Upp­gjörið: Fram - Vestri 1-0 | Frammarar stöðvuðu sigur­göngu Vestra

Hjörvar Ólafsson skrifar
Kennie Chopart og liðsfélagar hans hjá Fram héldu hreinu í leiknum gegn Vestra.
Kennie Chopart og liðsfélagar hans hjá Fram héldu hreinu í leiknum gegn Vestra. Vísir/Diego

Fram bar sigurorð af Vestra með einu marki gegn engu þegar liðin áttust við í sjöundu umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í dag. Það var Simon Tibbling sem skoraði sigurmark Fram úr vítaspyrnu sem Vuk Oskar Dimitrijevic nældi í.

Leikurinn fór rólega af stað með taktískri skák Rúnars Kristinssonar og Davíðs Smára Lamude en bæði lið spila leikkerfið 3-4-3, voru þétt til baka og gáfu fá færi á sér.

Vuk Oskar Dimitrijevic, kantmaður Framliðsins, fekk fyrsta færi leiksins en skot hans var ekki nógu fast og langt út í hornið og Guy Smit það varði nokkuð þægilega.

Jeppe Pedersen var síðan nálægt því að ná forytunni fyrir gestina að vestan en skalli hans eftir hnitmiðaða sendingu Fatai fór rétt framhjá markið Framliðsins.

Simon Tibbling kom svo Frömmurum yfir með marki úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks. Sergine Mamadou Fall braut afar klaufalega á Vuk Oskari og Ívar Orri Kristjánsson dæmdi réttilega vítaspyrnu.

Simon fór á vítapunktinn og skoraði af feykilega öryggi framhjá Guy Smit. Svíinn stráði salti í sár hollenska markvarðarins með því að fagna í andlitið á honum og fékk orð í eyra frá Ívari Orri.

Arnór Borg Guðjohnsen, sem kom inn á sem varamaður í framlínu Vestra í upphafi seinni hálfleiks, var nálægt því að jafna metin um miðbik seinni hálfleiks en Viktor Freyr Sigurðsson, bjargaði með góðu úthlaupi. 

Már Ægisson fékk svo gott færi til þess að gera út um leikinn þegar hann slapp í gegn en hann hélt spennu í leiknum með því að skjóta framhjá. 

Vestramenn voru aðgangsharðir upp við mark Frammara á síðustu mínútum leiksins en þar var það Daði Berg Jónsson sem var næst því að sjá til þess að gestirnir færu með stig vestur. 

Leikmenn Fram köstuðu sér hins vegar fyrir þau skot sem dundu á þá og Viktor Freyr var öruggur í sínum aðgerðum og niðurstaðan 1-0 sigur Fram sem hefur nú níu stig í sjötta sæti. Valur og Stjarnan hafa einnig níu stig í sætunum í kringum Fram á meðan Vestri er áfram á toppnum ásamt Breiðabliki og Víkingi með 13 stig. 

Vestramenn misstu Arnór Borg út af meiddan en hann tognaði aftan í læri. Þá fékk Kristoffer Grauberg höfuðhögg í uppbótartíma leiksins og fór upp á sjúkrahús vegna þeirra meiðsla. 

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, á hliðarlínunni í leik hjá liðinu. Vísir/Viktor Freyr

Rúnar: Lítið eftir á tanknum undir lokin

„Við erum kampakátir með að hafa innbyrt þennan sigur og það er gott að ná að fylgja eftir góðum bikarsigri á móti KA. Við fengum bara þrjá daga til þess að endurheimta eftir ferðalag til og Akureyri og hörkuleik þar. Það sást bersýnilega að við fengum ekki nægan til þess að hlaða batterýin og það var lítið á tanknum undir lok þessa leiks,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, alsæll. 

„Við vorum þéttir í þessum leik og gáfum fá færi á okkur. Það var mikilvægt af því að það var ekki mikil orka. Við erum gríðarlega sáttir að ná að halda hreinu og tryggja sigur sem mjakar okkur upp töfluna. Við viljum ná stöðugleika í spilamennskuna hjá liðinu og þetta var skref í þá átt,“ sagði Rúnar enn fremur. 

„Vuk heldur áfram að spila vel en hann hefur bara átt ein slakan leik í sumar. Ég er búinn að fara yfir það með honum hvað þarf til þess að hann spili vel til lengri tíma. Vuk eins og fleiri í liðinu er að fara eftir þeim fyrirmælum og við erum að ná upp góðum frammistöðum í lengri og lengri tíma,“ sagði hann um lærisveina sína. 

Davíð Smári: Náðum ekki upp neista og takti

„Þetta var stál í stál og jafn leikur sem lenti þeirra megin í dag. Mér fannst við hins vegar aldrei náð neista í spilamennskuna og takt í splið okkar. Við náðum ekki að spila boltanum nógu oft á milli línanna og opna þá,“ sagði Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, svekktur.  

„Við settum þá hins vegar undir pressu þegar líða tók á leikinn og Viktor Freyr hélt þeim á floti á lokakafla leiksins. Jafntefli hefði líklega verið sanngjörn niðurstaða í þessum leik þegar á heildina er litið. Við vorum slakir í 45 mínútur en höfum heilt yfir verið flottir í sumar svo það er bara áfram gakk,“ sagði Davíð Smári um þróun leiksins. 

„Arnór Borg tognaði aftan í læri en er vonandi ekki alvarlega meiddur. Kristoffer fékk svo högg á höfuðið og fékk aðsvif eftir leikinn. Kristoffer er á leið upp á sjúkrahús í skoðun og vonandi jafnar hann sig fljótt. Nú förum við svo bara allir að búa okkur undir næsta leik og kvitta fyrir þetta tap,“ sagði hann um meiðsli leikmanna sinna og framhaldið. 

Davíð Smári fylgist íbygginn með af hliðarlínunni.Vísir/Anton

Atvik leiksins

Tækling Sergine Mamadou Fall sem varð til þess að Vuk Oskar féll og fékk vítið sem skar út um leikinn að lokum var einkar klaufaleg og óþörf. Davíð Smári var augljóslega ekki sáttur við frammistöðu Fall og tók hann út af í hálfleik. 

Stjörnur og skúrkar

Vuk Oskar var skeinuhættur á vinstri kantinum hjá Fram og Simon Tibbling átti góðan leik inni á miðsvæðinu. Kyle McLagan batt svo saman varnarlínu Framliðsins sem erfitt var að finna glufur á að þessu sinni og Kennie Chopart og Israel Garcia köstuðu sér fyrir ófá skot og unnu fjölmörg návígi. Viktor Freyr varði nokkrum sinnum vel í leiknum og greip vel inn í þegar þess þurfti. 

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Ívar Orri Kristjánsson, Guðmundur Ingi Bjarnason, Bryngeir Valdimarsson og Twana Khalid Ahmed voru með góð tök á þessum leik. Vítaspyrnan sem Ívar Orri dæmdi var hárrétt og lítið sem ekkert sem orkaði tvímælis hjá dómarakvartettnum. Þeir fá átta í einkunn fyrir sín störf. 

Stemming og umgjörð

Það voru tæplega 1000 manns sem mættu í veðurblíðuna í Úlfarsárdal í dag. Létt yfir áhorfendum sem létu fara vel um sig í góða veðrinu. Umgjörðin upp á 10 og Valtýr Björn Valtýsson sýndi snilldar tilþrif í starfi vallarþular. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira