Frábær sigur Tryggva og félaga gegn stórliði Real Smári Jökull Jónsson skrifar 13. október 2024 12:34 Tryggvi Snær í leik með Bilbao á síðustu leiktíð Vísir/Getty Tryggvi Snær Hlinason lék í tæpar tuttugu mínútur með liði Bilbao sem vann góðan sigur á Real Madrid í spænsku ACB-deildinni í körfuknattleik í dag.
Tryggvi Snær og Bilbao voru með tvö stig eftir tvo leiki í spænsku deildinni líkt og lið Real Madrid. Leikurinn fór fram á heimavelli Bilbao en lið Real Madrid er ríkjandi meistari á Spáni. Heimamenn í Bilbao tóku frumkvæðið í byrjun og leiddu 22-18 eftir fyrsta leikhluta. Þeir bættu í forystuna í öðrum leikhluta, náðu mest tólf stiga forskoti og leiddu 46-34 í hálfleik. Lið Real náði vopnum sínum í þriðja leikhluta. Bilbao byrjaði leikhlutann reyndar á að auka muninn í fimmtán stig en Real náði svo áhlaupi og fyrir lokafjórðunginn munaði aðeins einu stigi, staðan þá 60-59. Fjórði leikhlutinn var æsispennandi. Í stöðunni 67-64 fyrir heimamenn skoraði lið Bilbao fimm stig í röð og jók muninn upp í átta stig en Real svaraði og þegar rúm mínúta var eftir var staðan 78-77. Heimamenn voru hins vegar sterkir á vítalínunni undir lokin og tryggðu sér 83-79 sigur. Tryggvi lék í rúmar sextán mínútur í leiknum og var með bestu plús og mínus tölfræði liðsins en Bilbao vann þær mínútur sem Tryggvi var inná vellinum með fimmtán stigum. Hann skoraði þrjú stig, tók þrjú fráköst og gaf tvær stoðsendingar þar að auki.
Spænski körfuboltinn Mest lesið „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Íslenski boltinn Messi skaut tvisvar í stöng á tveimur sekúndum Fótbolti Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ Íslenski boltinn Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Enski boltinn „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ Íslenski boltinn „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ Íslenski boltinn „Þetta gekk eins og í sögu“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Íslenski boltinn Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Enski boltinn „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Sjá meira