Stjarnan hreppti sjóaðan og sigursælan Slóvena Sindri Sverrisson skrifar 28. janúar 2025 22:53 Jaka Klobucar er mættur í Garðabæinn og tekur slaginn með Stjörnunni. Stjarnan Besta lið Bónus-deildar karla í körfubolta í vetur, Stjarnan, hefur bætt við sig þrautreyndum fyrrverandi landsliðsmanni Slóveníu nú þegar örfáir dagar eru í að félagaskiptaglugginn á Íslandi lokist.
Stjarnan sækir Grindavík heim í Smárann í Kópavogi á fimmtudagskvöld og þar gæti hinn 37 ára gamli Jaka Klobucar spilað sinn fyrsta leik fyrir Garðbæinga. Klobucar er fjölhæfur bakvörður sem býr yfir mikilli reynslu en í tilkynningu Stjörnumanna kemur fram að hann hafi til að mynda verið hluti af A-landsliði Slóvena á árunum 2007-2017. Samkvæmt Wikipedia-síðu kappans hefur hann þrívegis orðið slóvenskur meistari og unnið slóvenska bikarinn fjórum sinnum, auk þess að vera valinn mikilvægasti leikmaður úrslitakeppninnar í Slóveníu 2014. Þá var hann í stjörnuliði tyrknesku deildarinnar 2017 þegar hann lék með Istanbul BB, en þaðan fór hann til Galatasaray. Klobucar hefur síðan einnig leikið í Frakklandi, Grikklandi og Ungverjalandi en var síðast á mála hjá Cedevita Olimpija í heimalandi sínu. Stjörnumenn segja Klobucar geta leyst margar stöður á vellinum en að hann sé einnig þekktur fyrir sterkan varnarleik og eigi því að passa vel inn í hópinn hjá Stjörnunni. Félagaskiptaglugginn í íslenskum körfubolta lokast á miðnætti á föstudagskvöld.
Bónus-deild karla Stjarnan Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Sérlega gleðileg jól í ár og langt hlé á enda Sport „Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi“ Sport Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfubolti „Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“ Sport Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Fleiri fréttir Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers Sjá meira