Magnús Eiríksson er látinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. janúar 2026 16:25 Magnús Eiríksson ásamt sonum sínum. Mummi Lú Magnús Eiríksson, texta- og lagahöfundur, er látinn 80 ára að aldri.
Ríkisútvarpið greinir frá andláti hans. Magnús fæddist í Reykjavík 25. ágúst árið 1945, sonur Eiríks Ólafssonar og Rannveigar Axelsdóttur. Magnús stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og lærði á gítar hjá Gunnari H. Jónssyni, Karli Lilliendahl og Jóni Sigurðssyni. Tónlistarferil Magnúsar má rekja aftur til 1961 þegar hann lék með E.M. sextett sextán ára. Einnig lék hann með Sexunum og Skuggasveinum og gekk síðan til liðs við bítlasveitina Pónik árið 1964. Sveitin naut töluverðra vinsælda og bauðst að fara til Lundúna að tak upp lög haustið 1966. Hóf Magnús þar að semja lög og texta og átti síðan eftir að verða einn vinsælasti lagahöfundur landsins. Að neðan má heyra hátíðarviðtal Þorgeirs Ástvaldssonar við Magnús Eiríksson á Bylgjunni árið 2021. Magnús stofnaði Blúskompaníið, elstu blússveit landsins, árið 1967 með Erlendi Svavarssyni trommuleikara og Jóni Garðari Elíssyni bassaleikara og störfuðu þeir saman með hléum um langa hríð. Um svipað leyti stofnaði Magnús félagsskapinn Blue note, áhugamannaklúbb um blústónlist sem stóð fyrir blústónleikum og öðrum tengdum uppákomum. Samhliða tónlistinni vann Magnús í dagvinnu, var til sjós og vann hjá tengdaforeldrum sínum í hljóðfæraversluninni Rín. Hann varð síðar eigandi og var jafnan kenndur við hana, kallaður Maggi í Rín. Í versluninni starfaði um tíma ungi gítarleikarinn Kristján Kristjánsson sem síðar átti eftir að starfa mikið með Magnúsi. Mannakorn, Brunaliðið og gomma ástkærra laga Á áttunda áratugnum stofnaði Magnús hljómsveitina Mannakorn með þeim Pálma Gunnarssyni, Baldri Má Arngrímssyni og Birni Björnssyni. Hljómsveitin gaf út sína fyrstu plötu, Mannakorn, árið 1975 og varð fljótt ein vinsælasta sveit landsins og gaf út tíu plötur á fjörutíu árum. Magnús gekk árið 1978 til liðs við súpergrúppuna Brunaliðið sem samanstóð af Magnúsi Kjartanssyni, Pálma Gunnarssyni, Sigurði Karlssyni, Þórði Árnasyni, Ladda, Ragnhildi Gísladóttur og Diddú. Sveitin starfaði frá 1978 til 1980 en gaf þó út fjórar plötur. Magnús samdi ógrynni laga og ógjörningur að telja þau upp. Mörg þeirra má telja með ástkærustu lögum þjóðarinnar, þar á meðal „Ég er á leiðinni“, „Þorparinn,“ „Einhvers staðar einhvern tímann aftur “ og „Reyndu aftur“ svo nokkur séu nefnd. Magnús hlaut heiðursverðlaun íslensku tónlistarverðlaunanna árið 1999, fálkaorðuna árið 2014 og hlautfyrstur manna þakkarorðu íslenskrar tónlistar á Degi íslenskrar tónlistar 2024 á sérstökum hátíðartónleikum til heiðurs honum í Eldborgarsal í Hörpu. Magnús var einn af stofnendum og fyrsti formaður Félags tónskálda og textahöfunda og var formaður STEFs í nokkur ár. Eiginkona Magnúsar var Elsa Guðrún Stefánsdóttir en hún lést árið 1999. Þau eignuðust þrjá syni sem Magnús skilur eftir sig.
Andlát Tónlist Menning Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Harry Styles setti heimsmet Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Fleiri fréttir „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Sjá meira