Sport

Dag­skráin í dag: Sófasunnudagur af bestu gerð

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Janus Daði Smárason og félagar í SC Magdeburg verða í eldlínunni í toppslag þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í dag.
Janus Daði Smárason og félagar í SC Magdeburg verða í eldlínunni í toppslag þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í dag. Mario Hommes/DeFodi Images via Getty Images

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á tólf beinar útsendingar á þessum fína sunnudegi þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Stöð 2 Sport

Þátturinn Lengsta undirbúningstímabil í heimi í stjórn Baldurs Sigurðssonar heldur göngu sinni áfram á Stöð 2 Sport klukkan 20:00 í kvöld.

Stöð 2 Sport 2

Ítalski boltinn ræður ríkjum á Stöð 2 Sport 2 í dag og við hefjum leik klukkan 11:20 þegar Lecce tekur á móti Hellas Verona. AC Milan tekur svo á móti Empoli klukkan 13:50 áður en Juventus og Atalanta eigast við klukkan 16:50.

Klukkan 19:35 er svo komið að viðureign Fiorentina og Roma sem lokar ítölsku dagskránni á rásinni í dag.

Stöð 2 Sport 5

Spænski körfuboltinn fær sitt pláss á Stöð 2 Sport 5 þar sem Baskonia og Barca eigast við klukkan 17:20.

Stöð 2 eSport

Undanúrslitin á Blast Premier-mótaröðinni í Counter-Strike fara fram í dag og verða báðar undanúrslitaviðureignirnar leiknar í dag. Fyrri undanúrslitaleikurinn hefst klukkan 17:00 og sá síðari klukkan 19:30.

Vodafone Sport

Boðið verður upp á bland í poka á Vodafone Sport í dag og við hefjum leik á viðureign Huddersfield og WBA í ensku 1. deildinni í knattspyrnu klukkan 11:55.

Klukkan 14:55 er svo komið að toppslag í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta þar sem SC Magdeburg tekur á móti Füchse Berlin, en gera má ráð fyrir því að íslensku landsliðsmennirnir Ómar Ingi Magnússon, Janus Daði Smárason og Gísli Þorgeir Kristjánsson verði í eldlínunni fyrir heimamenn.

Þá hefst bein útsending frá Belgian Darts Open á Evrópumótaröðinni í pílukasti klukkan 18:00 og að lokum mætast Bandaríkin og Brasilía í CONCACAF Gold Cup klukkan 01:10 eftir miðnætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×