Körfubolti

Söknuður af æskufélaganum: „Áttum að vera gömlu karlarnir“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ægir Þór Steinarsson, landsliðsmaður í körfubolta.
Ægir Þór Steinarsson, landsliðsmaður í körfubolta. Vísir/Hulda Margrét

Ægir Þór Steinarsson er spenntur fyrir fyrsta leik Íslands á Evrópumótinu í körfubolta í Katowice í Póllandi á morgun. Að leikurinn sé við Ísrael hefur lítil áhrif á leikmenn liðsins.

„Það er bara spenningur. Við vorum náttúrulega þarna úti í Litáen og maður fann það á mönnum að við vorum klárir að koma okkur yfir til Póllands. Að komast inn í keppnishöllina og fara í þær aðstæður. Við getum ekki beðið eftir að byrja þetta,“ segir Ægir í samtali við Vísi.

Klippa: Hlakkar til að fá Hauk aftur

Landsliðið hefur verið saman í allt sumar og æft af krafti. Það hefur þá leikið fimm æfingaleiki og í þeim leikjum hefur orðið vart við uppgang og bætingu með hverjum leiknum sem líður.

„Við tökum mest hvernig uppgangurinn hefur verið frá fyrsta leik. Það hefur verið stígandi í hverjum einasta leik. Við höfum fundið út úr því hvernig við getum spilað á móti stórum þjóðum og hvað við þurfum til að vinna stórar þjóðir í körfubolta. Við erum tilbúnir að finna leiðir til að sigra,“ segir Ægir.

Haukur Helgi Pálsson hrökk úr skaftinu skömmu fyrir mót vegna höggs sem hann fékk á barkann í æfingaleik við Portúgal. Haukur og Ægir eru æskuvinir og var um að ræða töluvert högg fyrir bæði liðið og Ægi persónulega.

Blessunarlega kemur Haukur Helgi til móts við liðið þrátt fyrir að hann taki ekki þátt inni á parketinu.

„Þetta er auðvitað æskuvinur manns. Við áttum að vera gömlu kallarnir á þessu móti en þrátt fyrir allan þann skell erum við komnir yfir það. Það er bara gott að hugsa til þess að Haukur kemur hérna á hótelið með okkur og sína nærveru inn í hópinn, sem verður gott fyrir okkur,“ segir Ægir.

Körfubolti til sameiningar frekar en sundrungar

Leikur morgundagsins er við Ísrael. Töluverð óánægja ríkir víða vegna þátttöku liðsins á mótinu í ljósi ítrekaðra árása Ísraels á Gasa. Kallað hefur verið eftir sniðgöngu íslenska liðsins á leiknum sem KKÍ hefur ekki í hyggju. Þó hefur sambandið kallað eftir brottreksti Ísraela af mótinu, samkvæmt framkvæmdastjóra þess.

Aðspurður um áhrif umræðunnar á liðið segir Ægir:

„Þetta hefur ekki haft nein áhrif á okkur en það sem maður getur hugsað hvað helst þegar kemur að svona leikjum, þetta er flókið að spila svona leiki, en við getum aðeins vonað það að körfubolti virki til að sameina okkur frekar en að sundra okkur. Við verðum að hugsa það svoleiðis.“

Fleira kemur fram í viðtalinu sem má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan.

Leikur Íslands og Ísrael fer fram klukkan 12:00 á morgun og verður lýst í beinni textalýsingu á Vísi.


Tengdar fréttir

„Þetta var sjokk fyrir hann“

Craig Pedersen, landsliðsþjálfari karla í körfubolta, segir leikmenn liðsins sjaldan, eða jafnvel aldrei, hafa verið eins vel undirbúna og þeir eru fyrir komandi Evrópumót sem hefst í dag. Ísland mætir Ísrael klukkan tólf.

„Við erum bara að hugsa um körfubolta“

„Það er fiðringur og þetta er frábært. Þetta er að kikka inn núna eftir mikinn aðdraganda og bið. Það er loksins komið að þessu og partíið er að byrja,“ sagði spenntur Martin Hermannsson á hóteli körfuboltalandsliðsins í Katowice í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×