Dani Rodriguez búin að semja við Njarðvík Smári Jökull Jónsson skrifar 27. maí 2025 18:27 Dani Rodriguez í leik með íslenska landsliðinu en hún mun leika með Njarðvík á næsta tímabili. Vísir/Anton Brink Bikarmeistarar Njarðvíkur eru heldur betur búnir að styrkja sig fyrir næsta tímabil því nú rétt í þessu var tilkynnt að Dani Rodriguez hefði samið við félagið til næstu tveggja ára.
Dani Rodriguez er vel þekkt í íslenska körfuknattleiksheiminum því hún hefur leikið með KR, Stjörnunni og Grindavík hér á landi. Þá lék hún sína fyrstu landsleiki fyrir Íslands hönd síðasta haust eftir að hafa fengið íslenskan ríkisborgararétt árið 2023. Hún lék með Fribourg Basket í svissnesku deildinni í vetur. „Við erum vissulega að gera taktíska breytingu á meistaraflokki kvenna með þessari ráðningu. Dani er þekkt stærð í íslenska boltanum og við í Njarðvík stefnum áfram á framfarir og baráttu á meðal þeirra bestu,“ er haft eftir Einari Jónssyni formanni körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur í yfirlýsingu félagsins. Dani mun einnig taka við þjálfun nokkurra yngri flokka Njarðvíkur en hún hefur getið sér gott orð sem þjálfari og meðal annars þjálfað yngri landslið Íslands. Hún skrifar undir tveggja ára samning við Njarðvík. Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur er ánægður með liðsstyrkinn. „Hér erum við ekki einungis að fá frábæran leikmann heldur einnig einstakling sem er fær um að gefa vel af sér í allt starfið okkar. Hún er líka öflugur þjálfari og iðkendur félagsins munu njóta góðs af því. Kvennaliðið okkar er ríkjandi bikarmeistari og silfurlið Íslandsmótsins og því er það efst á dagskrá að byggja ofan á öflugt tímabil,“ segir Einar Árni er á leið í sitt annað tímabil sem þjálfari Njarðvíkur. Ljóst er að Njarðvík mætir með feykilega sterkt lið til leiks á næsta tímabili. Liðið samdi á dögunum á nýjan leik við Brittany Dinkins en hún var einn besti leikmaður deildarinnar á síðasta tímabili. Þá skrifuðu Krista Gló Magnúsdóttir og Eygló Óskarsdóttir sömuleiðis undir nýja samninga.
Bónus-deild kvenna UMF Njarðvík Mest lesið Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni Íslenski boltinn Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Enski boltinn Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport Messi slær enn eitt metið Fótbolti „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Íslenski boltinn Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Enski boltinn Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Enski boltinn HM félagsliða „farsælasta keppni í heimi“ samkvæmt Infantino Sport Fleiri fréttir Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Sjá meira