Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Smári Jökull Jónsson skrifar 3. febrúar 2026 18:32 Hjúkrunarheimilið Hraunbúðir sést hér fyrir miðri mynd. Vísir/Atli Már Sæþórsson Héraðsdómur Suðurlands hafnaði nú síðdegis kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestamannaeyjum, sem hafa verið í haldi lögreglu frá því í gær í tengslum við andlát konu á tíræðisaldri. Samkvæmt heimildum fréttastofu hóf lögreglan rannsókn á andlátinu eftir tilkynningu frá öðrum starfsmanni hjúkrunarheimilisins í kjölfar lyfjagjafar.
Konan, sem var 97 ára gömul, lést á miðvikudag í síðustu viku en hún hafði þegið líknandi meðferð á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í aðdraganda andlátsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu grunaði fjölskyldu konunnar ekki að andlátið gæti hafa borið að með saknæmum hætti fyrr en lögreglan hafði skyndilega samband um helgina. Útför var áætluð síðar í vikunni en jarðneskar leifar konunnar voru fluttar upp á meginlandið í gær til krufningar. Jón Gunnar Þórhallsson er yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurlandi.Vísir/Ívar Fannar „Á sunnudaginn núna um helgina þá er haft samband við okkur Lögregluna á Suðurlandi þar sem okkur er falin þessi rannsókn. Rannsóknin beinist að andláti manneskju í Vestmannaeyjum í síðustu viku og við leggjum af stað í þessa rannsókn og erum nú í skýrslutökum og með fólk í Vestmannaeyjum,“ sagði Jón Gunnar Þórhallsson yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurlandi. Gæsluvarðhaldskröfu hafnað Rannsókn málsins er í höndum lögreglustjórans á Suðurlandi en ekki Lögreglunnar í Vestmannaeyjum og er það vegna fjölskyldutengsla starfsmanns þar við málsaðila. Fyrr í dag var farið fram á gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins vegna rannsóknarhagsmuna en samkvæmt heimildum fréttastofu gegnir annar starfsmaðurinn stjórnunarstöðu á hjúkrunarheimilinu. Kröfu lögreglu um gæsluvarðhald var hins vegar hafnað af Héraðsdómi Suðurlands nú síðdegis en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi verður niðurstaða héraðsdóms kærð til Landsréttar. „Við erum með vitni í málinu“ Jón Gunnar segir ekki ljóst hvenær skýrslutökum í málinu verði lokið. Talsvert af gögnum þurfi að yfirfara. „Það er búið að taka skýrslur af sakborninum og þær verða vafalaust fleiri.“ Samkvæmt heimildum fréttastofu hófst rannsókn málsins eftir tilkynningu frá starfsmanni um alvarlegt atvik tengt lyfjagjöf.Vísir/Atli Már Sæþórsson Hafa sakborningar tekið afstöðu til sakargifta? „Ég get ekki tjáð mig um það.“ Samkvæmt heimildum fréttastofu hófst rannsókn málsins eftir að starfsmaður hjúkrunarheimilisins tilkynnti alvarlegt atvik í tengslum við lyfjagjöf. „Við erum með vitni í málinu og þau geta verið af ýmsum toga þannig að þetta eru talsvert margar skýrslutökur sem þurfa að fara fram“
Rannsókn á andláti í Hraunbúðum í Eyjum Lögreglumál Vestmannaeyjar Eldri borgarar Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira