Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Samúel Karl Ólason skrifar 4. febrúar 2026 11:00 Xi Jinping, forseti Kína, hefur staðið í umfangsmiklum hreinsunum meðal æðstu stjórnenda herafla Kína á undanförnum árum. EPA/Maxim Shemetov Xi Jinping, forseti Kína, hefur staðið fyrir miklum hreinsunum innan hersins. Margir háttsettir herforingjar hafa verið sviptir embættum og sakaðir um ýmis brot. Xi skipaði þá flesta sjálfur í stöður þeirra en síðan þá hafa þeir verið settir til hliðar og rannsakaðir fyrir hin ýmsu brot eins og spillingu.
Á undanförnum þremur árum hefur Xi vísað öllum nema einum herforingja úr sjö manna miðstjórn kínverska hersins, sem stýrt er af Xi, og fjarlægt fjölda annarra háttsettra yfirmanna í herafla Kína, samkvæmt greiningu New York Times. Hreinsanirnar hafa náð til allra anga herafla Kína en blaðamenn miðilsins segja umfang þeirra ekki eiga sér hliðstæðu í nútímasögu Kína. Í byrjun árs 2023 var vitað um að minnsta kosti þrjátíu herforingja og aðmírála sem stýrðu herafla Kína að mestu leyti. Síðan þá hafa næstum því allir þeirra verið reknir eða virðast hreinlega horfnir. Það sama eigi einnig við marga af þeim herforingjum sem Xi hafi skipað til að leysa aðra af hólmi. Margir þeirra séu einnig horfnir af sjónarsviðinu í Kína. Við greiningu blaðamanna NYT fundust sjö herforingjar af áðurnefndum þrjátíu, sem vitað er með vissu að eru enn í stöðum sínum. Þeir síðustu sem hurfu á brott eru þeir Zhang Youxia og Liu Zhenli en þeim var vísað úr miðstjórn hersins í lok janúar og eru báðir til rannsóknar vegna meintrar spillingar. Þrír aðrir herforingjar hafa verið reknir úr stjórninni og rannsakaðir á svipuðum grunni. Í samtali við BBC segir Lyle Morris, sérfræðingur í málefnum Kína hjá hugveitunni Asia society policy institute, að herafli Kína sé í basli vegna hreinsananna. Mikið tómarúm hafi skapast á toppnum þar. Varðandi tilefni hreinsana Xi segir Morris að lítið sé vitað með vissu. Margir orðrómar séu á kreiki og tóku aðrir sérfræðingar undir það. Zhang Youxia var eini háttsetti kínverski herforinginn með reynslu af bardögum og gæti brotthvarf hans haft neikvæð áhrif á getu herafla Kína. Zhang Youxia, var varaformaður miðstjórnar kínverska hersins, þar til í lok síðasta mánaðar þegar hann var rekinn og sakaður um spillingu. Einungis einn herforingi situr eftir í stjórninni, með Xi Jinping forseta.AP/Ng Han Guan Ásakanir um spillingu notaðar sem sópur Xi hefur í gegnum árin verið sagður nota ásakanir um spillingu til að sópa pólitískum andstæðingum á brott og hefur hann með þessum hætti tryggt sér nánast ótakmörkuð völd í Kína. Frá því Xi tók við embætti forseta árið 2012 hefur að minnsta kosti 200 þúsund embættismönnum verið refsað vegna ásakana um spillingu. Sjá einnig: Xi festir sig í sessi og setur sig á stall með Mao og Deng Eini herforinginn sem situr enn í miðstjórn hers Kína er Zhang Shengmin en hann hefur stýrt hreinsunum Xi innan hersins á undanförnum árum. Zhang hefur varið stórum hluta ferils síns í að rannsaka spillingu og tryggja hollystu yfirmanna í eldflaugahluta hers Kína, sem stýrir eldflaugum og kjarnorkuvopnum ríkisins. Xi gerði Zhang í fyrra að aðstoðarformanni miðstjórnarinnar en Zhang Youxia var einnig aðstoðarformaður stjórnarinnar áður en honum var vísað úr henni í lok síðasta mánaðar. Stefnir á fjórða kjörtímabilið Xi Jinping er 72 ára gamall og þykir hann líklegur til að sækjast eftir fjórða kjörtímabili sínu sem forseti Kína á næsta ári. Það er kjörtímabil sem hann mun að öllum líkindum fá en hann varð árið 2021 fyrsti leiðtogi Kommúnistaflokks Kína til að tryggja sér þriðja kjörtímabilið. Hann tók fyrst við embættinu árið 2013 en árið 2018 var stjórnarskrá Kína breytt og ákvæði um að forseti mætti ekki sitja lengur en tvö kjörtímabil afnumið. Nú stendur Xi frammi fyrir því að fylla upp í raðirnar á efstu stigum herafla Kína og þarf hann bæði að finna menn sem eru honum hliðhollir og menn sem hafa getu til að stýra hernum. Eins og segir í grein BBC er þó spurning hvort háttsettir yfirmenn í hernum séu ólmir í að láta hækka sig í tign, með tilliti til þess hvað kom fyrir forvera þeirra og áðurnefndar hreinsanir. Embættismenn í Bandaríkjunum hafa sagst hafa heimildir fyrir því að Xi hafi skipað yfirmönnum hers síns að vera tilbúnir til að ráðast á Taívan fyrir árið 2027. Það ár mun marka aldarafmæli kínverska hersins. AP fréttaveitan segir greinendur þeirrar skoðunar að til skemmri tíma dragi hreinsanir Xi úr hættunni á innrás í Tavían. Til lengri tíma sé innrás þó líklegri, þar sem stjórnendur heraflans verði mögulega mun hlýðnari Xi en forverar þeirra.
Kína Tengdar fréttir Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að það væri „afar hættulegt“ fyrir Breta að leitast eftir því að eiga í auknum og nánari samskiptum við Kína. Ummælin lét forsetinn falla eftir að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, átti þriggja tíma fund með Xi Jinping, forseta Kína, í Pekíng. 30. janúar 2026 09:07 Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Í Kína fæddust 7,92 milljónir barna í fyrra. Það er 1,62 milljónum færri börn en fæddust árið 2024 og markar það um sautján prósenta fækkun. Samkvæmt opinberum tölum í Kína hefur fæddum börnum fækkað á hverju ári mörg ár í röð. 20. janúar 2026 16:55 Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna Kínverjar standa nú í umfangsmiklum heræfingum umhverfis Taívan, þar sem þeir líkja eftir lokunum helstu hafna, árásum á skotmörk á sjó og vörnum gegn inngripum þriðju aðila. Yfirvöld í Kína segja um að ræða viðvörun til „aðskilnaðarsinna“ í Taívan. 29. desember 2025 07:48 Japanir saka Kínverja um óvarlega framgöngu í háloftunum Forsætisráðherra Japan segir þarlend stjórnvöld munu grípa til yfirvegaðra en afdráttarlausra viðbragða vegna atviks sem átti sér stað um helgina, þar sem kínverskar herþotur eru sagðar hafa fest radarmið á japanskar herþotur. 8. desember 2025 07:09 Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fleiri fréttir „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Sjá meira
Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að það væri „afar hættulegt“ fyrir Breta að leitast eftir því að eiga í auknum og nánari samskiptum við Kína. Ummælin lét forsetinn falla eftir að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, átti þriggja tíma fund með Xi Jinping, forseta Kína, í Pekíng. 30. janúar 2026 09:07
Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Í Kína fæddust 7,92 milljónir barna í fyrra. Það er 1,62 milljónum færri börn en fæddust árið 2024 og markar það um sautján prósenta fækkun. Samkvæmt opinberum tölum í Kína hefur fæddum börnum fækkað á hverju ári mörg ár í röð. 20. janúar 2026 16:55
Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna Kínverjar standa nú í umfangsmiklum heræfingum umhverfis Taívan, þar sem þeir líkja eftir lokunum helstu hafna, árásum á skotmörk á sjó og vörnum gegn inngripum þriðju aðila. Yfirvöld í Kína segja um að ræða viðvörun til „aðskilnaðarsinna“ í Taívan. 29. desember 2025 07:48
Japanir saka Kínverja um óvarlega framgöngu í háloftunum Forsætisráðherra Japan segir þarlend stjórnvöld munu grípa til yfirvegaðra en afdráttarlausra viðbragða vegna atviks sem átti sér stað um helgina, þar sem kínverskar herþotur eru sagðar hafa fest radarmið á japanskar herþotur. 8. desember 2025 07:09