Kawhi vildi spila á Ólympíuleikunum en var sendur heim Ágúst Orri Arnarson skrifar 10. júlí 2024 18:01 Kawhi Leonard hefur æft með bandaríska landsliðinu í Las Vegas undanfarna daga en þótti ekki tilbúinn til að fara á Ólympíuleikana. Kawhi Leonard mun ekki spila með bandaríska landsliðinu á Ólympíuleikunum þrátt fyrir að hafa jafnað sig af meiðslum og treyst sér til að fara.
Bandaríska körfuknattleikssambandið tilkynnti ákvörðunina í dag og sagði frá því að Derrick White myndi koma í hans stað. Þetta hefðu orðið fyrstu Ólympíuleikar Kawhi og hann lagði sig allan fram við að ná heilsu eftir að hafa misst mikið úr endaspretti NBA deildarinnar. „Kawhi hefur verið að koma sér í stand fyrir Ólympíuleikana og náði nokkrum góðum æfingum í Las Vegas. Honum fannst hann tilbúinn til að taka þátt. Hins vegar virðir hann þá ákvörðun sem við tókum í samráði LA Clippers, að það yrði best ef hann einbeitti sér að því að ná fullri heilsu fyrir komandi tímabil í NBA deildinni í stað þess að taka þátt á Ólympíuleikunum,“ sagði í yfirlýsingu bandaríska körfuknattleikssambandsins. An update on Kawhi Leonard from the USA Basketball Men's National Team. pic.twitter.com/84TjYpc90i— USA Basketball (@usabasketball) July 10, 2024 Derrick White mun því fá að fara á Ólympíuleikana í fyrsta sinn en hann vann NBA meistaratitilinn með Boston Celtics í síðasta mánuði og skrifaði í kjölfarið undir fjögurra ára, 126 milljóna dollara samning við félagið.
Ólympíuleikar Ólympíuleikar 2024 í París Körfubolti Mest lesið Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Fótbolti Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Íslenski boltinn Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Handbolti Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Íslenski boltinn Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Vandræðaleg auglýsing og köld kveðja Sport Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Íslenski boltinn Heimsmeistari hélt að hún væri með tíðaverki en endaði á sjúkrahúsi Sport Fleiri fréttir Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Sjá meira