Háskólinn í stað Hótel Sögu sem heyrir sögunni til Tómas Arnar Þorláksson skrifar 29. ágúst 2025 19:25 Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands. vísir/bjarni Forseti menntavísindasviðs Hí segir það gjörbyltingu fyrir starfsfólk og nemendur sviðsins að sameinast undir einu þaki á háskólasvæðinu eftir að hafa verið á víð og dreif. Fréttastofa fékk forskot á sæluna og kíkti í heimsókn í Hótel Sögu.
Innan skamms mun öll kennsla menntavísindasviðs fara fram í þessari sögufrægu bygginu sem var áður kennd við Hótel Sögu. Um er að ræða mikinn áfanga en ríkið festi kaup á Hótel Sögu í samvinnu við Félagsstofnun stúdenta árið 2022 en síðan þá hefur staðið yfir vinna við að færa starfsemi sviðsins og undirbúa Sögu undir nýtt hlutverk. Hér fyrir neðan má berja breytingar á Hótel Sögu augum. Hótelherbergjum hefur verið breytt í kennslustofur og vinnurými kennara, skrifstofum Bændasamtakanna breytt í kennslurými þar sem nemendum er kennt að kenna yngri börnum í leikskóla og grunnskóla og þá verður Súlnasalurinn sögufrægi nýttur sem lesrými og vinnurými fyrir nemendur. Í norðurhluta byggingarinnar þar sem áður fyrr voru haldnar ráðstefnur og aðrir viðburðir er kennsla hafin og á hæðunum fyrir ofan eru nemendaíbúðir frá Félagsstofnun stúdenta. Ekki hefur þó enn fengist starfsleyfi fyrir starfsemi í suðurálmu hússins en Umhverfis og orkustofnun neitaði að veita bráðabirgðaleyfi á dögunum þar sem húsnæðið væri ekki tilbúið. Gripið hefur verið til ráðstafanna vegna þessa en reiknað er með leyfi á næstu dögum. Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands, fagnar því að það sjái fyrir endann á framkvæmdum. „Bæði erum við að nota aðrar byggingar á svæðinu eins og ég sagði áðan. Síðan erum við að grípa til þess að hittast í netheimum. Við erum komin inn í húsið að hluta og bíðum spennt eftir því að opna dyrnar í næstu viku fyrir nemendur okkar. Það verður gleðistund.“ Um langþráða stund sé að ræða. „Við erum í raun og veru búin að bíða í 17 ár, frá því að menntavísindasviðið varð til og kennaraháskóli Íslands sameinaðist Háskóla Íslands. Þetta er náttúrulega bara gjörbylting fyrir nemendur okkar sem núna fá miklu meira aðgengi að þjónustudeildum háskólans og ekki síður þessu gróskumikla félagsstarfi stúdenta.“ Það sé ekki einfalt mál að umbreyta hóteli í háskóla en öll rými byggingarinnar munu koma til með að vera nýtt. Heildarkostnaður við kaup og breytingar nemur um 12,7 milljörðum króna. „Það er eiginlega magnað að sjá hvernig hefur gengið að breyta hóteli í háskóla. Þetta er náttúrulega glæsileg bygging sem á sér stað í hjörtum allra landsmanna.“
Skóla- og menntamál Háskólar Hótel á Íslandi Salan á Hótel Sögu Reykjavík Hagsmunir stúdenta Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira