„Ég held að þetta verði bara betra héðan í frá“ Siggeir Ævarsson skrifar 15. janúar 2026 22:07 Hilmar Smár á fleygiferð í leiknum í kvöld. Hann skilaði 18 stigum í hús á rúmum 22 mínútum. Vísir/Vilhelm Hilmar Smári Henningsson lék sinn fyrsta deildarleik fyrir Stjörnuna í kvöld eftir heimkomuna frá Litáen. Hann segist vera að lenda á hlaupum en aðlögunin gangi hratt og vel fyrir sig.
Aðspurður um hvernig tilfinningin væri að vera kominn aftur heim stóð ekki á svari hjá Hilmari. „Bara frábær sko. Mér finnst við vera á góðu róli. Mér finnst við byrja þetta þrusuvel. Við erum með drullugóða orku og við erum með menn sem eru tilbúnir að leggja á sig til að vinna leiki og það sést greinilega á vellinum að menn eru tilbúnir að gera allt til þess að vinna.“ „Ég held að þetta verði bara betra héðan í frá. Ég er ekki alveg kominn inn í sama flæði og liðið er búið að vera að byggja upp. En það kemur bara með æfingunum og leikjunum og smátt og smátt verður þetta bara geggjað. Ég er sáttur nú þegar og verð svo bara ennþá glaðari þá.“ Þó svo að Hilmar sé að koma inn í lið Stjörnunnar á miðju tímabili er ekki eins og hann sé að koma í algjörlega framandi umhverfi og það hjálpar vissulega með aðlögunina. „Já, auðvitað. Í grunninn svipað kerfi og sami þjálfari og teymi í kringum mig og allt það. Þannig að breytingin var mjög þægileg en á sama tíma þá er ástæða fyrir því að menn eru með undirbúningstímabil, til að smella saman og kunna að spila hver með öðrum. Við erum bara að gera það á meiri hraða en við þurfum og það bara gengur vel og verður bara ennþá betra.“ Stjarnan var í miklum ham í upphafi leiks í kvöld og var komin 25 stigum yfir þegar leikurinn var varla byrjaður. „Við vorum þrusuflottir í byrjun. Ótrúlega mikil orka bæði sóknar- og varnarlega. Vorum að finna opnanir sóknarlega og vorum að leggja áherslu á rétta hluti varnarlega.“ Stóðu í lappirnar Utanfrá séð leit kannski út fyrir að leikurinn væri unninn strax eftir fyrsta leikhluta en Hilmar sagði að honum hefði aldrei liðið þannig inni á vellinum. „Þetta eru 40 mínútna leikur og Keflavík er geggjað körfuboltalið með frábæra leikmenn. Ef að þeir hefðu lagst niður og gefist upp eftir fimm mínútur hefði við getað kallað þetta gott. Það var aldrei að fara að gerast, þetta er frábært lið og við vorum alltaf að búast við að þeir kæmu til baka. Mér fannst við ná að standa svolítið í lappirnar og náðum alltaf að halda okkur í forskotinu.“ Orri Gunnarsson var frábær í kvöld, setti átta þrista í tólf tilraunum og skoraði alls 30 stig. Hilmar nefndi hann sérstaklega þegar hann gerði upp leikinn. „Orri var geggjaður hjá okkur. Hann var að setja stór skot eftir stór skot og kom okkur svolítið út úr þessu. Sprautaði adrenalíni í okkur aftur og þá small vörnin.“ Stjarnan hefur nú unnið sex leiki í röð og virðist hreinlega vera óstöðvandi um þessar mundir. Blaðamaður spurði Baldur Þór, þjálfara liðsins, hvort það væri eitthvað því til fyrirstöðu að liðið færi taplaust í gegnum seinni hluta mótsins sem hann var ekki tilbúinn að kvitta undir. „Að sjálfsögðu ekki.“ - Sagði Hilmar og hló. „Ég held að það væru fáir tilbúnir að kvitta undir það en það er auðvitað markmiðið og vonin. Það er kannski ekkert létt að bæta inn leikmanni þegar þú ert búinn að vinna fjóra fimm í röð en við gerðum það og sem betur fer er það ekki að stoppa neitt með minni heimkomu. En ég get samt lofað þér því ef þú spyrð Baldur hvað er markmiðið þá er það 100 prósent markmiðið og við stefnum allavega á það.“
Stjarnan Bónus-deild karla Körfubolti Mest lesið Frækinn sigur Englendinga á Azteca Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Fótbolti Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma Fótbolti Týndur í tíu daga: Ætlaði að fara á HM en skilaði sér aldrei á staðinn Sport „Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Fótbolti Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Fótbolti Fleiri fréttir Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Sjá meira