Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. nóvember 2024 09:41 Jóhann Kristinn Gunnarsson og Jóhann Hreiðarsson vinna áfram saman og stýra Þór/KA í Bestu deild kvenna. Jóhann Kristinn Gunnarsson hefur framlengt samning sinn sem þjálfari Þór/KA í Bestu deild kvenna í fótbolta um tvö ár.
Jóhann Kristinn tók við liðinu fyrir 2023 tímabilið og nýji samningurinn nær nú til ársins 2026. Jóhann þjálfaði Þór/KA einnig frá 2012 til 2016 og næsta sumar verður því hana áttunda sumar með liðið. Öll árin sem Jóhann Kristinn hefur þjálfað Akureyrarliðið hefur hann náð flottum árangri en liðið vann meðal annars Íslandsmeistaratitilinn 2012 og komst í bikarúrslitin 2013. Í sumar endaði Þór/KA í fjórða sæti. Það verða áfram nafnar í þjálfarateyminu hjá Þór/KA því Jóhann Hreiðarsson verður aðstoðarþjálfari liðsins. Jóhann Hreiðarsson kom inn í þjálfarateymi Þórs/KA síðastliðið vor og kom að starfinu í öllum flokkum félagsins, meistaraflokki, 2. flokki U20 og 3. flokki. Hann á þátt í Íslands- og bikarmeistaratitlum yngri flokka félagsins á árinu. Jóhann hefur áður starfað sem þjálfari og aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Dalvík/Reyni og þjálfun yngri flokka hjá Val og Breiðabliki. Hann á jafnframt að baki leiki með Val, Dalvík, Víkingi og fleiri félögum á árunum 1997 til 2015. Þór/KA var þó ekkert að flýta sér að tilkynna um framlenginguna. „Nokkuð er síðan nafnarnir skrifuðu undir nýja samninga og hafa þeir því einfaldlega haldið áfram starfi sínu frá því að keppnistímabilinu lauk í byrjun október enda eru núna tæpar þrjár vikur síðan meistaraflokkur kom aftur saman til æfinga,“ segir í frétt á heimasíðunni. View this post on Instagram A post shared by Þór/KA (@thorkastelpur)
Besta deild kvenna Þór Akureyri KA Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Enski boltinn Fleiri fréttir Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Sjá meira