að skila hallalausum fjárlögum og sýna aðhald í útgjöldum. „En það var gert akkúrat öfugt. Við höfum ekki séð aðra eins aukningu í ríkisrekstri í áratugi: 143 milljarðar. Til samanburðar voru þetta 70 milljarðar á kosningaári,“ segir hann. Það sé ekkert plan. „Ég bara trúi því ekki að ég sé hér með forystumanni í stjórnmálum sem horfir í myndavélina og segir: „Nei, nei, skattar hafa ekkert verið hækkaðir.“ Seðlabankastjóri gat ekki sagt þetta skýrara. Þetta er ekki hraðahindrun þetta er þvert á það sem menn sögðu. Menn sögðu: „Kjósið okkur, við erum með sleggju, við ætlum að berja niður vextina og verðbólguna.“ Nú er komið ár og ekkert af því hefur gerst,“ segir Guðlaugur. Einstaka mælingar Dagur ítrekar að um tímabundna hnökra sé að ræða. „Við sjáum hjöðnun í hagkerfinu, verðbólgan er á niðurleið þrátt fyrir þessa tímabundnu hækkun. Við erum að flýta því að ná hallalausum fjárlögum. Við innleiddum stöðugleikaáætlun í þinginu í tengslum við fjármálaáætlun síðastliðið vor. Við erum að reyna að taka á þessu af ábyrgð og festu. Við skorumst ekkert undan því að það er ekki gott að sjá einstakar mælingar á uppleið en meginatriðið er að verðbólgan er á niðurleið. Það er mjög mikilvægt að þetta verði ekki til þess að fólki líði eins og það sé eðlilegt að hækka verð í verslunum eða á dælunni. Við verðum að standa saman um að ná þessum stærðum niður, eins og við höfum talað fyrir, eins og við höfum lagt áætlanir fyrir, eins og Seðlabankinn stefnir að og öll ábyrg öfl í samfélaginu ættu að standa saman um.“
Efnahagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Seðlabankinn Verðlag Alþingi Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Sagði fósturmissinn með vilja gerðan og hótaði að taka frá henni börnin Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Sjá meira