Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Árni Sæberg skrifar 20. júní 2025 14:27 Atvikið átti sér stað á stétt við sandkassa á leikskólalóðinni. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Vilhelm Starfsmaður leikskóla hefur verið sýknaður af ákæru fyrir líkamsárás og barnaverndarlagabrot gegn barni á leikskólanum. Barnið hlaut sýnilega áverka á öxl eftir að starfsmaðurinn þreif í það en ekki var talið sannað að starfsmaðurinn hefði haft ásetning til að meiða barnið.
Í dómi Héraðsdóms Reykjaness, sem kveðinn var upp í dag, segir að starfsmaðurinn hafi verið ákærður fyrir líkamsárás og barnaverndarlagabrot með því að hafa mánudaginn 30. maí 2022, utandyra á leikskólan veist með ofbeldi að dreng með því að grípa um hægri öxl hans með þeim afleiðingum að hann hlaut mar og brunaför á öxl, þrjú að framanverðu og eitt að aftanverðu. Með þeirri háttsemi hafi hann sýnt drengnum yfirgang og ruddalegt athæfi auk ógnandi og vanvirðandi framkomu. „Þú meiddir mig, þú meiddir mig“ Haft er eftir foreldrum drengsins í kæruskýrslu að þau hefði umræddan dag komið að leikskólanum til þess að sækja drenginn. Þau hefðu séð drenginn í sandkassa á skólalóðinni þegar þau hefði verið á leið inn í skólann að sækja eigur drengsins. Á leiðinni hefði þau séð drenginn taka upp sand og kasta upp í loft og starfsmann skólans rífa af miklum krafti í öxl drengsins. „Við þetta hafi brotaþoli farið að gráta og sagt „þú meiddir mig“. Ákærði hafi svo dregið brotaþola hágrátandi inn í leikskólann og drengurinn á meðan endurtekið „þú meiddir mig, þú meiddir mig“.“ Þegar þau komu inn í leikskólann hefði drengurinn hágrátið um stund og spurt hvort hann mætti sýna foreldrunum „meiddið“. Í framhaldi hefði hann lyft upp flíspeysu sinni og þau séð mar eftir þrjá fingur. Í dóminum segir að í málinu hafi legið fyrir ljósmynd sem foreldrar drengsins hafi sagst hafa tekið af syni sínum í leikskólanum strax eftir atvikið. Á myndinni megi glöggt sjá að drengurinn er með þrjú roða- eða brunaför sem liggi niður á við á framanverðri hægri öxl. Einnig hafi legið fyrir tvær ljósmyndir, sem að sögn foreldranna hafi verið teknar að kvöldi sama dags. Á fyrri myndinni sjáist greinilega sömu þrjú roða- eða brunaför framan á hægri öxl drengsins og á seinni myndinni sjáist greinilega eitt roða- eða brunafar aftan á hægri öxl. „Ljóti, feiti karl“ Í dóminum segir að starfsmaðurinn hafi fyrir dómi sagt frá því í sjálfstæðri frásögn að hann hefði umræddan dag verið í útivist að fylgjast með börnum að leik í sandkassa og séð drenginn reyna að komast inn í leik barnanna. Hann hefði aðstoðað drenginn við að komast inn í leikinn og það gengið ágætlega í einhverjar mínútur, en svo hefði drengurinn tekið skóflu og fulla fötu af sandi og byrjað að ausa framan í hin börnin. Slík hegðun hefði ekki verið í boði og hann því sagt drengnum að fara upp úr sandkassanum og leika sér annars staðar. Það hefði drengurinn gert, en síðan komið aftur að sandkassanum og byrjað að kasta sandi í hann. Hann hefði beðið drenginn að hætta því, drengurinn þá hlaupið í burtu, en síðan komið aftur til baka og enn kastað sandi í hann. Við svo búið hefði drengurinn reynt að hlaupa í burtu, hann áttað sig á að ekki væri unnt að tala við drenginn, í þeirri stöðu kosið að grípa í peysu drengsins „til að stoppa hann af í eina sekúndu“ og síðan tekið í aðra hönd drengsins og leitt hann „lófa í lófa“ áleiðis að leikskóladeild hans svo einhver starfsmaður sem þar væri og þekkti drenginn betur gæti rætt við hann. Drengurinn hefði ekki verið sáttur við að vera stoppaður af með þessum hætti og hreytt fúkyrðum í hann, svo sem „ljóti, feiti karl“ eða álíka. Sannað að starfsmaðurinn hafi rykkt í drenginn Í niðurstöðukafla dómsins segir að með vísan til framlagðra ljósmynda, vitnisburði og að gættum þeim samhljóða og trúverðuga dómsframburði foreldra drengsins að þau hefðu séð starfsmanninn grípa harkalega í hægri öxl drengsins á stéttinni við sandkassann, sem og skýru dómsvætti drengsins um að starfsemi hefði klipið hann í öxlina, telji dómurinn hafið yfir skynsamlegan vafa að áverkar drengsins hafi komið til við það að starfsmaðurinn greip fast um hægri öxl drengsins og rykkti honum til. Aftur á móti segir að þrátt fyrir þá sönnun bæri ákæruvaldið sönnunarbyrði á því að sanna að starfsmaðurinn hafi haft ásetning til þess að meiða drenginn, beinan ásetning, líkindaásetning, eða svokallaðan dolus eventualis-ásetning, með því að hafa látið sér í léttu rúmi liggja að drengurinn gæti meiðst við það að hann gripi í hann. Með vísan til framburðar starfsmannsins og dómsvættis annarra starfsmanna, um að starfsmaðurinn hefði tekið drenginn út úr aðstæðum með því að taka í hann og að ekkert hefði verið óeðlilegt við aðferðir hans, telji dómurinn slíkan vafa leika á því að starfsmaðurinn hafi haft minnsta ásetning til að meiða drenginn, þannig að refsingu geti varðað, að sýkna beri hann af ákæru vegna líkamsárásar. Brást rétt við Eftir hafi staðið að ákvarða hvort maðurinn hefði með athæfi sínu brotið gegn barnaverndarlögum. Áverkar drengins hafi verið til komnir vegna gáleysis starfsmannsins og gáleysi dugi til sakfellingar fyrir barnaverndarlagabrotið sem hann var ákærður fyrir. Eins og sakargögnum málsins er farið sé dóminum óhægt um vik að leggja rökstutt mat á það hvort afskipti starfsmannsins af drengnum hefðu verið réttlætanleg vegna óæskilegrar hegðunar drengsins og þess að hann hefði ekki hlýtt tilmælum starfsmannsins um að láta af slíkri hegðun. Dómsvætti annarra starfsmanna og innri úttekt leikskólastjóra um atvikið styðji við þá ályktun að starfsmaðurinn hefði brugðist rétt við aðstæðum og ekki komið fram við drenginn með óforsvaranlegum hætti. Dómurinn telji því að ákæruvaldinu hafi ekki tekist að sýna fram á, svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa, að starfsmaðurinn hafi greint sinn beitt drenginn andlegum eða líkamlegum refsingum, hótunum, ógnunum, eða annars sýnt af sér aðra vanvirðandi háttsemi svo varði refsingu samkvæmt barnaverndarlögum. Að sama skapi þyki lögfull sönnun ekki fram komin um að starfsmaðurinn hafi með afskiptum sínum af drengnum sýnt honum yfirgang, ruddalegt eða ósiðlegt athæfi, sært drenginn eða móðgað hann svo refsingu varði samkvæmt sömu lögum. Starfsmaðurinn var því sýknaður af refsikröfu ákæruvaldsins og miskabótakröfu foreldra drengsins fyrir hans hönd, upp á eina milljón króna, vísað frá dómi. Sakarkostnaður, 1,5 milljón króna, greiðist úr ríkissjóði.
Leikskólar Börn og uppeldi Ofbeldi gegn börnum Dómsmál Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Innlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Innlent Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Innlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Erlent Ætla að flytja starfsemi Vogs Innlent Skortir lækna í Breiðholti Innlent Fleiri fréttir Vegagerðin býður út for- og verkhönnun Fljótaganga Safna undirskriftum til að styðja Fjarðarheiðargöng Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur í Garðabæ Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Sjö sækja um tvær lausar stöður Minni hagvöxtur og hjólhýsin mögulega í Skerjafjörðinn Ætla að flytja starfsemi Vogs Tvöfalt fleiri skipulagðir brotahópar en fyrir tíu árum Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Skortir lækna í Breiðholti Staðfesti tveggja ára dóm vegna nauðgunar í jólateiti fyrir austan Fleiri sem ekki verja neinum tíma í lestur Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Helgi Pétursson er látinn Stolinn köttur, nágrannaerjur og ungmenni til vandræða Lýsa víðtæku ofbeldi gagnvart eldra fólki og kalla eftir vakningu Vill byrja á næstu göngum árið 2027 en segir ekki hvar Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Bregðast ekki við bílastæðavanda við skíðasvæði í Reykjavík Héldu styrktartónleika fyrir kristna flóttamenn Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Tapaði aftur gegn borginni eftir afdrifaríka rennibrautarferð Sakborningur enn að störfum og atvikið ekki tilkynnt Brotið á Stuðlum ekki tilkynnt og foreldrar taka mál í eigin hendur Sakfelldur fyrir morð og refsing þyngd verulega Kolröng skilaboð að brosa á mynd með ESB í miðjum storminum Prófkjör hjá Sjálfstæðismönnum í Mosfellsbæ Kennarar fara með kjaradeilu fyrir Félagsdóm Fólk komi vonandi sjaldnar með dýr í neyð Sjá meira