Andstaða forstjóra Flugleiða við Cargolux réð því að hluturinn fór Kristján Már Unnarsson skrifar 17. apríl 2025 09:19 Einar Ólafsson var forstjóri Cargolux um tólf ára skeið, frá stofnun flugfélagsins árið 1970 og til ársins 1982. Egill Aðalsteinsson Sú afdrifaríka ákvörðun stjórnar Flugleiða að láta frá sér þriðjungshlut í Cargolux situr enn í Íslendingum í Lúxemborg þremur áratugum síðar. Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, segir þáverandi forstjóra Flugleiða hafa verið andvígan Cargolux.
Sagan var rifjuð upp í fréttum Stöðvar 2 og í þættinum Flugþjóðin en við stofnun Cargolux árið 1970 urðu Loftleiðir eigendur þriðjungs hlutafjár. Við sameiningu flugfélaganna árið 1973 færðist sá hlutur yfir til Flugleiða. Cargolux-vél af gerðinni Canadair CL-44 á flugvellinum í Kathmandu, höfðuborg Nepals, á upphafsárunum. Flugvélarnar komu frá Loftleiðum og báru þar heitið Rolls Royce 400.Mynd/Cargolux. Árið 1982 glímdi Cargolux við fjárhagsvanda og þurfti á meira hlutafé að halda. Stjórn Flugleiða, sem á sama tíma átti fullt í fangi með að halda eigin félagi á floti, ákvað hins vegar að taka ekki þátt í hlutafjáraukninginni. Það þýddi að hluturinn í Cargolux þynntist út. Flugleiðir seldu svo síðustu hlutabréf sín í félaginu árið 1985. Geirþrúður Alfreðsdóttir og Haukur Alfreðsson, tvö af börnum Alfreðs Elíassonar og Kristjönu Millu Thorsteinsson.Egill Aðalsteinsson Loftleiðahópurinn innan Flugleiða lagðist gegn sölunni en eiginkona Alfreðs Elíassonar, Kristjana Milla Thorsteinsson, sat þá í stjórn félagsins. Börn þeirra hjóna, þau Haukur Alfreðsson og Geirþrúður Alfreðsdóttir, segja að bæði faðir þeirra og móðir hafi verið andvíg sölunni á Cargolux. „Mamma barðist á móti því að Cargolux yrði selt,“ segir Geirþrúður. Hér má sjá fimm mínútna kafla úr þættinum þar sem Einar Ólafsson rekur jafnframt ástæður þess að hann lét af störfum sem forstjóri Cargolux: „Við vorum rosalega ósáttir við þetta. Þetta voru náttúrlega alveg ægilegustu mistök sem Flugleiðir gerðu að láta þennan hlut fara,“ segir Jóhannes Kristinsson, fjárfestir og fyrrverandi flugstjóri hjá Cargolux. Jóhannes Kristinsson, fjárfestir og fyrrverandi flugstjóri hjá Cargolux, á vikulegum kaffifundi gamalla vinnufélaga í Lúxemborg. Við hlið hans sitja Arnar Bjarnason og Agnar Sigurvinsson.Egill Aðalsteinsson Hann segir að vissulega hafi verið erfiðleikar hjá Flugleiðum á þessum tíma en togstreita hafi verið á milli forstjóra Flugleiða, Sigurðar Helgasonar eldri, og forstjóra Cargolux, Einars Ólafssonar. „Forstjóri Cargolux var gamall Loftleiðamaður en þáverandi forstjóri Flugleiða var Sigurður Helgason, sem hafði hallað sér að Flugfélagi Íslands. Það greri aldrei um heilt þarna,“ segir Jóhannes Kristinsson. Sigurður Helgason var forstjóri Flugleiða.Úr myndinni Alfreð Elíasson og Loftleiðir „Það var Sigurður Helgason eldri, hann var alla tíð upp á móti þessu Cargolux-ævintýri. Hann var í miklu sambandi við Seaboard auðvitað og Seaboard sagði honum að þetta væri tóm vitleysa. Og hann trúði því að þetta væri tóm vitleysa og við það sat,“ segir Einar Ólafsson, sem var forstjóri Cargolux fyrstu tólf árin, frá 1970 til 1982. „Flugleiðir hefðu ekki haft peninga í að halda þessu gangandi. Þetta er gífurlegt magn af peningum sem fer í þetta og Lúxarar hafa aðgang að þeim,“ segir Björn Sverrisson, fyrrverandi flugvélstjóri hjá Cargolux. Einar Ólafsson var fyrsti forstjóri Cargolux.Úr einkasafni Cargolux telst í dag vera stærsta vöruflutningaflugfélag í Evrópu og það fimmta stærsta í heimi. „Verðmæti Flugleiða væri svona fimmtánfalt ef þeir ættu sín 33 prósent,“ segir Jóhannes Kristinsson.
Flugþjóðin Lúxemborg Fréttir af flugi Icelandair Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Þurfti áfallahjálp þegar flugi til Íslands var hætt Íslendinganýlendan í Lúxemborg missti dýrmæt tengsl við heimalandið þegar beinu flugi var hætt á milli landanna. Mjög hefur dregið úr starfsemi Íslendingafélagsins í landinu og virðist íslenska samfélagið þar smámsaman vera að renna inn í það lúxemborgíska. 15. apríl 2025 22:22 Ævintýri um allan heim biðu ungra íslenskra flugmanna Ungir íslenskir flugmenn sem misstu vinnuna hjá Loftleiðum upp úr 1970 færðu sig flestir yfir til hins nýstofnaða félags Cargolux. Þar biðu þeirra meiri ævintýri en þeir höfðu áður kynnst en einnig miklar áskoranir. 13. apríl 2025 07:47 Loftleiðir stofnuðu Cargolux til að nýta verðlitlar flugvélar Upphaf Cargolux má rekja til þess að Alfreð Elíasson, forstjóri Loftleiða, fól einum framkvæmdastjóra sinna, Jóhannesi Einarssyni, að selja eða leigja verðlitlar Rolls Royce-vélarnar, eða Monsana. 10. apríl 2025 14:22 Stoltir Íslendingar af þætti sínum í stærsta fraktflugfélagi Evrópu Hátt í fimmhundruð Íslendingar eru núna búsettir í Lúxemborg og er Cargolux enn í dag meðal stærstu vinnustaða Íslendinga í fluginu. 8. apríl 2025 22:44 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Sjá meira
Þurfti áfallahjálp þegar flugi til Íslands var hætt Íslendinganýlendan í Lúxemborg missti dýrmæt tengsl við heimalandið þegar beinu flugi var hætt á milli landanna. Mjög hefur dregið úr starfsemi Íslendingafélagsins í landinu og virðist íslenska samfélagið þar smámsaman vera að renna inn í það lúxemborgíska. 15. apríl 2025 22:22
Ævintýri um allan heim biðu ungra íslenskra flugmanna Ungir íslenskir flugmenn sem misstu vinnuna hjá Loftleiðum upp úr 1970 færðu sig flestir yfir til hins nýstofnaða félags Cargolux. Þar biðu þeirra meiri ævintýri en þeir höfðu áður kynnst en einnig miklar áskoranir. 13. apríl 2025 07:47
Loftleiðir stofnuðu Cargolux til að nýta verðlitlar flugvélar Upphaf Cargolux má rekja til þess að Alfreð Elíasson, forstjóri Loftleiða, fól einum framkvæmdastjóra sinna, Jóhannesi Einarssyni, að selja eða leigja verðlitlar Rolls Royce-vélarnar, eða Monsana. 10. apríl 2025 14:22
Stoltir Íslendingar af þætti sínum í stærsta fraktflugfélagi Evrópu Hátt í fimmhundruð Íslendingar eru núna búsettir í Lúxemborg og er Cargolux enn í dag meðal stærstu vinnustaða Íslendinga í fluginu. 8. apríl 2025 22:44