Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Lovísa Arnardóttir skrifar 4. febrúar 2026 11:39 Jón Gunnar segir lögreglu í skýrslutökum og gagnaöflun. Vísir/Ívar Fannar Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurlandi, segir enn skýrslutökur vegna andláts konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Landsréttur hefur ekki úrskurðað um gæsluvarðhaldskröfu lögreglunnar en farið var fram á gæsluvarðhald tveggja starfsmanna en því hafnað í héraðsdómi.
Farið var fram á gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins vegna rannsóknarhagsmuna en samkvæmt heimildum fréttastofu gegnir annar starfsmaðurinn stjórnunarstöðu á hjúkrunarheimilinu. „Við höfum kært niðurstöðuna og höldum kröfunni til streitu,“ segir Jón Gunnar í samtali við fréttastofu. Hann segir lögreglu sinna skýrslutökum í dag og að það sé full vinna í gangi. „Það er enn mikil gagnaöflun í gangi og talsvert af skýrslum, auðvitað skýrist myndin alltaf betur og betur en það er nokkur vinna eftir,“ segir hann. Tilkynning frá starfsmanni Samkvæmt heimildum fréttastofu hóf lögreglan rannsókn á andlátinu eftir tilkynningu frá öðrum starfsmanni hjúkrunarheimilisins í kjölfar lyfjagjafar. Samkvæmt heimildum Vísis lést konan á miðvikudag í síðustu viku eftir að hafa þegið líknandi meðferð á hjúkrunarheimilinu um nokkurt skeið. Rannsókn lögreglu hófst á laugardag en á sunnudag óskaði ríkissaksóknari eftir því við Lögregluna á Suðurlandi að hún tæki yfir rannsóknina af kollegum sínum í Vestmannaeyjum vegna tengsla laganna varðar í Eyjum við hina látnu. Samkvæmt heimildum fréttastofu grunaði fjölskyldu konunnar ekki að andlátið gæti hafa borið að með saknæmum hætti fyrr en lögreglan hafði skyndilega samband um helgina. Útför var áætluð síðar í vikunni en jarðneskar leifar konunnar voru fluttar upp á meginlandið í gær til krufningar.
Lögreglumál Vestmannaeyjar Hjúkrunarheimili Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira