Lífið

Sjarmerandi og seiðandi á sjö­tugs­aldri

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Listinn samanstendur af sjarmerandi þjóðþekktum einstaklingum á sjötugsaldri.
Listinn samanstendur af sjarmerandi þjóðþekktum einstaklingum á sjötugsaldri.

Einstaklingar sem búa yfir ákveðnum persónutöfrum virðast ná að heilla flesta með sínu fallega brosi, útgeislun eða sjálfsöryggi, og þykja afar sjarmerandi. Eitt er að víst að það er misjafnt hvað heillar fólk en þessar týpur eiga það sameiginlegt að stela senunni hvert sem þær mæta. 

Lífið á Vísi leitaði til fjölda álitsgjafa sem tilnefndu íslenska einstaklinga á sjötugsaldri sem eiga það sameiginlegt að búa yfir einstökum persónutöfrum og sjarma.


Hinrik Ólafsson leikari (1963)

„Hinrik er ljúfmennið uppmálað líkt og allir sjá þegar hann horfa djúpt í augun á þeim.“

„Mesta sjarmatröll sem sögur fara af!“

Skjáskot/Þjóðleikhúsið

Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fjölmiðlakona (1962)

„Jóhanna má vera á skjánum mínum alla daga, allan daginn. Fáar konur sem eru jafn heillandi.“

„Glaðleg, hláturmild og dásamleg.“

Vilhelm Gunnarsson

Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri (1954)

„Fágun og mystík sem heillar hverja konu upp úr skónum.“

„Enginn sem er eins skemmtilegur og hann Friðrik!“

Friðrik Þór Friðriksson er einn ástsælasti leikstjóri Íslands og hefur hlotið tilnefningu til Óskarsverðlauna.Vísir/Vilhelm

Sigmundur Erni rúnarsson fjölmiðlamaður og rithöfundur (1961)

„Hans glettna bros kemur manni alltaf til að brosa.

„Það er eitthvað við hann Sigmund, hann er alltaf í góðu skapi, hann er allra manna bestur.“

Sigmundur Ernir Rúnarsson

Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, tónlistarkona (1955) 

„Diddú lýsir upp hvert og eitt rými sem hún kemur inn í. Útgeislun hennar og nærvera fyllir mann af hlýju.“

„Fáguð, fríð og framúrskarandi tónlistarkona með bros sem nær til augnanna.“

Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, og Garðar Cortes.Getty

Unnur Steinsson fegurðardrottning (1963)

„Fegurðin, fágunin og glæsileikinn uppmáluð.“

„Það vita allir sem þekkja til unnar að hún lýsir upp herbergið um leið og hún mætir á svæðið. Heillandi bros og góða nærvera.“  

Unnur Steinsson ætlar hér eftir að prjóna eina jólapeysu á ári.mynd/vilhelm

Ragga Gísla tónlistarkona (1956)

„Skemmtilegasta tónlistarkonan fyrr og síðar. Hún heillar allan salinn með sviðsframkomu sinni, stóískri ró en gefur á sama tíma svo mikla orku.“

„Gleðisprengja Ragga Gísla er engum lík. Heillandi töffari sem gefur lífinu lit.“

Bylgjan órafmögnuð Ragga Gísla Mynd/Hulda Margrét

Helgi Björnsson (1958)

„Hressasti maður landsins sem fær alla með sér í gírinn. Hver elskar ekki Helga fokking Björns?“

„Helgi er einn mesti töffari landsins sama hversu gamall hann er.“

Bylgjan tónleikar MenningarnóttVilhelm Gunnarsson

Sigga Beinteins tónlistarkona (1962)

„Blíða brosið og húmorinn upp á tíu.“

„Það eru fáar konur jafn sjarmerandi og Sigga. Svo held ég að hún eigi Íslandsmet í að koma landsmönnum í gott skap og húrrandi dansgír.“

Sigga BeinteinsVilhelm Gunnarsson

Örn Árnason leikari (1959)

„Hans einlæga bros og húmor er einstaklega sjarmerandi. Svo er hann líka svo einstaklega skemmtilegur.“

„Það má ekki gleyma að allir elska afa á skjánum. Afi okkar allra sem við elskum.“ 

Skjáskot/Þjóðleikhúsið

Bubbi Morthens (1956)

„Sexí töffari!“

„Bubbi er engum líkur. Ekki bara tónlistarmaður þjóðarinnar, heldur algjört sjarmatröll í persónu.“

Bubbi Morthens

Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona (1962)

„Ekki bara skemmtileg á hvíta tjaldinu. Sú allra besta.“

„Það eru fáir sem búa yfir slíkum persónuleika og húmor. Eiginlega enginn.“

Ólafía Hrönn, oft kölluð Lolla.vísir/valli

Ágústa Johnson framkvæmdastjóri Hreyfingar (1963)

„Ekki bara ein af snjöllustu viðskiptakonum landsins, heldur líka fáránlega sjarmerandi og skemmtileg.“

„Það gerist eitthvað þegar Ágústa stígur inn í herbergið. Þvílíkur þokki!“

Ágústa Johnson framkvæmdastjóri Hreyfingar


Tengdar fréttir

Hjarðhegðun Íslendinga

Hjarðhegðun Íslendinga endurspeglar smæð samfélagsins og hræðsluna við það að vera utangátta. Eða hvað? Hvers vegna er landinn á einu auga bragði klæddur í samskonar skó, ferðast til sömu áfangastaðanna og kaupir eins húsgögn? 

Seiðandi glæsikvendi á lausu

Íslenskar konur hafa lengi vel þótt þær fegurstu í heimi. Þær eru þekktar fyrir unglegt útlit og sagðar bera af sér mikinn þokka. Við í Lífinu erum sammála þeirri kenningu og settum saman lista af einhleypum og glæsilegum íslenskum konum í samráði við vel valda álitsgjafa.

Einhleypir og eitursvalir

Vorið er blómatímabil fyrir einhleypa einstaklinga. Með hækkandi sól og opnum hug ættu lesendur Vísis sem eru í leit að rétta makanum að líta vel yfir eftirfarandi lista sem samanstendur af eitursvölum og einhleypum karlmönnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×