Furða sig á að starfsfólkið þegi ennþá Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 10. júní 2024 08:00 Þær Dagný Rut Magnúsdóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir, Íris Ósk Friðriksdóttir, Þóra Björg Sirrýardóttir, Gyða Dögg Jónsdóttir, Gígja Skúladóttir, Hrafnhildur Jóhannesdóttir og Brynja Skúladóttir lýsa miklu harðræði af hálfu Ingjaldar Arnþórssonar sem gegndi forstöðu á meðferðarheimili að Laugalandi og Varpholti þegar þær dvöldu þar á árunum 1997-2007. Þær segja að starfsfólk hafi orðið vitni að því og furða sig yfir því að það þegi enn. Þær eru meðal viðmælenda í þætti um heimilið í þáttaröðinni Vistheimilin. Vísir Konur sem segjast sem unglingar hafa orðið fyrir miklu ofbeldi af hálfu stjórnenda á meðferðarheimili á Laugalandi áður Varpholti, furða sig á þögn annarra starfsmanna. Þá er fyrrverandi forstjóri Barnarverndarstofu sakaður um að hafa reynt að hafa áhrif á vitnisburð um heimilið fyrir opinberri nefnd.
Konur sem voru sem unglingar vistaðar á meðferðarheimilinu Laugalandi áður Varpholti segjast hafa verið beittar alvarlegu ofbeldi af hálfu Ingjaldar Arnþórssonar forstöðumanns þess meðan þær dvöldu þar en heimilið starfaði frá 1997 til 2007. Þá hafi slíkt líka komið fyrir hjá eiginkonu hans sem gegndi einnig forstöðu á heimilinu. Þetta kemur fram í þætti um meðferðarheimilið í þáttaröðinni Vistheimilin á Stöð 2. „Hann brjálaðist af því ég sagði eitthvað sem honum mislíkaði fljótlega eftir að ég kom í Varpholt. Það voru átök þar sem hann dró mig meðfram möl og sat svo yfir mér alla nóttina og gargaði og gargaði,“ segir Gígja Skúladóttir sem var vistuð á heimilinu 1999-2000 14-16 ára ásamt tvíburasystur sinni. Eftir að fjöldi kvenna steig fram í Stundinni nú Heimildinni fyrir nokkrum árum ákvað þáverandi félags- og barnamálaráðherra að láta gera úttekt á heimilinu. Niðurstaða hennar var að sterkar vísbendingar væru um að þær hefðu orðið fyrir alvarlegu ofbeldi. Þá hafi eftirlit brugðist. Starfsfólkið þegi enn sem sé enn verra Í úttektinni kemur hins vegar fram að bæði starfsfólk og forstöðuhjónin afneita að ofbeldi hafi átt sér stað. Konurnar furða sig á því þar sem starfsfólk hafi orðið vitni að ofbeldi gegn þeim. „Það varð alveg vitni að einhverju. Ofbeldið var ekki bara þegar þau voru ekki. Þau voru t.d. öll með þegar við vorum á fundum í sófanum þar sem mikil niðurlæging gagnvart okkur fór oft fram. Þau þegja ennþá það finnst mér eiginlega verra. Ætli þau telji sig vera í einhverri hættu að vera refsað ef þau segja frá? Það sagði enginn neitt. Þetta var alveg í gangi í tíu ár,“ segir Gyða Dögg Jónsdóttir sem var vistuð á meðferðarheimilinu 15-17 ára frá 2000-2002 ásamt nýfæddum syni sínum. Brynja Skúladóttir sem var vistuð á meðferðarheimilinu á árunum 1998-2000 þegar hún var 14-16 ára er á sama máli. Starfsfólkið fékk tækifæri til þess að standa með okkur en gerði það ekki þegar skýrslan var gerð. Þau brugðust. Fyrrverandi forstjóri Barnaverndarstofu hafi reynt að hafa áhrif á vitnisburð Íris Ósk Friðriksdóttir var vistuð 15-17 ára á Varpholti / Laugalandi á árunum 1999-2001. Hún segir að Bragi Guðbrandsson fyrrverandi forstjóri Barnaverndarstofu sem átti að hafa eftirlit með stofnunni hafi reynt að hafa áhrif á vitnisburð hennar fyrir úttektarnefndinni. Bragi kjörinn í barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna „Það er ekki talað um hlut Braga Guðbrandssonarsem var forstjóri Barnaverndarstofu í þessu máli öllu saman. Hann fékk vissulega tilkynningar um að ofbeldi ætti sér stað á heimilinu all nokkrum sinnum meðan það starfaði. Þeim er öllum stungið ofan í skúffu,“ segir Íris. Bragi Guðbrandsson hafði sjálfur persónulega samband við mig meðan á vinnslu þessarar skýrslu stóð. Blessunarlega var ég búin að fara í mitt viðtal því hann var að reyna að hafa áhrif á framburð og vitnisburð minn. Í símtalinu tjáði hann mér að þetta væru falskar minningar, þetta hefði ekki verið svona. Ég átti mjög undarlegt samtal við þennan mann í tæpar fjörutíu mínútur. Engar sanngirnisbætur, enginn borið ábyrgð Konurnar segja að lítið hafi gerst í málinu á þeim næstum tveim árum síðan úttektin var gerð. Þær hafi ekki fengið sanngirnisbætur frá stjórnvöldum þrátt fyrir niðurstöðu greinargerðarinnar og þær frásagnir sem þær hafi komið á framfæri. Þá hafi engin verið látinn sæta ábyrgð. Herdís Gunnarsdóttir forstjóri Gæða-og eftirlitsstofnunar velferðarmálaVísir/Ívar Herdís Gunnarsdóttir forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála segir stjórnvalda að ákveða næstu skref. „Gæða og eftirlitsstofnun hefur skilað skýrslunni þannig að það þarf í raun að spyrja stjórnvöld að því hvað þau muni aðhafast í framhaldinu,“ segir Herdís. Sanngirnisbótafrumvarp hefur legið í allsherjar- og menntamálanefnd síðustu mánuði en engin niðurstaða er komin fram. Ráðuneytið leggi áherslu á að slíkt endurtaki sig ekki Fréttastofa leitaði eftir svörum hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu um hvort að einhver muni verða látinn sæta ábyrgð vegna ofbeldisins sem konurnar urðu fyrir á heimilinu meðan þær dvöldu þar. Í svari ráðuneytisins kemur eftirfarandi fram: „Ráðuneytið telur mikilvægt að þau sem eiga í hlut taki ákvörðun um framhaldið. Ráðherra kallaði eftir rannsókn á málinu til að fá úr því skorið hvort vistbörn í Varpholti og á Laugalandi hafi sætt óásættanlegri meðferð á tímabilinu. Nú liggja þær niðurstöður fyrir. Vinna mennta- og barnamálaráðuneytisins og áður félags- og barnamálaráðuneytisins undanfarin ár og nú miðar að því að fyrirbyggja að mál sem þetta geti endurtekið sig.“
Vistheimili Vistheimilin Ofbeldi gegn börnum Alþingi Mest lesið „Málið er að ástandið fer versnandi“ Innlent „Trúið ekki þessari áróðursvél“ Erlent Trump dregur enn frekar úr þátttöku Bandaríkjanna á alþjóðasviðinu Erlent Ófremdarástand í bílastæðamálum aðhlátursefni Neytendur Leitar afkomenda Ungverjanna sem komu til Íslands fyrir sjötíu árum Innlent Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Veður Trump sé tilbúinn að ganga „eins langt og nauðsynlegt er“ gagnvart Grænlandi Erlent Þyngdartap með lyfjum mun fljótara að ganga til baka eftir að notkun er hætt Erlent Þvag, saur og uppköst í klefum Innlent „Svartir sauðir misnoti réttindin“ og Reykjavík ræðst í aðgerðir Innlent Fleiri fréttir Meðalaldur hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og ljósmæðra heldur áfram að hækka „Málið er að ástandið fer versnandi“ Ekið inn í verslun og á ljósastaur Þvag, saur og uppköst í klefum Leitar afkomenda Ungverjanna sem komu til Íslands fyrir sjötíu árum Símabann skilað góðum árangri þó sumir stelist í símann „Svartir sauðir misnoti réttindin“ og Reykjavík ræðst í aðgerðir Hildur hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin Rússneskt skip í íslenskri lögsögu og nemendur eiga erfitt með símabann Kleip og sparkaði í fjölda lögreglumanna og látin dúsa í einangrun mánuðum saman Árekstur á Álftanesvegi Tvennu vísað úr landi Munu skoða hvort tilefni sé til að hægja á inntöku nýrra barna Útlendingastofnun tilkynnir starfsmanninn til lögreglu Hægt að skíða í Ártúnsbrekku síðar í dag Börnin verði heima einn og hálfan dag í viku Mikill áhugi á fyrsta sæti hjá Viðreisn Stefán vill verða varaformaður Vara við norðaustan hríð á sunnanverðu landinu Jónas Már vill leiða Samfylkingu í Kópavogi Tuddi hlaut dóm fyrir að níðast á nautgripum sínum Björg blandar sér í oddvitaslaginn í borginni Ekkert nema hégómi hjá Trump að vilja setja bandaríska fánann á Grænland Eldur kveiktur í lyftu Segir skynsamlegt að anda með nefinu varðandi Grænland Sami oddviti í fyrsta sinn í tæp þrjátíu ár Skautasvell á Stokkseyri slær í gegn Vill lækka veikindahlutfall opinberra starfsmanna Týnda göngufólkið reyndist vera í Reykjavík Engir símar á neyðarfundi og ráðherrar bregðast við skaupinu Sjá meira