Færeyjum skellt af herraþjóðinni og Holland vann með tuttugu Sindri Sverrisson skrifar 3. desember 2024 18:43 Holland fer á flugi áfram í milliriðla eftir tuttugu marka sigur gegn Úkraínu í dag. EHF Euro 2024 Hollendingar lentu í mestu vandræðunum gegn Íslandi í leikjum sínum í F-riðli EM kvenna í handbolta. Eftir öruggan sigur gegn Þýskalandi vann hollenska liðið svo tuttugu marka sigur gegn Úkraínu, í Innsbruck í kvöld.
Holland vann Úkraínu 43-23. Hollendingar luku því keppni í riðli Íslands með fullt hús stiga, eða sex stig, en Úkraína endaði neðst án stiga. Ísland og Þýskaland mætast klukkan 19.30 í hreinum úrslitaleik um 2. sæti riðilsins, en Þýskalandi dugar þar jafntefli vegna betri markatölu. Ljóst er að Holland tekur með sér einn sigur í milliriðil því liðið vann bæði Þýskaland og Ísland, og því skiptir ekki máli hvort liðanna fylgir Hollandi áfram. Nýliðar Færeyja geta fagnað því að hafa náð í stig á sínu fyrsta stórmóti en liðið stimplaði sig hins vegar út í kvöld með 33-24 tapi gegn Danmörku. Danir enduðu á toppi D-riðils með fullt hús stiga en Sviss og Króatía mætast í kvöld í leik um 2. sæti riðilsins, þar sem Sviss dugar jafntefli til að fylgja Dönum áfram. Mikil spenna í B-riðli Mesta spennan er hins vegar í B-riðli þar sem Rúmenía vann endurkomusigur gegn Serbíu, 27-25, og á nú góða möguleika á að komast áfram í milliriðla. Serbar enduðu án stiga á botni riðilsins en Rúmenía er með 4 stig. Svartfjallaland er líka með 4 stig og Tékkland 2, svo að ef að Tékkar vinna Svartfellinga í kvöld enda þrjú lið jöfn með 4 stig. Innbyrðis viðureignir þeirra hafa verið þannig að Rúmenar þurfa nú að treysta á sigur Svartfjallalands, jafntefli eða þá að minnsta kosti fjögurra marka sigur Tékklands.
EM kvenna í handbolta 2024 Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira