Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Jón Ísak Ragnarsson og Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifa 28. júní 2025 10:20 Þingfundur hófst klukkan tíu í morgun. Vísir/Anton Brink Frumvarp um veiðigjöld er ekki á dagskrá þingfundar sem hófst á Alþingi nú klukkan tíu. Þingfundi var ítrekað frestað síðdegis í gær og í gærkvöldi á meðan þingflokksformenn funduðu þar sem leitað er leiða til að semja um þinglok.
Frumvarp um veiðigjöld er ekki á dagskrá þingfundar sem á að hefjast á Alþingi nú klukkan tíu. Þingfundi var ítrekað frestað síðdegis í gær og í gærkvöldi á meðan þingflokksformenn funduðu þar sem leitað er leiða til að semja um þinglok. Líkt og undanfarna daga hafa það helst verið þingmenn stjórnarandstöðunnar sem rætt hafa veiðigjaldafrumvarpið, en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, kvaddi sér hljóðs um fundarstjórn forseta á meðan á umræðunni stóð í gær. „Virðulegur forseti, þetta eru búnir að vera langir dagar og það er mikið álag á háttvirtum þingmönnum, og það tekur á. Það tekur á okkur öll sem erum hér í húsinu til þess að starfa fyrir land og þjóð.“ „Það hafa þung orð verið látin falla í því máli sem er hér til umræðu á báða bóga, og það hafa jafnvel orð skvesst á einstaklinga sem hafa bara alls ekki átt það skilið. Það finnst mér miður,“ sagði Þorgerður Katrín í gær. Þingflokksformenn funduðu þar til klukkan var að ganga eitt í nótt og munu halda viðræðum áfram eftir hádegi í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu er ágætis gangur í viðræðunum og er dagskrá dagsins í dag sögð til marks um „góða trú“ af hálfu stjórnarflokkanna um að ná samkomulagi með því að hafa veiðigjöld ekki á dagskrá í dag.
Alþingi Breytingar á veiðigjöldum Mest lesið Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Erlent Fleiri fréttir Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Sjá meira