Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Dans og Jóga Hjartastöðin 8. apríl 2024 11:36 Í brúðkaupsdansinum taka brúðurin og brúðguminn sín fyrstu skref inn í framtíðina sem samstíga hjón. Þetta er fallegt og skemmtilegt augnablik sem gefur tækifæri á að sýna veislugestum kjarnann í sambandinu. Brúðkaupsdagurinn er ógleymanlegur dagur, fullur af ást, gleði og rómantík. Margar hefðir fylgja þessum degi og ein sú sem margir halda í heiðri er dansinn sem nýgiftu hjónin stíga í veislunni.
Brúðurin og brúðguminn að taka sín fyrstu skref inn í framtíðina sem samstíga hjón. Þetta er skemmtilegt augnablik sem gefur tækifæri á að sýna veislugestum kjarnann í sambandinu hvort heldur sem er með rómantískum fallegum dansi eða sérsniðnu dansatriði sem tjáir kátínu og gleði nýju hjónanna. Brúðkaup þar sem dans kemur við sögu eru líka svo skemmtileg. „Við erum lánsöm að hafa fengið að taka þátt í undirbúningi fyrir stóru stundina með öllum þeim fjölmörgum verðandi brúðhjónum sem til okkar hafa komið enda höfum með árunum sérhæft okkur í að hjálpa þeim að finna sinn takt og persónuleika í dansi. Við vitum að þetta gerir daginn enn ógleymanlegri og eftirminnilegri og þetta eru með skemmtilegustu kennslustundunum hér í Hjartastöðinni,“ segir Jóhann Örn Ólafsson, betur þekktur sem Jói dans, danskennari og einn eigenda Dans og Jóga Hjartastöðvarinnar. Jóhann Örn Ólafsson, betur þekktur sem Jói dans, er danskennari og einn eigenda Dans og Jóga Hjartastöðvarinnar. Sumir koma með ákveðnar hugmyndir en aðrir vilja ráðleggingar varðandi dansinn og hvaða tónlist eigi að nota. „Það er alltaf gaman af fá til sín pör sem hafa þegar valið sér tónlist og jafnvel dansstíl. Við þurfum þá að aðstoða þau við útfærsluna, kenna þeim sporin og ráðleggja um hvernig best sé að hafa þetta atriði í veislunni. Við erum alltaf hreinskilin og gefum þau ráð sem þarf til að báðum líði vel á dansgólfinu fyrir framan allt sitt besta fólk. Þetta þýðir að stundum breytast kannski eitthvað hugmyndirnar sem lagt var upp með en niðurstaðan þarf alltaf að vera sú að brúðhjónin sjálf njóti þessi í botn að dansa þennan mikilvæga dans,“ segir Jói og bætir við flestir treysti þeim til að koma með tillögur að tónlist og dansstíl og svo fer sama ferli í gang. Skemmtileg „trend“ skjóta reglulega upp kollinum „Við höfum séð mikið af myndböndum á netinu þar sem brúðurin og faðir hennar setja saman skemmtilega dans með flottu lagi eða jafnvel syrpu af lögum. Þau dansa og svo stígur brúðguminn inn og tekur við. Þetta höfum við aðstoðað með fyrir nokkur brúðkaup en það er ekki ólíklegt að þetta muni færast í aukana. Á sömu nótum er vinsælt að brúðhjón og foreldrar beggja komi saman á námskeið eða í einkatíma til að undirbúa stóru stundina saman. Þetta hefur reynst virkilega skemmtilegt og treystir klárlega fjölskylduböndin.“ Brúðkaupsgestir bregða á leik og bresta í dans í veislunni „Svokölluð „flashmob“ atriði með flottum danssporum til að koma brúðhjónunum og öðrum gestum á óvart hafa margoft verið hluti af verkefnum okkar við að aðstoða við brúðkaupsundirbúninginn. Þessi atriði vekja alltaf mikla lukku og eru frábær til að skipta um gír í veislunni, úr borðhaldi yfir í partý. Þá er hópur veislugesta búinn að koma til okkar og æfa sér saminn dans við eitthvað frábært danslag sem kemur öllum í stuð. Veislustjórar eru alltaf með í ráðum og á hárréttu augnabliki í veislunni byrjar lagið skyndilega og dansinn fer af stað. Yfirleitt er einhver einn sem stendur upp og byrjar að dansa og svo bætast hinir í hópinn smátt og smátt. Svona uppákomur vekja alltaf mikla kátínu og gera veisluna enn eftirminnilegri. Frábær gjöf frá vinum brúðhjónanna sem dæmi.“ Svona er mælt með að undirbúa stóra daginn Spurður um hvernig best sé að hefja undirbúning svarar Jói að best sé að gefa þessu rúman tíma sé þess kostur. „Við mælum með að verðandi brúðhjón komi á byrjendanámskeið í samkvæmisdönsum, fjögur kvöld á fjórum vikum þar sem þau læra grunnsporin í vals, cha cha, jive og foxtrot og finna sinn takt. Svo ættu öll verðandi brúðhjón að taka að minnsta kosti einn einkatíma til að undirbúa mikilvægu stundina og undirbúa dansatriðið sem hentar þeim best með einkakennara. Að vera vel undirbúin með fallegan dans sem passar hjónunum og veislunni gerir augnablikið ógleymanlegt og það er eins gott að hafa einhvern til taks sem tekur upp myndband sem verður alltaf gaman að skoða síðar og rifja upp.“ Hægt er að bóka bæði byrjendanámskeið og einkatíma á heimasíðu Dans og Jóga Hjartastöðvarinnar. Nánari upplýsingar hér um aðstoð í boði við brúðkaupsdansinn.
Brúðkaup Dans Tímamót Mest lesið Trítaði sig og fékk sér Teslu: „Hvað ertu með í laun eiginlega?“ Lífið Álfa- og jólahúsið í Laugardalnum heyrir sögunni til Lífið „Spurði hversu mörgum stelpum hann væri búinn að senda þessa línu“ Makamál Brynja og Þórhallur kveðja Nýlendugötuna Lífið Stjörnulífið: Allt á útopnu í sólinni Lífið Disneydraumurinn varð loks að veruleika Lífið Hönnunarhæð Karinar í Nola til sölu Lífið Atli Örvarsson hlaut BAFTA verðlaunin Lífið Andstaða frá Íslandi og vera Ísraelsmanna litar keppnina í ár Lífið Dulin blessun að missa Baðhúsið Lífið Fleiri fréttir Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Réttu hlaupafötin fyrir íslenskt „vor“ Góðgerlar sem styðja við þyngdarstjórnun og jafnari blóðsykur Njótum þess að borða það sem við elskum yfir hátíðarnar Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Sjá meira