Undirbúa Mána-leiðangur Dana til tungsins Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 27. nóvember 2025 13:52 Máni fer til Tunglsins og á meðal annars að skoða mögulega lendingarstaði fyrir geimfara framtíðarinnar. Getty Dönsk stjórnvöld hyggjast ráðstafa umtalsverðum fjármunum í að kosta leiðangur gervitungls til Tunglsins. Verkefnið hefur hlotið nafnið Máni, með vísan fornnorrænar tungu, en orðið er enn gott og gilt með sama rithætti á íslensku. Danskir vísindamenn við nokkra þarlenda háskóla leiða verkefnið, en að því koma samstarfsaðilar frá fleiri löndum. Markmiðið er að allt verði klárt fyrir Mánaleiðangurinn árið 2029.
Markmiðið er að gervitunglið fari hringferð um Tunglið til að kortleggja hvar geimfarar gætu mögulega lent á tunglinu þegar fram líða stundir. Ætlunin er að Máni verði í þrjú ár í leiðangri um geiminn en Jens Frydenvang, lektor við Kaupmannahafnarháskóla sem leiðir verkefnið, segir að með þessu sé draumur að rætast í samtali við DR. Dönsk stjórnvöld hafa eyrnamerkt 125-130 milljónir danskra króna, eða um 2,5 milljarða íslenskra króna, til að fjármagna verkefnið sem þó nemur aðeins um þriðjungi af áætluðum heildarkostnaði. Restin verður fjármögnuð af öðrum þátttakendum verkefnisins að því er segir í frétt DR. Verkefnið hlaut nýverið brautargengi á vettvangi Geimvísindastofnunar Evrópu (ESA) og að því koma nokkrir háskólar, rannsóknarstofnanir og fyrirtæki, meðal annars í Póllandi, Hollandi og Danmörku. ESA mun gefa út ákvörðun um endanlega forgangsröðun verkefna um miðjan desember en Frydenvang kveðst bjartsýnn á framgang verkefnisins, nú þegar fjármögnun frá danska ríkinu hefur verið tryggð.
Danmörk Tunglið Geimurinn Vísindi Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira