Spurningar vakna um heimildarmann og hæfni og ábyrgð fréttamanna Ole Anton Bieltvedt skrifar 24. mars 2025 06:00 Ég skrifaði hér grein á Vísi sl. föstudag með fyrirsögninni „Þegar illfyglin fá að grassera – með góðum stuðningi fjölmiðla“. Er greinin hér enn, aðgengileg til lesturs, ef áhugi er á, og skýrir sig sjálf. Það er nú orðið ljóst, hvaða manneskja það er, sem fyrir mér er „illfyglið“ á bak við þessa vondu og skammarlegu atburðarrás alla, þar sem góð kona og væn, mannvinur, sem hefur barizt ekki sízt fyrir hagsmunum og velferð þeirra, sem minnst mega sín, var hrakin með illvilja, afskræmingu staðreynda og því, sem ég vil kalla falsfréttum, úr starfi, illilega að hennar persónu, einkalífi og fjölskyldulífi vegið, og, málflutningur „illfyglis“ og fréttamanna slíkur, að jafnvel hrikti í stjórn landsins. Svei þér Ólöf Björnsdóttir, segi ég nú. Fyrir mér fellur skuggi á þitt nafn. En næsta spurningin er, hver er heimildarmaðurinn á bak við fréttina? Ekki réði þar minni lágkúra. Var þar einhver að reyna að koma höggi á eða reka rýting í bak Ásthildar Lóu og/eða ríkisstjórnar. Það væri þarft verk og gott, nauðsynlegt, til að heildarmynd komi á þetta vonda mál, að upplýst væri um heimildarmann. Þar næst vaknar spurningin um hæfni og ábyrgð fréttamanna á RÚV, sem þóttust eða töldu sig vera með stórfellt hneykslismál, sem þeir settu svo af stað með hávaða og látum, án minnstu vægðar, varkárni eða tillitssemi, án nokkurar skynsemi eða faglegrar staðreyndagreiningar, sjálfum sér og stofnun sinni til skammar. Hver átti glæpurinn eiginlega að hafa verið? Fyrir hvað var Ásthildur Lóa eiginlega ákærð, sakfelld og dæmd!? Hér var og er um samneyti unglinga og ástarsamband, einkalíf og einkamál þeirra, þar sem einhver aldursmunur var í árum, sem heldur engan, nema þau sjálf, varðar um, fyrir utan það, að reynsla og þroski, ekki sízt í ástar- og kynlífsmálum, fer ekki alltaf eftir árum, og geta þeir, sem þar eru yngri búið yfir meiri reynslu til framsækni og áhrifa, aðgangs, en þeir, sem eldri eru í árum. Ég tel Stefán Eiríksson, útvarpsstjórna, góðan mann og heiðarlegan, sem ekki má vamm RÚV eða sjálfs sín vita, og sendi ég honum þetta erindi í dag: „Leyfðu mér að senda þér þessa blaðagrein, sem ég birti á Vísi sl. föstudag: https://www.visir.is/g/20252704125d/thegar-illfyglin-fa-ad-grassera-med-godum-studningi-fjolmidla. Efnið skýrir sig sjálft. Þær spurningar vakna auðvitað, hvaðan þessi frétt, sem fyrir mér engin er, 35 ára gamalt ástarævintýri unglinga, kom, og þá líka, hver var ástæðan fyrir því, að þessari illkvittniskonu, Ólöfu Björnsdóttur, var boðið í langt viðtal á helzta tíma hjá ykkur. Hvert var tilefnið, hver var fréttin!? Auðvitað getur þú ekki stýrt öllu þínu liði, en eftir á er hægt að taka á málum. Fyrir mér er hér tilefni til alvarlegra taka á þeim fréttamönnum, sem að komu“. Verður fróðlegt að vita, hvað út úr þessu erindi kemur. Höfundur er samfélagsrýnir og dýraverndarsinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ole Anton Bieltvedt Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar