Upp­gjörið: Tinda­stóll - Grinda­vík 74-99 | Grinda­vík eltir Kefla­vík í úr­slit

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Abby Beeman var frábær fyrir Grindavík í kvöld.
Abby Beeman var frábær fyrir Grindavík í kvöld. vísir / anton

Grindavík er á leið í úrslit VÍS-bikars kvenna í körfubolta eftir öruggan sigur gegn Tindastól í undanúrslitum í kvöld, 74-99. Grindvíkingar mæta Keflavík í Suðurnesjaslag í úrslitum.

Óhætt er að segja að boðið hafi verið upp á kaflaskiptan leik í Smáranum í kvöld. Grindvíkingar byrjuðu á því að skora fyrstu 11 stig leiksins áður en 12-2 áhlaup Stólanna minnkaði muninn niður í eitt stig.

Grindvíkingar náðu aftur upp tíu stiga forskoti, en leiddu með sex stigum að loknum 1. leikhluta, 27-21.

Grindvíkingum gekk hins vegar bölvanlega að koma boltanum ofan í körfuna í upphafi 2. leikhluta og Stólarnir gengu á lagið. Stelpurnar að norðan náðu forystunni í fyrsta skipti í leiknum í stöðunni 34-33, þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir af fyrri hálfleik.

Þá tóku við ótrúlegar lokamínútur fyrri hálfleiks. Grindvíkingar náðu aftur upp 11 stiga forskoti, áður en Marta Hermida setti 11 stig í röð og jafnaði metin. Af þessum 11 stigum komu níu þeirra fyrir utan þriggja stiga línuna og leit út fyrir að staðan yrði jöfn í hálfleik.

Abby Claire Beeman hélt þó ekki og þrumaði niður einum frá miðju í þann mund sem hálfleiksflautið gall og Grindvíkingar leidu því með þremur stigum þegar liðin gengu til búningsherbergja, staðan 47-44.

Eftir jafnan og spennandi fyrri hálfleik fór að draga í sundur með liðunum í þeim seinni. Grindvíkingar héldu Stólunum í skefjum í upphafi 3. leikhluta, en náðu svo upp góðu forskoti um miðbik leikhlutans og leiddu með tíu stigum að honum loknum.

Í 4. leikhluta var svo aldrei spurning hvorum meginn sigurinn myndi enda. Allt í einu voru Grindvíkingar komnir með 23 stiga forskot og sigurinn svo gott sem í höfn.

Stólarnir náðu aðeins að klóra í bakkann næstu mínútur, en Grindavíkurliðið gaf aftur í í lokin og vann að lokum öruggan 25 stiga sigur, 99-74.

Grindvíkingar eru því á leið í úrslit VÍS-bikarsins þar sem liðið mætir Keflavík í Suðurnesjaslag næstkomandi laugardag.

Atvik leiksins

Lokasekúndur fyrri hálfleiks voru hreint út sagt ótrúlegar. Marta Hermida gekk berserksgang og skoraði 11 stig í röð fyrir Tindastólsliðið. Þar af voru þrír þristar og sá síðasti kom þegar hún jafnaði metin þegar um fjórar sekúndur voru eftir af hálfleiknum. Abby Beeman sagði hins vegar hingað og ekki lengra og negldi einum niður frá miðju til að loka hálfleiknum. Alvöru senur.

Stjörnur og skúrkar

Abby Beeman var algjörlega frábær fyrir Grindavík í kvöld og þá sérstaklega í seinni hálfleik. Hún endaði með 29 stig og 11 fráköst, en Ellen Nystrom dró vagninn fyrir liðið í fyrri hálfleik og endaði með 25 stig og 11 fráköst.

Í liði Tindastóls var Madison Sutton atkvæðamest með 26 stig og Marta Hermida skoraði 22.

Dómararnir

Þeir Jóhannes Páll Friðriksson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson og Eggert Þór Aðalsteinsson fengu nokkuð snúið verkefni í kvöld. Á tímabili var farinn að færast hiti í leikinn og bæði lið voru ósátt við ýmsa dóma á sitt hvorum enda vallarins.

Heilt yfir komust þeir félagar þó nokkuð vel frá verkefninu, enda róaðist mannskapurinn töluvert eftir því sem leið á og úrslitin urðu ljósari.

Stemning og umgjörð

Það var góð stemning í Smáranum í kvöld og nokkuð vel mætt. Eðlilega voru færri frá Sauðárkróki í stúkunni, enda langt að fara fyrir leik á miðvikudagskvöldi.

Þó heyrðist vel í fólki í stúkunni, og þá sérstaklega Grindvíkingum í seinni hálfleik.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira