Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Hólmfríður Gísladóttir skrifar 27. janúar 2026 06:48 Bovino hefur verið andlit aðgerðanna í Minneapolis, enda jafnan sá eini á vettvangi sem ekki hefur borið einhvers konar grímu til að fela sig á bak við. Getty/Anadolu/Lokman Vural Elibol Svo virðist sem gríðarleg reiði og hörð gagnrýni vegna framgöngu innflytjendayfirvalda í Minneapolis sé farin að hafa áhrif á stjórnvöld vestanhafs en erlendir miðlar greina frá því að ákvörðun hafi verið tekin um að láta Greg Bovino, sem farið hefur fyrir aðgerðum í borginni, snúa aftur til fyrri starfa í Kaliforníu.
Bovino, sem oftar en ekki hefur verið eini fulltrúi yfirvalda á vettvangi sem hefur ekki borið grímu, hefur gengið langt í að verja framgöngu undirmanna sinna og jós meðal annars lofi á mennina sem skutu hjúkrunarfræðinginn Alex Pretti til bana um síðustu helgi. Þá vakti hann mikla athygli fyrir klæðnað sinn á dögunum, þegar hann fór fyrir mönnum sínum íklæddur kuldafrakka sem þótti minna óhugnanlega á klæðnað leiðtoga Þriðja ríkisins. Over the weekend, Border Patrol official Greg Bovino paid a visit to the anti-ICE protests taking place in Minneapolis. Videos of Bovino in a long green trench coat, walking around with a gaggle of ICE agents flanking him, wagging his finger and yelling at no one in particular,… pic.twitter.com/sbhPpRxWlW— New York Magazine (@NYMag) January 22, 2026 Mikil reiði greip um sig í kjölfar þess að fulltrúi innflytjenda- og tollaeftirlits Bandaríkjanna (ICE) skaut hina 37 ára Renée Good til bana í Minneapolis fyrr í janúar, þar sem hún var á leið heim eftir að hafa ekið syni sínum í skólann. Reiðin magnaðist enn þegar Pretti var skotinn allt að tíu sinnum á laugardag, þegar hann reyndi að koma konu til aðstoðar sem fulltrúi ICE hafði hrint í götuna. Líkt og gerðist í kjölfar drápsins á Good voru talsmenn Bandaríkjastjórnar fljótir að koma ICE til varna og fordæmdu meðal annars Pretti fyrir að hafa verið vopnaðan. Þetta varð hins vegar til þess að magna gagnrýnina, þar sem samtök skotvopnaeigenda og ýmsir Repúblikanar brugðust hinir verstu við og bentu á að Pretti hefði haft leyfi til að bera vopn og verið í fullkomnum rétti. Greiningar á myndefni frá atvikinu leiddi einnig í ljós að hann hafði verið afvopnaður áður en hann var ítrekað skotinn þar sem hann lá í jörðinni. Vísir greindi frá því í gær að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði ákveðið að senda Tom Homan, fyrrverandi yfirmann ICE sem nú fer fyrir landamæramálum, til Minneapolis til að freista þess að draga úr spennu. Þá virtist Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Trump, leitast við að fjarlægja forsetann frá yfirlýsingum samverkamanna hans á blaðamannafundi í gær. Þar var hún meðal annars spurð út í ummæli Stephen Miller, eins helsta ráðgjafa Trump, um að Pretti hefði verið hryðjuverkamaður sem reyndi að myrða fulltrúa ICE en í stað þess að svara ítrekaði Leavitt að hún hefði ekki heyrt forsetann lýsa þessari afstöðu og að hann vildi bíða eftir niðurstöðum rannsókna. Áður hefur verið greint frá því að líkt og þegar Good var banað hefur staðaryfirvöldum verið haldið frá rannsókn árásarinnar á Pretti.
Bandaríkin Donald Trump Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Innlent Fleiri fréttir Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Sjá meira