Fékk að heyra það frá Lil Wayne og skaut til baka Valur Páll Eiríksson skrifar 11. janúar 2026 12:30 Lil Wayne skaut á Caleb Williams sem svaraði fyrir sig. Samsett/Getty Tónlistarmaðurinn Lil Wayne var ekki ánægður þegar hans menn í Green Bay Packers töpuðu fyrir Chicago Bears eftir hreint ótrúlegan leik í NFL-deildinni í nótt. Leikstjórnandinn Caleb Williams fékk að finna fyrir reiði Waynes.
Williams fór fyrir ótrúlegri endurkomu Bears í nótt. Á tímabili voru sigurlíkur Packers taldar 98 prósent, enda var liðið 21-3 yfir í hálfleik og 21-6 fyrir síðasta leikhlutann. Williams fór fyrir endurkomu Bears sem skoruðu 25 stig gegn sex í síðasta leikhlutanum og fóru því áfram í undanúrslit NFC hluta NFL-deildarinnar. Fréttaritari kann illa við að þýða hluta færslu rapparans heimsfræga Lil Wayne eftir leik, en hann er þekktur stuðningsmaður Green Bay Packers. N-orðið kom við sögu í færslu þar sem hann skaut á tískuákvarðanir Caleb Williams, sem hefur vakið athygli fyrir útlit sitt, þá sérlega fyrir að bera naglalakk. Williams svaraði færslu Waynes á samfélagsmiðlinum X.Skjáskot Í karllægum heimi ameríska fótboltans hafa spjót hvað helst beinst að Williams fyrir að lakka á sér neglurnar. Wayne skaut sérstaklega á það, að hans menn töpuðu fyrir manni sem lakkaði á sér neglurnar. Hann bætti við að Packers væru ömurlegir og ættu í raun ekki skilið að vera í úrslitakeppninni. Williams var snar til svars við færslu Wayne á samfélagsmiðlinum X. Færslan taldi tvö tjákn, snjókorn og ofurhetju. Williams hefur fengið viðurnefnið Ísmaðurinn, vegna þess hversu slakur hann er undir pressu, líkt og hann sýndi í leik næturinnar. Svarið einfalt við pirringi Waynes, Williams sé ísmaðurinn og Wayne þurfi að sætta sig við það. Þrír leikir í kvöld Úrslitakeppnin er rétt að byrja og nóg um að vera í kvöld. Fjörið hefst klukkan 18:00 þegar Josh Allen og félagar í Buffalo Bills heimsækja funheitt lið Jacksonville Jaguars. Í kjölfarið er stórleikur kvöldsins, milli ríkjandi meistara Philadelphia Eagles og San Francisco 49ers, klukkan 21:30. Þá er leikur næturinnar milli nýs liðs New England Patriots í umsjón Drake Maye og Los Angeles Chargers klukkan 1:00. Allir þrír verða í beinni á Sýn Sport.
NFL Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti „Slakiði á“ Fótbolti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Fótbolti Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM Fótbolti Fleiri fréttir Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Söguleg endurkoma Knicks Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti HM-dómarinn sem var rekinn heim fékk hetjumóttökur Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Átta rauð spjöld í sama leiknum Steinar áfram hjá Ármanni Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Hamar og Þór hætta samstarfi Benedikt verður lærisveinn Arnórs Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Sjá meira