Þegar fíllinn byltir sér.... Gunnar Pálsson skrifar 12. mars 2025 19:31 Eftir umsnúninginn í Úkraínu og aðrar vendingar, hafa margir í Evrópu áhyggjur af því að Bandaríkin hverfi nú frá hefðbundinni stefnu sinni í utanríkismálum, en ef það gerist, kunni samskipti álfanna að bíða skaða. Þessi ótti er ekki tilefnislaus, en engu að síður ýktur, sé stefna Bandaríkjanna sett í sögulegt samhengi. Áhersla nýs Bandaríkjaforseta á að stöðva stríðið í Úkraínu á sér nokkrar skýringar. Kjósendur eru ekki jafn áhugasamir um að halda því áfram og áður. Margvísleg forgangsverkefni bíða úrlausnar innanlands. Gengið hefur á vopnabirgðir og það takmarkað svigrúmi Bandaríkjanna til að beita sér að fullu á öðrum átakasvæðum. Meginástæðunni er þó sjaldan lýst berum orðum: eftir þriggja ára barning gegn rússneska innrásarliðinu, gera bandarísk stjórnvöld sér ekki lengur vonir um að vinna stríðið. Þessi blákalda niðurstaða forysturíkis hins vestræna heims hefur skiljanlega valdið fjaðrafoki. Á hinn bóginn ætti ekki að koma á óvart að Bandaríkin vendi sínu kvæði í kross í stríðsátökum, en fyrir því eru a.m.k. þrjú fordæmi á síðustu þremur aldarfjórðungum: Árið 1952 var Dwight Eisenhower kjörinn forseti, að hluta til út á loforð um að binda endi á þátttöku Bandaríkjanna í Kóreustríðinu. Í beinum viðræðum Bandaríkjanna við Norður-Kóreu og Kína, sem forseti Suður-Kóreu, Syngman Rhee, hafði lýst sig mótfallinn og hvorki bandamenn né Sameinuðu þjóðirnar tóku þátt í, náðust samningar um vopnahlé sem fólu það í sér að Bandaríkin gáfu eftir margar af kröfum andstæðinganna sem þau höfðu áður hafnað. Árið 1972 tilkynnti Richard Nixon forseti að hann myndi fallast á vopnahlé í Víetnam og kalla þaðan bandarískt herlið. Áður höfðu Bandaríkin sniðgengið forseta Suður-Víetnam, Nguyen Van Thieu, sem hafnað hafði friðarviðræðum, og rætt beint við stjórnvöld í Norður-Víetnam. Líkt og gerst hafði í Kóreu, voru Bandaríkin látin gjalda viðskilnaðar síns, en andstæðingarnir höfðu sameinað Suður-Víetnam landi sínu að fullu árið 1976. Árið 2018 gekk Trump-stjórnin fyrri til beinna viðræðna við Talíbana í Katar um endalok stríðsins í Afganistan. Afgönsk stjórnvöld, undir forystu forsetans, Ashrafs Ghanis, fengu ekki að taka þátt í þessum viðræðum, enda var forsetinn þeim andsnúinn. Í samningunum sem fylgdu í kjölfarið þurftu Bandaríkin að slá af mörgum stærstu kröfum sínum og höfðu Talíbanar náð öllu Afganistan á vald sitt árið 2021. Stefnubreyting Bandaríkjanna í Úkraínu er því síður en svo án hliðstæðu. Í öllum þremur tilvikum áttu samstarfsríki undir forystu Bandaríkjanna sér sameiginlegan óvin. Í Kóreu og Víetnam var framrás kommúnista talin ógna heimsfriði. Yrðu þeir ekki stöðvaðir á heimaslóðum, myndu dómínókubbarnir falla einn af öðrum. Í Afganistan var litið svo á að uppræta yrði hryðjuverkaöflin og koma þannig í veg fyrir að þau létu til skarar skríða í vestrænum ríkjum. Þrátt fyrir fyrri samstöðu, voru mótbárur skjólstæðinga, hvað þá samstarfsþjóða, Bandaríkjunum lítil fyrirstaða, þegar í óefni var komið og þau kusu að losa sig út úr átökunum. Í engu tilvikanna báru þó samskipti Bandaríkjanna og samstarfsríkja þeirra merkjanlegt tjón af sinnaskiptum bandarískra stjórnvalda. Sá munur er augljóslega á Úkraínu og tilgreindum ríkjum að hún er óumdeilanlega hluti af Evrópu. Ólíkt því sem við átti í Kóreu, Víetnam og Afganistan, telja Bandaríkin sig ekki hafa átt beina aðild að átökunum í Úkraínu. Ýmis líkindi eru engu að síður með Úkraínu og tilvikunum þremur. Í Úkraínu hefur þeim rökum einnig verið beitt að þar þurfi að stöðva andstæðinginn svo hann ógni ekki öðrum Evrópuríkjum, frelsi þeirra og sjálfstæði. Þegar nú liggur fyrir að Bandaríkin telja sig ekki munu lengur hafa árangur sem erfiði af hernaðarlegum stuðningi sínum við Úkraínu, er forsetanum, í þessu tilviki Volodymyr Zelinskyy, sömuleiðis gert að lúta vilja Bandaríkjanna, en samstarfsríkjum úthlutað aukahlutverkum. Í ljósi sögunnar verður að telja ólíklegt að togstreita Bandaríkjanna og samstarfsríkja þeirra vegna ástandsins í Úkraínu muni þegar frá líður torvelda samskiptin. Takist friðarsamningar á milli Bandaríkjanna og Rússlands, eiga Evrópuríkin engan annan kost en að leggjast á sveif með Bandaríkjunum. Haldi þeir samningar, er ennfremur vandséð að aðsteðjandi hætta af Rússum verði slík í augum Evrópubúa að þeir veðsetji efnahagslega framtíð sína í þágu hernaðaruppbyggingar gegn þeim. Áform Evrópusambandsins um endurvígvæðingu álfunnar gætu því með tímanum fjarað út í sandinn. Stundum er haft á orði að þeir sem ekki læri af sögunni séu dæmdir til að endurtaka hana. Umsnúningur í Úkraínustríðinu breytir engu um það að bandaríska heimsveldið muni eftirleiðis sem hingað til fyrst og fremst hafa eigið þjóðaröryggi að leiðarljósi. Þótt hagsmunir þess og samstarfsríkja fari sem betur fer í mörgum tilvikum saman, er ekki við því að búast að þeir samlagist að öllu leyti. Af þessari ástæðu ættu samstarfsríki jafnan að varast að sýna heimsveldinu afdráttarlausa auðtryggð. Að eiga samstarf við Bandaríkin er að þessu leyti eins og að deila fleti með fíl. Hann kann að vera legunaut sínum hollviljugur. En bylti hann sér á aðra hlið er ekki gott að liggja of nærri. Höfundur er fyrrverandi sendiherra Íslands, m.a. hjá NATO, Sameinuðu þjóðunum, ESB og CSCE. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Innrás Rússa í Úkraínu Bandaríkin Mest lesið Opið bréf til meirihluta Reykjavíkurborgar: 850% hækkun gjalda hjá Reykjavíkurborg og skekkt samkeppnisstaða Erik Figueras Torras Skoðun Vannæring er aftur komin í tísku Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Yfir 250 milljarðar út í loftið Lárus Bl. Sigurðsson Skoðun Siðlaust en fullkomlega löglegt Jónas Yngvi Ásgrímsson Skoðun Inga Sæland Árný Björg Blandon Skoðun Fyrir hvern er verið að byggja í Kópavogi? María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Happafengur í Reykjavík Hjálmar Sveinsson Skoðun Við þurfum betri döner í Reykjavík Björn Teitsson Skoðun Klappstýrur iðnaðarins Árni Pétur Hilmarsson Skoðun Um tvo frídaga að vetri: Annan nýjan, hinn eldri Guðmundur D. Haraldsson Skoðun Skoðun Skoðun Mótmæli bænda í ESB náðu eyrum þingsins í Strassborg Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Borgin sem við byggjum er borg framtíðarinnar Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Um tvo frídaga að vetri: Annan nýjan, hinn eldri Guðmundur D. Haraldsson skrifar Skoðun Viðhaldsstjórnun Sveinn V. Ólafsson skrifar Skoðun Yfir 250 milljarðar út í loftið Lárus Bl. Sigurðsson skrifar Skoðun Inga Sæland Árný Björg Blandon skrifar Skoðun Afnám lagaskyldu til jafnlaunavottunar er gott - en gullhúðað Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Happafengur í Reykjavík Hjálmar Sveinsson skrifar Skoðun Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum? Runólfur Ólafsson,Breki Karlsson skrifar Skoðun Varúðarmörk eru ekki markmið Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Opið bréf til meirihluta Reykjavíkurborgar: 850% hækkun gjalda hjá Reykjavíkurborg og skekkt samkeppnisstaða Erik Figueras Torras skrifar Skoðun Fyrir hvern er verið að byggja í Kópavogi? María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Klappstýrur iðnaðarins Árni Pétur Hilmarsson skrifar Skoðun Af hverju ætti ungt fólk að flytja heim eftir nám? Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Þegar allir fá rödd — frá prentvél til samfélagsmiðla Ásgeir Jónsson skrifar Skoðun Varúðarmörk eru ekki markmið Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Við þurfum betri döner í Reykjavík Björn Teitsson skrifar Skoðun Vannæring er aftur komin í tísku Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Lykilár í framkvæmdum runnið upp skrifar Skoðun Hitamál Flatjarðarsinna Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þessu tvennu, er mikilvægast að gera réttu hlutina Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Afburðakonuna Steinunni Gyðu í 2. sætið! Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Leghálsskimun – lítið mál! Vala Smáradóttir skrifar Skoðun SFS „tekur“ umræðuna líka Elías Pétur Viðfjörð Þórarinsson skrifar Skoðun Að standa með sjálfum sér Snorri Másson skrifar Skoðun Hvar er unga jafnaðarfólkið í Ráðhúsinu? Kristín Soffía Jónsdóttir skrifar Skoðun Fjárfestum í farsælli framtíð Líf Lárusdóttir skrifar Skoðun Krúnuleikar Trumps konungs Kristinn Hrafnsson skrifar Skoðun Stuðningur við lista- og menningarstarf í höfuðborginni Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Loðnuveiðar og stærð þorskstofna Guðmundur J. Óskarsson,Jónas P. Jónasson skrifar Sjá meira
Opið bréf til meirihluta Reykjavíkurborgar: 850% hækkun gjalda hjá Reykjavíkurborg og skekkt samkeppnisstaða Erik Figueras Torras Skoðun
Skoðun Opið bréf til meirihluta Reykjavíkurborgar: 850% hækkun gjalda hjá Reykjavíkurborg og skekkt samkeppnisstaða Erik Figueras Torras skrifar
Opið bréf til meirihluta Reykjavíkurborgar: 850% hækkun gjalda hjá Reykjavíkurborg og skekkt samkeppnisstaða Erik Figueras Torras Skoðun