Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Aron Guðmundsson skrifar 31. janúar 2026 13:56 Bræðurnir Hjörtur Ívan Sigbjörnsson og Birkir Fannar Einar Einarsson voru áberandi í bláum landsliðstreyjum Íslands innan um haf rauðklæddra danskra stuðningsmanna í Boxen höllinni í Herning í gær þar sem að fram fór undanúrslitaleikur Íslands og Danmerkur á EM í handbolta. Vísir/Vilhelm Gunnarsson Bræður frá Íslandi vöktu ekki mikla kátínu meðal danskra stuðningsmanna á leik Íslands og Danmerkur í undanúrslitum EM í handbolta í Herning í gær. Í miðri stúku voru þeir, tveir Íslendingar, innan um þúsundir danskra stuðningsmanna. „Við Íslendingar eigum alveg sama tilverurétt þarna og aðrir,“ segir annar bróðirinn í samtali við Vísi.
Það var alveg verið að hreyta ýmsu í okkur en það var allt á dönsku. Ég hefði neitað að tala dönsku á sunnudögum fyrir hundrað árum, við erum ekkert að fara byrja tala dönsku núna Birkir Fannar Einar Einarsson Það var Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, sem náði þessari frábæru ljósmynd sem er einhvern veginn svo lýsandi fyrir baráttuna sem Strákarnir okkar háðu í undanúrslitum EM gegn besta landsliði í heimi, ríkjandi heims- og ólympíumeisturum Danmerkur á þeirra eigin heimavelli í Boxen í Herning. „Mér finnst þetta líka skemmtileg birtingarmynd svona með sögu Danmerkur og Íslands til hliðsjónar,“ segir Birkir Fannar Einar Einarsson í samtali við Vísi. Við sjáum hann á ljósmynd Vilhelms með bróður sínum Hirti Ívan Sigbjörnssyni . „Það var bullandi einokunarverslun þarna í gangi og eins og segir í tímaritinu Verðandi sem kom út í Kaupmannahöfn í kringum 1882, þar sem að fyrsta línan var „Ég elska þig stormur.“ Þar kemur sjálfstæðisbaráttan. Þetta var dálítið þannig. Við bræðurnir vorum þarna fastir inn í einhverjum stormi en þetta var rosalegt.“ Birkir Fannar Einar Einarsson er hér vinstra megin á myndinni og honum við hlið er bróðir hans Hjörtur Ívan Sigbjörnsson en saman studdu þeir við bakið á íslenska landsliðinu umkringdir Dönum í undanúrslitum EMVísir/Aðsend mynd Leiknum lauk með þriggja marka tapi 31-28 en hetjuleg barátta íslensku landsliðsmannanna stendur upp úr. Ekki beint í uppáhaldi Bræðurnir höfðu mikla trú á Strákunum okkar og urðu sér út um miða áður en það varð öruggt að íslenska landsliðið myndi komast í undanúrslit mótsins. „Við höfðum bara mikla trú á strákunum. Við höfðum ekki hugmynd um það hvar eða hvernig miðarnir sem við keyptum væru, náðum bara að redda þeim með miklum herkjum.“ Ferðalagið hjá þeim hófst klukkan fjögur í gærmorgun „Við komum svo eiginlega bara beint á leikinn eftir einhverjar níu klukkustundir af flug- og lestarferðum. Beint inn í haf af rauðum treyjum, ég hafði bara aldrei séð annað eins. Það var lítil hrifning hjá Dönunum með okkur.“ „Erum vel hásir í dag“ Svo fór að bræðurnir lentu nánast í miðju einnar stúku fyrir aftan annað markið og þar voru þeim umkringdir þúsundum danskra stuðningsmanna. „Við gerðum okkur og landsliðinu kannski smá óleik. Það voru alveg læti í okkur í stúkunni en í hvert skipti sem við byrjuðum fór allur þessi veggur af dönskum rauðklæddum stuðningsmönnum í gang. Tilfinningin var eins og við værum boðflennur í einkapartýi en sýnir líka hvað fyrirkomulagið er fáránlegt í kringum miðasöluna á þessa leiki. Við Íslendingar eigum alveg sama tilverurétt þarna og aðrir. Við létum þetta ekkert á okkur fá, erum alveg vel hásir í dag. Við erum báðir þannig úr garði gerðir að vera ekkert að láta einhverja fimm þúsund Dani hræða okkur. Það kom samt alveg tímapunktur þar sem að þeir þjörmuðu að okkur. En maður bara tvíeflist í því. Það var alveg verið að hreyta ýmsu í okkur en það var allt á dönsku. Ég hefði neitað að tala dönsku á sunnudögum fyrir hundrað árum, við erum ekkert að fara byrja tala dönsku núna.“ Danirnir bauluðu út í eitt Þetta er ekki fyrsti leikurinn sem bræðurnir sækja með íslenska landsliðinu en það er eitt sérstakt við framkomu danskra stuðningsmanna sem er þeim ekki til framdráttar. „Þetta er eina liðið sem baular á hin liðin. Þeir eru mjög duglegir að baula á andstæðinga, mér finnst önnur lið ekki gera það. Svo bauluðu þeir líka á myndskeið sem var sýnt fyrir leik þar sem að fyrirliðar liðanna biðja stuðningsmenn um að bera virðingu fyrir liði og stuðningsmönnum mótherjans. Þeir byrjuðu bara um leið að baula á það.“ Bræðurnir eru miklir handboltaáhugamenn og koma úr handboltafjölskyldu. Faðir þeirra, Sigbjörn Þór Óskarsson, átti sinn feril sem leikmaður og var þjálfari ÍBV vel og lengi. „Við ólumst báðir upp á meistaraflokksæfingum hjá ÍBV. Þar var Kári Kristján meðal annars sprikklandi sem unglingur. Við erum því miklir stuðningsmenn handbolta og höfum fylgt ÍBV og íslenska landsliðinu alla tíð.“ Vilja hjálpa strákunum að sækja bronsið Mótinu er ekki lokið hjá Strákunum okkar. Þær mæta Króötum Dags Sigurðssonar í enn eitt skiptið í bronsleik EM á morgun í Boxen höllinni í Herning. Þar vilja bræðurnir frá Íslandi vera í stúkunni en hefur ekki tekist að verða sér út um miða. „Við erum í mikilli örvæntingu að reyna verða okkur út um miða á bronsleikinn á morgun. Ég væri alveg til í að endurtaka leikinn ef við fáum miða, jafnvel henda mér í þýsku landsliðstreyjuna og vera á sama stað í stúkunni í úrslitaleiknum seinna um daginn. Vonandi hefnir Alfreð Gísla fyrir leikinn í gær.“ Bræðurnir sáu með berum augum frábæra frammistöðu Strákanna okkar sem sýndu hetjulega baráttu. „Leikurinn var frábær, strákarnir geggjaðir og þetta lið er bara hrikalega flott. Ef við hefðum unnið þennan leik í gær þá er ég nokkuð viss um að við bræðurnir hefðum endað á spítala en við vorum alveg tilbúnir í að taka sénsinn á því. Við fengum frábæran leik, vantaði bara herslumuninn. Frammistaðan frábær.“
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Handbolti Tengdar fréttir Svaf yfir sig og missti af rútunni Orri Freyr Þorkelsson kom með seinni skipum á fjölmiðlahitting íslenska landsliðsins í Herning í Danmörku eftir langa nótt. Stór hluti íslenska hópsins fékk að sofa út. 31. janúar 2026 12:46 Danir láta Gísla heyra það eftir gagnrýni: „Haltu kjafti Ísland“ Fjallað er um gagnrýni íslenska landsliðsmannsins Gísla Þorgeirs Kristjánssonar í garð dómara undanúrslitaleiksins gegn Dönum á danska miðlinum TV 2 núna í morgun og ekki eru allir á eitt sammála honum í þeim efnum. 31. janúar 2026 10:06 EM í dag: Pirruðu danska blaðamenn og truflun í boði skattgreiðenda Langur dagur er að kveldi kominn í Herning eftir undanúrslitaleiki á EM karla í handbolta. Strákarnir okkar stóðu vel í besta liði heims en leika um brons. 30. janúar 2026 23:57 Tekur Gísli of mikið pláss frá Ómari? Sérfræðingar Besta sætisins eru á því að finna þurfi jafnvægið á milli Gísla Þorgeirs Kristjánssonar og Ómars Inga Magnússonar í leik íslenska landsliðsins. Þegar að það náist geti farið að horfa í að vinna till gullverðlauna á stórmóti. 31. janúar 2026 09:38 HSÍ ósátt við EHF: Skikkaðir á viðburð morguninn eftir langa nótt Fulltrúar HSÍ í Herning eru ekki parsáttir við skipulag EHF á úrslitahelginni. Vansvefta starfsmenn voru skikkaðir á fjölmiðlaviðburð í morgunsárið. 31. janúar 2026 08:39 Pytlick: „Ísland átti meira skilið í kvöld“ Danska stórskyttan Simon Pytlic skoraði fimm mörk fyrir Dani í sigrinum á Íslandi í undanúrslitum EM í kvöld og hann var öflugur á lokasprettinum í leiknum þegar danska liðið landaði sigrinum. Pytlick hrósaði íslenska liðinu eftir leik. 30. janúar 2026 23:12 „Allt til staðar svo að þetta lið geti barist við Dani um gull“ Sérfræðingar Besta sætisins segja reynslu kvöldsins í tapleik í undanúrslitum EM gegn ríkjandi heims- og ólympíumeisturum Dana, vörðu á leið Strákana okkar sem hafi allt til alls til þess að berjast um gullmedalíur við Danina á komandi árum. 31. janúar 2026 00:17 Leikmaður Dana fór á sjúkrahús eftir leikinn í kvöld Danska landsliðið komst í kvöld í úrslitaleikinn á Evrópumótinu en liðið þurfti að spila seinni hálfleikinn án eins síns besta varnarmanns. 30. janúar 2026 22:54 Skýrsla Henrys: Strákarnir okkar eru orðnir stórir Draumurinn um gull á EM er dáinn en draumurinn um verðlaun lifir. Ísland mun spila um bronsverðlaun á sunnudaginn eftir tap, 31-28, gegn frábæru liði Dana. Frammistaða strákanna okkar var þó hetjuleg. 30. janúar 2026 22:45 Einkunnir Strákanna okkar á móti Danmörku: Hetjuleg frammistaða gegn heimsmeisturunum Íslenska karlalandsliðið í handbolta leikur um 3. sætið á Evrópumótinu. Þetta var ljóst eftir þriggja marka tap Íslands fyrir Danmörku, 31-28, í undanúrslitum í Jyske Bank Boxen í Herning í kvöld. Frammistaða íslenska liðsins var til mikillar fyrirmyndar en fjórfaldir heimsmeistarar Dana náðu yfirhöndinni um miðjan seinni hálfleik og lönduðu sigrinum. 30. janúar 2026 21:52 Tölurnar á móti Dönum: Danir náðu fjörutíu stoppum og fjögur vítaklúður Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með þremur mörkum í hörkuleik á móti Dönum, 28-31, í undanúrslitaleiknum á Evrópumótinu í handbolta 2026. 30. janúar 2026 21:45 Mest lesið Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ Íslenski boltinn Fann ekkert atvinnumannalið í Þorlákshöfn: „Þeir hefðu getað tapað svona 30-0“ Fótbolti „Sé ekki að almannahagsmunir séu ríkari hér en í Danmörku eða Svíþjóð“ Sport Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Íslenski boltinn David James þjálfar markverði Vals Íslenski boltinn Breytti aðeins til og bætti heimsmetið í fimmtánda sinn Sport Ótrúleg sigurganga Klæbo endaði með árekstri og spítalaferð Sport Hættir í NFL til að fara að bjarga mannslífum Sport „Allir hjá Manchester United elska hann“ Enski boltinn Glæsimark og ískaldur Albert tryggðu sigur Fótbolti Fleiri fréttir Tvisvar markakóngur fyrir tvítugt „Þetta er svolítið skrítið því ég vil ekki „jinxa“ neitt“ „Þórsarinn er svo geggjaður“ Þór - KA 31-31 | Allt jafnt í æsispennandi Akureyrarslag FH - ÍR 34-28 | FH sendi ÍR niður um deild „Þú ert að biðja mig um að finna eitt stig“ Valur sótti deildarmeistaratitil til Eyja Orri fagnaði dramatískum sigri og fer til Póllands Íslendingaliðið lauk leik með tapi en Bjarki Már mætir GOG eða PSG Rosaleg lokaumferð: Þrjú lið geta unnið titil og þrjú í fallhættu Viktor Gísli frábær og Barca endaði á toppnum „Fannst tilvalið að vera með í þessu“ Björgvin ekki af baki dottinn: „Bara eins lengi og mín er þörf“ Íslendingaliðið tapaði stórt en fer í umspil Viggó á leið í topplið í bestu deild í heimi? Ótrúleg dramatík í Íslendingaslag þar sem örlögin réðust „Ísak getur verið okkar framtíðar markvörður“ Samningaviðræður Snorra við HSÍ standa enn yfir: „Ég er alltaf bjartsýnn“ „Ég veit ekki hvaða gjöf þú ert að tala um“ Þrjú lið geta orðið deildarmeistarar | ÍR-ingar eygja enn von KA 25-30 FH | Hafnfirðingar tryggðu heimavallarrétt Ýmir og félagar með tvo sigra í röð í fyrsta sinn í fjóra mánuði Fá Egypta í Höllina fyrir HM og heimsækja þá líka Ómar á fæðingardeild en Snorri valdi sinn sterkasta hóp Svona var fyrsti fundur Snorra eftir EM Sjáðu markasýningu Viggós í dag Á góðri leið með því að tvöfalda framlagið sitt frá því í fyrra Sigurjón með 61 prósent markvörslu í norsku deildinni Haukur þriðji tíu marka maður Íslands í þýsku deildinni í dag Uppgjör: Svartfjallaland - Ísland 33-24 | Hér varð hrun Sjá meira
Svaf yfir sig og missti af rútunni Orri Freyr Þorkelsson kom með seinni skipum á fjölmiðlahitting íslenska landsliðsins í Herning í Danmörku eftir langa nótt. Stór hluti íslenska hópsins fékk að sofa út. 31. janúar 2026 12:46
Danir láta Gísla heyra það eftir gagnrýni: „Haltu kjafti Ísland“ Fjallað er um gagnrýni íslenska landsliðsmannsins Gísla Þorgeirs Kristjánssonar í garð dómara undanúrslitaleiksins gegn Dönum á danska miðlinum TV 2 núna í morgun og ekki eru allir á eitt sammála honum í þeim efnum. 31. janúar 2026 10:06
EM í dag: Pirruðu danska blaðamenn og truflun í boði skattgreiðenda Langur dagur er að kveldi kominn í Herning eftir undanúrslitaleiki á EM karla í handbolta. Strákarnir okkar stóðu vel í besta liði heims en leika um brons. 30. janúar 2026 23:57
Tekur Gísli of mikið pláss frá Ómari? Sérfræðingar Besta sætisins eru á því að finna þurfi jafnvægið á milli Gísla Þorgeirs Kristjánssonar og Ómars Inga Magnússonar í leik íslenska landsliðsins. Þegar að það náist geti farið að horfa í að vinna till gullverðlauna á stórmóti. 31. janúar 2026 09:38
HSÍ ósátt við EHF: Skikkaðir á viðburð morguninn eftir langa nótt Fulltrúar HSÍ í Herning eru ekki parsáttir við skipulag EHF á úrslitahelginni. Vansvefta starfsmenn voru skikkaðir á fjölmiðlaviðburð í morgunsárið. 31. janúar 2026 08:39
Pytlick: „Ísland átti meira skilið í kvöld“ Danska stórskyttan Simon Pytlic skoraði fimm mörk fyrir Dani í sigrinum á Íslandi í undanúrslitum EM í kvöld og hann var öflugur á lokasprettinum í leiknum þegar danska liðið landaði sigrinum. Pytlick hrósaði íslenska liðinu eftir leik. 30. janúar 2026 23:12
„Allt til staðar svo að þetta lið geti barist við Dani um gull“ Sérfræðingar Besta sætisins segja reynslu kvöldsins í tapleik í undanúrslitum EM gegn ríkjandi heims- og ólympíumeisturum Dana, vörðu á leið Strákana okkar sem hafi allt til alls til þess að berjast um gullmedalíur við Danina á komandi árum. 31. janúar 2026 00:17
Leikmaður Dana fór á sjúkrahús eftir leikinn í kvöld Danska landsliðið komst í kvöld í úrslitaleikinn á Evrópumótinu en liðið þurfti að spila seinni hálfleikinn án eins síns besta varnarmanns. 30. janúar 2026 22:54
Skýrsla Henrys: Strákarnir okkar eru orðnir stórir Draumurinn um gull á EM er dáinn en draumurinn um verðlaun lifir. Ísland mun spila um bronsverðlaun á sunnudaginn eftir tap, 31-28, gegn frábæru liði Dana. Frammistaða strákanna okkar var þó hetjuleg. 30. janúar 2026 22:45
Einkunnir Strákanna okkar á móti Danmörku: Hetjuleg frammistaða gegn heimsmeisturunum Íslenska karlalandsliðið í handbolta leikur um 3. sætið á Evrópumótinu. Þetta var ljóst eftir þriggja marka tap Íslands fyrir Danmörku, 31-28, í undanúrslitum í Jyske Bank Boxen í Herning í kvöld. Frammistaða íslenska liðsins var til mikillar fyrirmyndar en fjórfaldir heimsmeistarar Dana náðu yfirhöndinni um miðjan seinni hálfleik og lönduðu sigrinum. 30. janúar 2026 21:52
Tölurnar á móti Dönum: Danir náðu fjörutíu stoppum og fjögur vítaklúður Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með þremur mörkum í hörkuleik á móti Dönum, 28-31, í undanúrslitaleiknum á Evrópumótinu í handbolta 2026. 30. janúar 2026 21:45