Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Sif Sigmarsdóttir skrifar 22. janúar 2026 07:01 Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi. Vísir/Sara Rut Ég sat skömmustuleg við eldhúsborðið og skrollaði á Facebook yfir afgöngum af jólakonfekti – þar fór súkkulaði- og samfélagsmiðlabindindi janúarmánaðar fyrir bí – þegar mér svelgdist skyndilega á. „
Hei,“ hrópaði ég. Eiginmaðurinn kom hlaupandi. Ég þóttist greina fordæmingu í andlit hans. Hann hafði þó engan rétt til að dæma mig. Hélt hann að ég vissi ekki að hann laumaðist sjálfur á Twitter á klósettinu þrátt fyrir sameiginlegt áramótaheit? „Veistu hvað Stefán Einar var að segja í Þjóðmálum?“ spurði ég. Eiginmaðurinn dró símann upp úr vasanum eins og Lukku Láki skammbyssu úr slíðri. Hann opnaði símann með andlitinu. ÞÚ TRÚIR EKKI HVAÐ GERÐIST NÆST! Í villu og svíma Ummæli viðskiptasiðfræðingsins og fjölmiðlamannsins Stefáns Einars Stefánssonar um rithöfundinn og matgæðinginn Nönnu Rögnvaldardóttur í hlaðvarpinu Þjóðmál ollu uppnámi á Facebook í síðustu viku. Þjóðmálum er ekkert óviðkomandi. Kvað Stefán Einar Nönnu farna að líkjast færeysku skerpukjöti, sem hlyti að skýrast af því að hún væri komin á Ozempic. „Hver vill borða mat frá svona konu? Mynduð þið kaupa matreiðslubækur frá henni?“ spurði Stefán Einar þáttargesti, þar sem hann sat í myndveri með sólgleraugu og rauðvínsglas. „Ég bara missi matarlystina við tilhugsunina.“ Stefán Einar var í kjölfarið úthrópaður „hálfviti“, „skítseiði“, „ógeð“, „ómerkingur“, „kúkur“, „skítaköggull“, „skíthæll“ og „siðspilltur dóni“ svo fátt eitt sé nefnt. Þeir sem töldu hneykslun sína framlag í baráttu gegn hinum meinta „óþverra“, „mannleysu“, „helvítis skoffíni“, „ömurlegri Moggadruslu“ og „sífullum kókhaus“ óðu hins vegar í villu og svíma. Ekki lengur brandari Síðastliðinn þriðjudag var ár liðið frá því að Donald Trump tók við embætti forseta Bandaríkjanna öðru sinni. Þegar Trump lýsti því yfir í júní árið 2015, að hann hygðist gefa kost á sér sem frambjóðandi Repúblikana í komandi forsetakosningum, benti fátt til þess að hann yrði sigurstranglegur. Skoðanakannanir sýndu sáralítið fylgi og álitsgjafar lýstu framboðinu sem brandara. Hvað gerðist? Kjörskilyrði fyrir moldvörpur Í kjölfar skerpukjötsskandalsins velti rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl fyrir sér hvers vegna Stefán Einar fengi að reka hlaðvarp sitt hjá „borgaralegasta málgagni landsins“ en neyddist ekki til að reka það „úr kjallara móður sinnar einsog hinar andlegu moldvörpurnar á nasistarófinu“. Andlegar moldvörpur skríða nú víða úr fylgsnum sínum. Er ástæðan skilyrði sem sköpuðust með tilkomu athyglishagkerfisins. Athygli fólks er ein verðmætasta auðlind veraldar í dag. Þeim, sem tekst að fanga athygli okkar, eru allir vegir færir. Gildir einu hvort um ræðir stjórnmálamann, hlaðvarpsstjóra, tæknifyrirtæki eða áhrifavald. Ofgnótt upplýsinga hefur hins vegar leitt til harðnandi baráttu um athyglina. Stöðugt þarf meira til að ná eyrum okkar; djarfari yfirlýsingar, öfgafylltri upphrópanir. Fátt grípur athyglina hraðar en það sem hneykslar okkur. Það sem eiginmaður minn gerði Hvað gerði eiginmaður minn í kjölfar þess að ég greindi honum frá ummælum Stefáns Einars Stefánssonar um Nönnu Rögnvaldardóttur? Jú, hann kveikti beint á Þjóðmálum. Leiktækið „whac-a-mole“ sést í leiktækjasölum víða um heim en leikurinn gengur út á að reka moldvörpur, sem skjótast upp úr holum sínum, aftur ofan í myrkrið með því að slá þær með hamri. Andlegar moldvörpur skríða nú víða úr fylgsnum sínum.Vísir/Getty Hinar andlegu moldvörpur sem leita nú í ljósið verða ekki kveðnar í kútinn með hamri hneykslunar og reiði. Í fyrstu ræðu sinni sem forsetaframbjóðandi kynnti Trump til leiks þá aðferðafræði sem fleytti honum í forsetastól: „Þeir koma með fíkniefni, þeir koma með glæpi, þetta eru nauðgarar,“ sagði hann um mexíkósku þjóðina og kvaðst mundu reisa vegg á landamærum Bandaríkjanna. Donald Trump varð forseti því honum tókst að stela athyglinni með svo yfirgengilegum staðhæfingum að ekki virtist annað hægt en að beina að honum sjónvarpsmyndavélunum. En við höfum val. Herra forseti, Stefán Einar Stefánsson Málsvarar Nönnu Rögnvaldardóttur, sem andmæltu orðum Stefáns Einars, jusu hana lofi með orðum á borð við „djásn“ og „þjóðargersemi“. Efaðist einhver um að Nanna stæði undir hólinu var rithöfundurinn ekki lengi að taka af allan vafa. Þegar Vísir náði tali af Nönnu, sem stödd var á Azor-eyjum, sagðist hún hafa hlegið ógurlega af orðum viðskiptasiðfræðingsins. „Mér dettur ekki í hug að taka svona illa. Ekki frá manni eins og Stefáni Einari.“ Kvað hún enga ástæðu til að reiðast fyrir sína hönd. Það er á vængjum hneykslunar okkar sem hinn umdeildi hlaðvarpsstjóri hefst til metorða. Fái eldur hins vegar ekki súrefni slokknar hann. Nanna Rögnvaldardóttir kann þá list að taka á andlegum moldvörpum athyglishagkerfisins. Viljum við ekki heyra orðin „herra forseti, Stefán Einar Stefánsson“ í nánustu framtíð ættum við öll að lesa næstu bók Nönnu Rögnvaldardóttur sem ber vonandi titilinn: Draumalandið – Sjálfshjálparbók handa hneykslaðri þjóð.
Samhengið með Sif Hlaðvörp Þyngdarstjórnunarlyf Matur Menning Donald Trump Tengdar fréttir Líkti Nönnu við skerpukjöt og uppskar gífurlega reiði Ummæli fjölmiðlamannsins Stefáns Einars Stefánssonar um útlit Nönnu Rögnvaldardóttur rithöfundar í Þjóðmálum hafa vakið ofsareiði á samfélagsmiðlum. Stefán Einar segir að sér þyki ágætt að sjá menningarelítu landsins ærast vegna málsins en sjálf segir Nanna það óþarft að reiðast fyrir hennar hönd. 12. janúar 2026 15:21 Donald Trump vill verða forseti Bandaríkjanna Milljarðarmæringurinn tilkynnti um framboð sitt í dag. 16. júní 2015 16:11 Rasísk ummæli Trump valda uppnámi Trump kallaði Mexíkómenn nauðgara og morðingja. Stór fyrirtæki lýsa yfir andúð á ummælunum. 3. júlí 2015 12:00 Trump borgar vegginn með tollheimtu Vinsælasta forsetaefni Repúblikana kynnir áætlun sína til þess að stemma stigu við innflytjendum. 17. ágúst 2015 07:00 Donald Trump kjörinn forseti Bandaríkjanna Kallar eftir einingu innan landsins og segist ætla að verða forseti allra íbúa Bandaríkjanna. 9. nóvember 2016 07:30 Múrinn hans Donald Trump: Um hvað snýst málið? Bandaríkjaforseti skrifaði í vikunni undir tilskipun um að framkvæmdir skuli hefjast við byggingu ókleifs múrs á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó eins fljótt og auðið er. 27. janúar 2017 12:45 Er hneykslun að verða þjóðarsport Íslendinga? Það virðist vera sem svo að við njótum þess að dreifa óhróðri um aðra, hneykslast og skammast. 1. desember 2016 22:35 Mest lesið Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Seyfried syrgir Finn sinn Lífið Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Lífið Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Lífið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Gosling verður Skrattakollur Bíó og sjónvarp Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Fleiri fréttir Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Sjá meira
Líkti Nönnu við skerpukjöt og uppskar gífurlega reiði Ummæli fjölmiðlamannsins Stefáns Einars Stefánssonar um útlit Nönnu Rögnvaldardóttur rithöfundar í Þjóðmálum hafa vakið ofsareiði á samfélagsmiðlum. Stefán Einar segir að sér þyki ágætt að sjá menningarelítu landsins ærast vegna málsins en sjálf segir Nanna það óþarft að reiðast fyrir hennar hönd. 12. janúar 2026 15:21
Donald Trump vill verða forseti Bandaríkjanna Milljarðarmæringurinn tilkynnti um framboð sitt í dag. 16. júní 2015 16:11
Rasísk ummæli Trump valda uppnámi Trump kallaði Mexíkómenn nauðgara og morðingja. Stór fyrirtæki lýsa yfir andúð á ummælunum. 3. júlí 2015 12:00
Trump borgar vegginn með tollheimtu Vinsælasta forsetaefni Repúblikana kynnir áætlun sína til þess að stemma stigu við innflytjendum. 17. ágúst 2015 07:00
Donald Trump kjörinn forseti Bandaríkjanna Kallar eftir einingu innan landsins og segist ætla að verða forseti allra íbúa Bandaríkjanna. 9. nóvember 2016 07:30
Múrinn hans Donald Trump: Um hvað snýst málið? Bandaríkjaforseti skrifaði í vikunni undir tilskipun um að framkvæmdir skuli hefjast við byggingu ókleifs múrs á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó eins fljótt og auðið er. 27. janúar 2017 12:45
Er hneykslun að verða þjóðarsport Íslendinga? Það virðist vera sem svo að við njótum þess að dreifa óhróðri um aðra, hneykslast og skammast. 1. desember 2016 22:35